Vera - 01.07.1986, Qupperneq 24

Vera - 01.07.1986, Qupperneq 24
Bakvaktir fyrir skolp en ekki fyrir böm Rætt við Gunnar Sandholt, deildarstjóra hjá Félagsmálastofnun Eru til tölulegar upplýsingar um ofbeldi gegn börnum? Nei. Engin samræmd né skipulögð skráning á ofbeldi gegn börnum mér vitandi, enda engin lagafyrirmæli fyrir slíku. Hins vegar er mér kunn- ugt um aö farið er að skrá upp- lýsingar um ofbeldi gegn börn- um á hinum ýmsu stofnunum t.d. hjá nokkrum heilsugæslu- læknum, á barnadeildum spít- alanna og einnig hjá ung- barnaeftirlitinu. Á Félagsmálastofnun höld- um við til haga tilkynningum sem okkur berast um misfellur I aðbúnaði barna og unglinga og barnaverndarmál eru að sjálfsögðu skipulega skráð, en við höfum ekki skýra aðgrein- ingu milli barnaverndarmála og annarra fjölskyldumála á Félagsmálstofnuninni einfald- lega vegna þess að mörkin þarna á milli eru oft ekki sér- lega skýr. Hvernig bregst Félagsmála- stofnun við ef ég hringi og til- kynni um barnamisþyrmingar sem eiga sér stað hjá nágranna mínum? Viö munum að sjálfsögðu reyna aö koma á staðinn strax, en hins vegar yrðum við að leita aðstoðar lögreglu ef þarf að fara inn á heimili án sam- þykkis forráöamanna. í þessu sambandi er rétt að minna á, að Félagsmálastofnun er ekki opin eftir kl. 17.00 á daginn eða um helgar og engar bak- vaktir við stofnunina og þá er ekki um annað að ræða en að snúa sér til lögreglunnar. Það ersíðan undirhælinn lagt hvort lögreglan tilkynnir barna- verndarnefnd um málið. Því miður hafa stjórnvöld ekki séð ástæðu til að búa jafnvel að þessum málaflokki eins og t.d. vatnslögnunum og skolplögn- um borgarinnar. bar sem bak- vaktir eru allan solarhringinn. Ef málið er hins vegar að þú ert aö gera grein fyrir eða til- kynna um atburði sem hafa gerst og eru alltaf öðru hverju að gerast eins og algengara er nú, þá setur félagsráðgjafi sig eins fljótt og auðiö er í sam- band við viðkomandi foreldri. Annað hvort með heimsókn á staðinn eða með hringingu og viðkomandi er boðaður fyrst á fund allt eftir því hvað tilkynn- ingin er alvarlegs eðlis. Getið þið sinnt slíku erindi innan tveggja klukkutíma eins og virðist vera hægt að gera sumsstaðar á hinum Norður- löndunum? Við reynum að meta tilkynn- inguna hvers eðlis hún er og ef það þarf að fara strax þá ger- um við það. Við höfum ekkert tveggja tíma mark sem við för- um eftir. Yfirleitt má þó segja að það megi fremur gagnrýna okkur fyrir of sein viðbrögð en of fljót meðal annars vegna þess hvað við erum önnum kafin. Hvernig er svo málsmeðferð háttað innan stofnunarinnar. Hafið þið möguleika á að fá handleiðslu frá öðru fagfólki en þeim sem ráðnir eru til Félags- málastofnunar svo sem lækni, lögfræöingi, hjúkrunarfræðing- um o.fl.? í flesium tilvikum vinnast slík mál í samvinnu við foreldrana og málin eru þess vegna ekki kynnt sérstaklega fyrir barna- verndarnefnd en eru með- höndluð eins og hver önnur fjölskyldumál hjá Félagsmála- stofnun. Innan fjölskyldudeildar höf- um við á aö skipa nokkuð reyndu starfsliði. Má þar nefna félagsráðgjafa með reynslu frá ýmsum stofnunum og tveir sál- fræðingar starfa innan deildar- innar. Við höfum einnig mögu- leika á að kaupa sérstaka að- stoð er við þurfum svo sem að- stoð sálfræðings eða læknis. í barnaverndarnefnd situr lög- fræðingur sem við getum ráð- fært okkur við eftir þörfum. Málsmeðferðin i framhaldi af heimsókn er sú að gerð er skýrsla um máliö og tekin af- staða til þess hverjar fram- haldsaðgerðir eigi að vera. Ef nauðsyn er á að beita einhverj- um þvingungarúrræöum sem barnaverndarnefnd hefur á valdi sínu þá er málið kynnt fyrir barnaverndarnefnd. Yfir- maður fjölskyldudeildar hefur umboö til að grípa til skyndiað- gerða sem nauðsynlegar eru. Hver er félagsleg staða þeirra fjölskyldna þar sem ofbeldis verður vart? Það er erfitt fyrir mig að full- yrða eitthvað um þetta í heild sinni út frá þeim sjónarhóli sem við á Félagsmálastofnun höfum vegna þess að til okkar leita fyrst og fremst fjölskyldur sem eru félagslega og efna- hagslega illa stæðar. Það er umhugsunarvert að þær fjöl- skyldur sem barnaverndar- nefnd hefur afskipti af með úr- skurði eru fyrst og fremst illa stæðar fjölskyldur, bæði fjár- hagslega og félagslega. Það er þó fjarri mér aö álykta sem svo að ill meðferð eigi sér ekki stað í fjölskyldum sem eru bet- ur settar, en hins vegar virðist sem mál þeirra fjölskyldna ber- ist síður. Hjálparkerfið hvort sem um er að ræða heilsu- gæslu eða Félagsmálastofnun virðist eiga erfiðari aðgang að þessum börnum, en börnum þeirra sem verst eru settir. Al- mennt er talið að líkurnar á ofbeldi aukist við streitu í fjöl- skyldum, t.d. vegna bágs efna- hags, tíðra flutninga, öryggis- leysi í húsnæðismálum, of mikils vinnuálags og óhóflegr- ar áfengisneyslu. Þess vegna má segja að líkurnar á ofbeldi gegn börnum ættu ekki að vera minni hér á landi en í ná- grannalöndum okkar austan- hafs og vestan, þar sem athug- anir hafa verið gerðar, vegna þess að aðstæður barnafjöl- skyldna eru síst betri hér en þar. Ertu ánægður með þá löggjöf sem við höfum varðandi þetta málefni í dag eða mundir þú vilja einhverjar sérstakar breyt- ingar á henni? Að mínu mati þarfnast lögin endurskoðunar. Þegar var far- ið að huga að endurskoðun á þeim árið 1974 ásamt endur- skoðun á félagsmálalöggjöf- inni og verkefnum sveitar- félaga. Þetta var löngu tíma- bært en stjórnmálamenn hafa samt hummað þetta fram af sér undanfarin ár. Á.B. 24

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.