Vera - 01.07.1986, Page 21

Vera - 01.07.1986, Page 21
spellsbrotum (geti því sjálfum sér um kennt) og aö heilbrigð börn bíði engan líkamlega skaða af því að hafa kynferðissamband við fullorðna. Þekktasta fræðimannaumfjöllunin tengist hinni frægu „Ödi- Pusarduld" sem flestir hafa heyrt minnst á, kenningu setta fram af sálfræðingnum Sigmund Freud. — Samkvæmt kenningu Freuds átti það að vera æðsta ósk lítilla barna (4—5 ára) að hafa kynferðissamband við foreldri af gagnstæðu kyni. En þar sem barninu þykir einnig vænt um foreldri af sama kyni, veldur þetta þvi mikilli geðkreppu. Drengir óttast hefnd föðursins í því formi að þeir veröi sviptir kynfærunum. Lausn kreppunnar felst í því að barnið reynir að líkja eftir foreldri af sama kyni og telur Freud (Dessa eftiröpun mikilvægasta þáttinn í siöferðisþroska barnsins. Ennfremur telur Freud siðrænan þroska kvenna vera á lægra plani en karla, þ.e. þær séu ekki reknar áfram af þeim geldingakvíða sem hvetur drengi til dáða. — Þessiþáttur íkenningu Freudshefurvissulegaveriðgagnrýnd- Ur af mörgum ólíkum aðilum, en það sem er nýtt og fullrar athygli Vert í þessu sambandi, er að vestur í Bandaríkjunum hefur hafist omræða um áður óbirtargreinar og bréf er Freud skrifaði. í ritgerð trá 1896 tilkynnir Freud fagnandi, að hann hafi fundið „upptök Nílar“ _ þ.e. orsök taugaveiklunar, en hana megi oft rekja til Þess að börn hafi verið misnotuð kynferðislega. Hér var vissulega djörf framsetning á ferðinni, á þeim tíma þeg- er arfgengi geðrænna sjúkdóma var viðurkennt kennilíkan. Hér var bent á félagslegan orsakavald, en ekki líffræðilegan. En hitt var ekki siður djarft, að ráðast gegn karlmönnum, feðrum hinna sjúku (oft virtir Vínarborgarar). Viðbrögð fræðimanna voru háð og spott — „vísindaskáld- saga“, „nornageðlæknisfræði"! — og Freud breytti kenning- unni. í stað þess að taka þá alvarlega er höfðu frá kynferðislegri misnotkun í bernsku að segja, túlkaði Freud þetta sem óskhyggju viðkomandi vegna bældrar kynhvartar til foreldris. Sökinni var komið yfir á barnið. Florence Rusk skrifaði „The Best Kept Secret, Sexual Abuse Of Children" (Prentic Hall, 1980) og segir þar að með Ödipusar- kenningunni hafi verið sett fullkomið lok á sifjaspellsumræöuna. Þar hafi verið komin pottþétt ,,fjarvistarsönnun“ fyrir feður sem hafi dugað í þau nénast 100 ár sem liðin eru frá þessum tíma og þar til nú að sifjaspellsumræðan er að fara í gang, víða um hinn vestræna heim. Þar sem umræður og rannsóknir eru vel komnar af stað, eins og til dæmis í Bandaríkjunum, hafa menn líkt þessu við faraldur, tíðni tilfella er af þeirri stærðargráðu. 25% stúlkna misnotaðar kynferðislega Á áttunda áratugnum hafa komið fram sláandi tölur um kyn- ferðislegt ofbeldi gagnvart börnum, sambærilegt við það er gerð- ist á sjöunda áratugnum er augu manna opnuðust fyrir misþyrm- ingum á börnum. Ýmsar tölur hafa verið nefndar í þessu sam- bandi. Hér eru nokkur dæmi: □ Áttundu hverja mínútu er konu naugðað í Bandaríkjunum. Helmingur þeirra er yngri en 18 ára, fjórðungur innan við 12 ára aldur! 21

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.