Vera - 01.07.1986, Qupperneq 22

Vera - 01.07.1986, Qupperneq 22
Því minni kona, þeim mun stærri karl □ 25% allra stúlkna og 10% drengja hafa á einhvern hátt verið misnotuð kynferðislega af fullorðnum aðila fyrir 13 ára aldur. Samkvæmt skýrslum frá sjúkrahúsum í Washington er meðal- aldur þessara barna 11 ár. 10% eru innan við 5 ára, 30% 6—10 ára og 55% 11—15 ára aldur. □ Kynsjúkdómar hjá börnum aukast gífurlega. Af 20 tilfellum af lekanda, hjá börnum 1—4 ára, stöfuðu 19 tilfelli af kynferðis- sambandi milli barns og fullorðins. □ 9000 stúlkur urðu mæður áður en þær náðu 11 ára aldri, árið 1978. □ Þeir sem misnota börnin eru í 80—90% tilfella karlmenn og í 80% tilfella er um náinn ættingja (föður, stjúpa, afa, bróö- ur. . .) eða kunningja að ræða. Lang flest tilfellin eru þöguð í hel! Eðli málsins samkvæmt er erfitt að setja fram áreiðanlega tölur í þessu sambandi. Mikilvægast er að fólk opni augun og viður- kenni að vandamálið sé til. Þróunin hefur víða verið á þann veg, að fyrir tilstyrk kvennahref- inga eru opnuð kvennaathvörf. Kemur þá í Ijós að ofbeldi gagn- vart konum er meira en ætlaö var og ofbeldið beinist líka að börn- unum. Sömu aðilar hafa og staðið að ráðgjafarþjónustu fyrir kon- ur sem hefur verið nauðgað og til þeirra leita þá töluverður fjöldi fórnarlamba kynferðislegrar misnotkunar í bernsku. Oft eru á ferðinni konur sem ekki hafa sagt nokkrum manni frá þessari ógn- vænlegu bernskureynslu. Konur þær er að ráðgjöfinni stóðu, þar á meðal háskólamenntaðar konur i ýmsum ,,vandamálafræðum“ urðu í fyrstu furðu slegnar yfir tíðni þessa fyrirbæris, þ.e. kennslu- bækur þess tíma höfðu ekkert komið inn á þetta atriði. Segja má að þögnin hafi verið nánast algjör á báða bóga. Athuganir á vændiskonum hafa bætt nýjum upplýsingum við í könnun þessara mála. Mini Silbert, doktor í félagsfræði og afbrotafræði, birti nýlega rannsókn er hún gerði á 200 vændiskonum í San Fransisco. Vændiskonur er eiginlega rangnefni, því um 70% þessara kvenna voru innan við tvítugt, 60% innan við 16 ára og þó nokkuð var um 10 og 12 ára börn. Meðal byrjendaaldur í þessu starfi var 13 ár. Hvaða stúlkur eru þetta — frá hvernig heimilum koma þær? Samkvæmt könnuninni var hér annars vegar um að ræða þessar ,,venjulegu“ sem komafrá fátækum heimilum, úrslömmhverfun- um, oft stúlkur sem tilheyra minnihlutahópnum. En hins vegar var hópur stúlkna sem koma frá virtum millistéttarheimilum — og þessum hópi tilheyrðu yngstu stúlkurnar í könnuninni. Þetta voru stúlkur sem höfðu alist upp hjá báöum foreldrum, vel menntuðum foreldrum í góðum efnum og hér var jafnframt kirkjurækið fólk á ferð. Þetta voru fjölskyldur þar sem allt virtist slétt og fellt út á við, en að baki grímunnar mátti greina fjölmörg vandamál, ofbeldi gegn konum og börnum, drykkjuvandamál, lyfjamisnotkun og í nánast öllum tilfellum kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum. Fiskaðar upp af útsendurum 96% stúlknanna í könnuninni höfðu strokið að heiman, eða yfir- gefið heimilið. Mjög fljótlega höfðu melludólgar haft samband við þær og boðið þeim starf — og — ,,því ekki, þær voru eyðilagðar hvort eða var“. Þaðsjónarmið sem oft ersett fram í fjölmiðlum aö hér sé fljóttekin fjáröflunarleið fyrir stúlkur, átti alls ekki við í þess- um tilfellum. Annar ógnvekjandi þáttur í þessu sambandi er að í öllum tilfell- unum höfðu stúlkurnar verið fiskaðar upp af útsendurum ,,fjár- málaspekúlanta", sem sjá sér hag í að veiða ungviði — þetta er jú spurning um framboð og eftirspurn. Auglýsingin skapar eftir- spurn, en eins og áður var getið um, er auglýsingin ekki bara í formi aukins barnakláms, heldur og í kvikmynda- og tískuiönað- inum öllum. En ,,barna-konu-útlitið“ og barnaklámið dugir þó ekki eitt til ef reyna á að fóta sig í þessu flóði tilfella af misnotuðum börnum. Talið er að margirsamverkandi þættir eigi hlut að máli og hefur í því sambandi verði bent á eftirfarandi atriði: □ Mikinn hlutverkarugling í samfélagi örra breytinga. □ Fjölskyldusamsetningin hefur breyst. Mikið er um samsettar fjölskyldur þar sem stjúpforeldri og stjúpsystkin koma inn í myndina. □ Margir karlmenn hafa upplifað kvenfrelsishreyfingar og jafn- réttisbaráttuna sem hótun. □ Ýmsir menn eiga erfitt með að ná sambandi við jafnaldra af báðum kynjum og snúa sér því að börnum. □ Einmana, tilfinningalega svelt börn, þiggja það að þeim sé sýnd ástúö i einhverju formi! Ein kenning segir að margir karlmenn vaxi upp án þess að ná því andlega þroskastigi sem fullorðnum einstaklingum er ætlað, læri aldrei að taka ábyrgð. Þessir aðilar vænta ástúðar frá börn- um sínum og þeir rugla saman þörfum barna fyrir hlýju og snert- ingu við sínar eigin kynhvatir og þörf fyrir útrás þeirra. Hvaö er til ráöa? í fyrsta lagi er mikilvægt að ábyrgir aðilar jafnt sem almenning- ur opni augun fyrir tilvist vandans. — Það þarf að veita fórnar- lömbunum raunhæfan stuðning að vinna úr sínum vandkvæðum og fóta sig í tilverunni. En hvað á að gera við sökudólginn — refsa og/eða lækna? Og hvað með aðra fjölskyldumeðlimi, t.d. mæður fórnarlambanna, eiginkonur sökudólgsins? Voru þessir aðilar samsekir að vissu marki? Vissi móðirin hvað fram fór eða kemur þetta sem óvænt áfall fyrir hana? Hvort heldur sem er þá er van- líðanin og sektarkenndin oftast mjög mikil. í Kaliforníu hefur verið þróað meðferðaráætlun fyrir alla þá er hlut eiga að máli. Áætlun þessi nefnist CSATP (Child Sexual Abuse Treatment Program), þetta er samvinna meðferðarhóps viðyfirvöld áviðkomandi stað, svo og viðsjálfshjálparhópa. Sjón- armið þessara aðila er það, að í stað þess að senda pabbann í fangelsi, dótturina á fósturheimili og skilja móðurina og hugsan- leg systkini eftir tilfinningalega niðurbrotin og í óöruggri efna- hagsstöðu — og þar með þyngja refsingu allra aðila, þá er reynt aö fá fjölskylduna í meðferð. Tilgangur meðferöar er að reyna að fá fólk til að skilja hvað gerðist og hvers vegna, með því að tala um vandamálið. Reynt er að sameina fjölskylduna á ný, á nýjum grundvelli. Mikilvægterað vinnafyrirbyggjandi. Sem dæmi um fyrirbyggj- andi starf má nefna að konur í Seattle hafa staðið að útgáfu bókar þar sem börn skrifa um reynslu sína af þessum málum. Tilgang- urinn er að veita öðrum börnum aðgang að upplýsingum á máli sem þau skilja. Önnur aðferð, þróuð af hópi kvenna í Ohio, sem berjast gegn nauðgunum, er í formi fyrirbyggjandi hlutverkaleiks. Þar er í leikrænu formi farið í gegnum ýmsar aðstæður sem börn lenda í og rætt hvernig þeim beri að bregðast við. Markmiðið er að börn læri að þekkja rétt sinn og að þau geti brugðist við ógn- vænlegum aöstæðum á raunhæfan hátt. Síðast en ekki síst er mikilvægt að berjast gegn klámiðnaðinum í hvaða formi sem hann birtist! í Svíþjóð hafa kvennasamtök stað- ið fyrir opinberum klámblaðabrennum. Hér á landi hefurekki farið fram mikil umfjöllun um þetta efni. Nokkrar blaðagreinar hafa þó fjallað um þetta efni (skrif Helgu Sigurjónsdóttur o.fl.) og flestir muna eftir Spegilsmálinu 1983 er ritstjóri þess blaðs var dæmdur fyrir birtingu sora- og klámfengins efnis. Klám í þessu sambandi var nokkuð mótsagnakennt, þ.e. það var klám að sýna mynd af kynfærum karlmanns, en engin athugasem var gerð við mynd af berum kvenmanni í allgrófum stellingum. Ýmsir héldu að í fram- haldi af Spegildóminum myndu yfirvöld hreinsa til í klámblaða- rekkum bókaverslana, enda margt þar öllu grófara en í fyrr- greindu blaði, en svo hefur ekki orðiö. 22

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.