Vera - 01.07.1986, Síða 26

Vera - 01.07.1986, Síða 26
Akvöroun Kvenna- framboðsins Miklar umræður áttu sér stað í Kvennahúsinu í vet- ur um það, hvort Kvennaframboðið ætti að bjóða framtil borgarstjórnarkosningannaívor. Niðurstaða þeirra umræðna varð að ekki var boðið fram af hálfu Kvennaframboðsins heldur Kvennalistans. í yfirlýs- ingu, sem samþykkt var á félagsfundi Kvennafram- boðsins síðast í janúar, sagði m.a.: „Tilgangurinn með stofnun Kvennaframboðsins var að vekja athygli á og efla umræðu um stöðu kvenna og berjast fyrir kvenfrelsi. Fyrir fjórum árum var valin sú baráttuleið að bjóða fram til borgarstjórnar. Við teljum tvímælalaust, að sú leið hafi borið árangur, sem lýsir sér í aukinni vitund kvenna um stöðu sína og stórauk- inni umræðu um málefni kvenna, þótt við höfum því miður ekki haft erindi sem erfiði innan borgarkerfisins. Það er mat Kvennaframboðsins, að endurtekning þess- arar glæsilegu aðgerðar sé ekki líklegasta leiðin til árangurs að sinni og mun það því snúa sér að starfi á öðrum vettvangi. Engu að síður er Ijóst, að Kvennalist- inn í Reykjavík hefur fullan hug á að bjóða fram til borg- arstjórnar og telur mikilvægt að rödd kvenna heyrist þar áfram. Við hljótum að óska þeim góðs gengis í starfi. Hver einasta kona verður að vera virk í baráttunni á þann hátt, sem hún telur vænlegastan hverju sinni. Framboð Kvennaframboðsins til borgarstjórnar 1982 var einn liður í baráttu íslenskra kvenna og hún heldur áfam og á eftir að skila okkur sigri að lokum." Kvennaframboö — Kvennalisti Að baki þessarar yfirlýsingar lágu, eins og fyrr sagði miklar umræður. Rétt er að rekja í stórum dráttum þær umræður og skýra að einhverju hvers vegna það var Kvennalistinn, sem bauð fram í vor og fékk fulltrúa kjör- inn í borgarstjórn Reykjavíkur. E.t.v. liggja ræturnar allt aftur til ársins 1982 þegar Kvennaframboðið varö til. Strax þá komu fram tvær raddir um tilganginn; ein sem sagði að um væri að ræða tímabundna aðgerð byggða á grasrótinni, aðgerð al- mennrar kvennahreyfingar og svo önnur, sem kvað um að ræða stofnun stjórnmálaafls í ætt við flokkana. Sú rödd var þó lágvær og almennt má fullyrða að þátt- takendur í Kvennaframboði litu á það sem eina aðgerð kvennahreyfingarinnar. Þegar leið að alþingiskosningum árið 1983 kom snemma fram sú skoðun að Kvennaframboðið hlyti að freista þess að koma konum á þing undir merki kven- frelsis. Umræðurnar um þetta fóru fram lungann úr vetrinum og mátti ekki alltaf á milli sjá hvort sjónarmiðið yrði ofan á. Félagsfundur Kvennaframboðsins tók af skarið með atkvæðagreiðslu, þar sem þingframboð var fellt. Sá hópur, sem var á annarri skoðun, stofnaði þá Samtök um Kvennalista. Mikið starf vegna undirbún- ings og kosningabaráttu og svo áframhaldandi vinna við þingstörf varð Kvennaframboðinu mikil blóðtaka, því við það hurfu margar röskar konur úr stafi þar og sá ágreiningur, sem orðið hafði um þingframboð skildi eftir sig sprungur, sem brúa þurfti af kostgæfni. Kvennaframboðið og Samtök um Kvennalista hafa starfað undir sama þaki, oft hlið viö hlið. Kvennalistinn gerðist eignaraðili aö Veru til jafns við Kvennaframboð- ið svo dæmi sé nefnt um affarasælt samstarf. Mörgum þeim, sem félagar eru í báðum samtökunum, hefur þótt það næsta kátbroslegt að gera skýran mun á milli. Þær benda á að Samtök um Kvennalista hafi orðið til þess að efla kvennahreyfinguna, sem nú eigi sér að auki málsvara á þingi sem bragð er að. Vera kvenfrelsissjón- armiða á Alþingi hafi bætt um betur það átak, sem Kvennaframboðið hafi átt upptökin að 1982. Þær, sem ekki voru hlynntar þingframboðinu 1983 taka undir þetta, margar þó með fyrirvörum varöandi stefnu Kvennalistans á þingi og efasemdum um að kvenna- hreyfingin fái haldið grasrótareðli sínu með þátttöku í fjokkapólitíká þingi eöaí sveitarstjórnum. Nokkrar hafa látið bæði Kvennaframboð og Kvennalista lönd og leið en snúiö sér að störfum að öðrum vettvangi. í það heila tekið er þó óhætt að segja, að sú skoðun ríki, að kvennahreyfing hljóti fyrst og fremst að vera hréyfing I þá átt, sem konur vilja fara sjálfar og að í slíkri hreyfingu sé engin eignarréttur hugmynda eða stefnu. Umræður í vetur Það var með þetta í huga, sem farið var að ræða kosti og ókosti framboðs til borgarstjórnarkosninganna í vor og það var meö þetta i huga, sem ekki var látið á það reyna með atkvæðagreiðslu hvort úr framboði yrði eða ekki. Fyrir augum var hafður sá möguleiki, að hægt væri að komast að samkomulagi, þar sem hver og ein veldi sér sína leið. Snemma í vetur varð Ijóst að lang- flestar þeirra, sem á sínum tíma voru hlynntar þingfram- boði, voru nú á því að bjóða aftur fram til borgarstjórnar. Sá kjarni, sem 1983 tók ekki þátt I stofnun Samtaka um Kvennalista og hafði síðan starfað í borgarmálaráði Kvennaframboðsins og að öðrum störfum innan þess, var mótfallinn framboði á nýjan leik. Og það var rætt fram og til baka hver niðurstaðan ætti aö vera. Hollar umræður Um hvað var rætt? Það var skoðaður árangurinn af starfi Kvennaframboösins innan borgarkerfisins og ut- an. Það var rætt um það, hvort Kvennaframboðið hefði verið tímabundin aðgerð, sem ekki yrði endurtekin og um það hvort það væri ekki enn þá tímabundin aðgerð — tíminn væri bara enn ekki liðinn. Það var spurt hvort rödd kvenfrelsis mætti missa sín úr borgarstjórn eða ekki. Það var rætt um grasrót og flokkakerfi, um starfs-

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.