Vera - 01.07.1986, Page 28

Vera - 01.07.1986, Page 28
svo róðurinn þegar tók að líða nær kosningum. Það er ekki hægt að leggja upp i kosningar með afleita frammi- stöðu í dagvistarmálunum á bakinu. í launamálum hefur Kvennaframboðið ítrekað bent á vanmat samfélagsins á störfum kvenna og flutt margar tillögur sem fela í sér endurmat á launum þeirra og störfum. Hafa oft orðiö miklar umræður um þessi mál í borgarstjórn en tillögur okkar hafa ýmist verið svæfðar eða felldar. Síðasta tilraunin sem við gerðum til þess að ná fram endurmati var s.l. haust en tillaga okkar þá fékk makalausa útreið í borgarstjórn eins og lesa má um í 1. og 2. tbl. af Veru á þessu ári. Sú útreið er á ábyrgð minnihlutaflokkanna jafnt og Sjálfstæðisflokksins. En eins og svo oft áður vorum við dropinn sem holaði stein- inn. Alþýðubandalagið vildi halda andlitinu og flutti til- lögu í febrúar s.l. um að taka kvennastörf til sérstaks starfsmats. Það undarlega gerðist að borgarstjórn sam- þykkti einróma þessa tillögu. í þessari samþykkt fólst m.a. viðurkenning á því að nauðsynlegt væri að gefa konum ákveðinn forgang í launamálum þó hinu sé ekki að neita að mikið vantar á að tillögunni hafi verið fram- fylgt við gerð þeirra sérkjarasamninga sem nú liggja fyrir. Samþykktin skilar einstaka kvennahópum eins til tveggja launaflokka hækkun en breytir engu í grund- vallaratriðum. Það var svo sem ekki við öðru að búast af einróma og átakalausri samþykkt í borgarstjórn. Mikið starf verið unnið í nefndum borgarinnar hafa fulltrúar Kvennafram- boðsins breytt ýmsum málum til betri vegar með því að vera vakandi fyrir því sem er aö gerast og ódeigar við að koma skoðunum sínum á framfæri. Of langt mál yrði að telja það allt upp hér en þetta á kannski ekki síst við um félagslega þjónustu, skipulag, æskulýðsmál og menningarmál. Dæmi í þessu sambandi er að fulltrúar Kvennaframboðsins í stjórn Kjarvalsstaða lögðu fram ítarlega stefnumörkun í upphafi kjörtímabilsins þar sem m.a. var lögö áhersla á sérstaka menningardaga kvenna. Þessir menningardagar þróuðust síðan út í listahátíð kvenna sem haldin var á vegum 85-nefndar- innar s.l. sumar. Tóku menningarstofnanir borgarinnar mikinn þátt í þeirri hátíð og þannig varð þetta stefnu- mark Kvennaframboðsins að veruleika. Þó Kvennaframboðið hafi fengiö fáar tillögur sam- þykktar í borgarstjórn þá held ég að það sé samdóma álit allra sem til þekkja að við höfum unnið mikið starf í borgarstjórn. Á undanförnum fjórum árum höfum við verið að móta stefnu og gera grein fyrir sérstöðu okkar í íslenskri pólitík. Við höfum lagt áherslu á að okkar baráttumál og okkar sýn sé stöðugt í umræðunni og þ.a.l. höfum við flutt ókjör af tillögum í borgarstjórn sem og í ráðum og nefndum borgarinnar. Eru tillögurnar í borgarstjórn orðnar a.m.k. hátt á annað hundrað. Auk þess höfum við á hverju ári lagt mikla vinnu í fjárhags- áætlun borgarinnar og lagt þar fram sjálfstæða stefnu- mörkun sem hefur falið í sér 50—100 breytingar á fjár- hagsáætlun Sjálfstæðisflokksins. Þessar breytingar hafa ekki verið einhliða óskalisti heldur höfum við í hvert eitt sinn sýnt fram á hvernig mætti fjármagna þann kostnaðarauka sem tillögur okkar hafa í för með sér. Mikill arfur Ef litið er yfir kjörtimabilið í heild má í stuttu máli segja að stefna okkar hafi miðast við fernt. í fyrsta lagi að breyta forgangsrööun verkefna, í öðru lagi að auka félgslega þjónustu, í þriðja lagi að gefa mannlega þætt- inum í þjónustu, framkvæmdum og umhverfi aukið vægi og í fjórða lagi að taka upp öll þau mál sem snerta konur sérstaklega. Þessari stefnu höfum við framfylgt bæði með því að hafa frumkvæði að málum, eins og til- löguflutningur okkar ber vitni um, og með því að halda uppi virku andófi gegn kvenfjandsamlegri stefnu núver- andi meirihluta. Þetta andóf kemur m.a. fram í bókun- um okkar í borgarstjórn. Það er Ijóst að Kvennaframboðið skilur eftir sig mik- inn arf í borgarstjórn og nú hlýtur það að falla í hlut Kvennalistans að taka við honum og ávaxta hann. -isg. Kjarnorku- vopnalaus Reykjavík „Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að lýsa því yfir, að allt borgarland Reykjavíkur og Reykjavikur- höfn skuli vera kjarnorkuvopnalaust svæöi. í því felst: 1) að staðsetning kjarnorkuvopna verði aldrei leyfð, 2) að bannað verði að flytja kjarnorkuvopn um svæðið, 3) að bannað verði að reisa mannvirki og koma fyrir tækjum, sem tengjast notkun eða meðferð kjarnorkuvopna. 4) Herskipum verði bönnuð koma í Reykjavíkur- höfn, nema fyrir liggi yfirlýsing um, að þau flytji ekki kjarnorkuvopn eða geislavirkan úrgang. Þessi tillaga lagði borgarfulltrúi Kvennaframboðsins, Guðrún Jónsdóttir, fyrir fund borgarstjórnar þ. 15. maí. Okkur þykir þessi tillaga varla þarfnast skýringa en lát- um þó greinargerð Guðrúnar fylgja hér með: „Markmið þessarar tillögu er, að fyrir liggi ótvíræð viljayfirlýsing borgarstjórnar um, að hér verði aldrei Ijáð máls á því, að í Reykjavík eigi sér stað hernaðarupp- bygging og/eða hernaðarumsvif tengd kjarnorkuvopn- um. Jafnframt er samþykkt tillögunnar Ijós vottur þess, að borgarstjórn er andvíg kjarnorkukapphlaupi stór- veldanna og vill með samþykkt tillögunnar undirstrika þá afstöðu. Samþykkt tillögunnar er í fullu samræmi við þingsályktun um stefnu íslendinga í afvopnunarmálum, sem samþykkt var á Alþingi 23. maí 1985, svo og sam- þykkt allra ríkja, sem aðild eiga að Sameinuðu þjóðun- um um stofnun kjarnorkuvopnalausra svæða í löndum sínum. Nú þegar hafa fjölmörg sveitarfélög austan hafs og vestan samþykkt tillögur og gefið yfirlýsingar sam- hljóða þeirri tillögu, er hér liggur fyrir. Það er vel viö hæfi, að Reykjavík hafi forgöngu meðal sveitarstjórna í þessu máli málanna og skapi þannig fordæmi fyrir önn- ur sveitarfélög." Tillögunni vísaö frá Borgarstjórinn í Reykjavík lagði umsvifalaust fram til- lögu um frávísun málsins, svohljóðandi: „Hér er um að ræða álitaefni (sic! innskot Veru), sem ekki er í verka- hring sveitarstjórnar að álykta um, þar sem það heyrir undir utanríkisráðuneytiðog Alþingi.‘‘ Frávisunartillaga borgarstjórans hlaut 12 atkvæði, sex voru á móti, full- trúar Alþýðubandalags og svo okkar fulltrúar.

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.