Vera - 01.07.1986, Side 37
Ingibjörg Sólrún Gisladóttir. Ljósmynd: DV.
,,Konur verða að
beita sér á öllum
sviðum"
Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir, borgarfulltrúi Kvennalist-
ans.
— Hvaö nú, Sólrún?
— Hvaö nú? Aö mínu viti
stöndum viö ekki á neinum
sérstökum tímamótum í
kvennabaráttunni núna. Viö
verðum aö halda áfram hér
eftir sem hingaö til aö beita
okkur á sem flestum sviðum
þjóðfélagsins, á vinnumark-
aði, í menntakerfi, i stofnun-
um, í fjölmiðlum, í kjörnum
fulltrúasamkundum o.s.frv.
Ég held að því aðeins sé
kvennahreyfingin líkleg til að
ná árangri að hún beiti sér
sem víðast, enda eru það svo
margir samofnir þættir sem
9era það að verkum að konur
eru undirokaðar. Það verður
ekki unninn neinn sigur í
kvennabaráttunni með því
einu að einbeita sér að þing-
raeöisleiöinni né heldur með
Þvi að einblína á vinnumark-
aðinn. Það er víxlverkun á
milli allra þessara leiða. Það
er samt ekki hægt að horfa
framhjá því að það eru launa-
málin sem brenna mest á
konum núna enda getur fólk,
sem tekur laun samkvæmt
iægstu töxtum tæplega talist
matvinnungar, hvað þá efna-
hagslega sjálfstætt. í launa-
málum erum við hins vegar
bæði að glíma við þá lág-
launastefnu sem hér ríkir og
allt verðmætamat karlveldis-
ins. Verðmætamat sem bygg-
ist á því að vinnuafl kvenna
er lægra metið en karla og
hefðbundin kvennastörf sem
tengjast þjónustu, umönnun
og uppeldi teljast mun minna
virði en hefðbundin karla-
störf.
— Hvernig geta konur
breytt þessu mati?
— Það þarf verulega upp-
stokkun á samfélaginu til
þess og þ.a.l. verða konur að
beita sér á öllum sviðum
þess. Uppstokkunin verður
ekki gerð af örfáum einstak-
lingum og því skiptir það öllu
máli að vekja fólk, og þá fyrst
og fremst konur, til vitundar
um það óréttlæti og ófrelsi
sem er innbyggt í samfélag
karlveldis og auðhyggju. í
þeim efnum þarf sífellt að
leita nýrra leiöa, benda á ný
sjónarhorn og grípa öll tæki-
færi sem gefast. Kvenna-
hreyfingin þarf að vera í stöð-
ugri endurnýjun svo hún
staðni ekki og verði ein af
stofnunum samfélagsins.
Þetta hefur henni tekist hing-
að til og ég er ekkert hrædd
um að svo verði ekki áfram.
Aðalatriðið er að reyna ekki
að þvinga konur ofan í eitt-
hvert hjólfar sem þær vilja
ekki eða eru ekki tilbúnar til
að fara eftir. Ef hver kona vel-
ur þá leið í baráttunni sem
hún trúir staðfastlega á, en
heldur ekki að sér höndum,
þá náum við árangri.
G. Ó.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa.
Læknafulltrúa í 100% starf, við Heilsugæslustöð Hlíða-
svæðis, Drápuhlið 14—16, frá 1. ágúst n.k. Stúdentspróf
eða sambærileg menntun áskilin, ásamt góðri vélritunar-
og íslenskukunnáttu.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri heilsugæslustööva í
síma 22400.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð fyrir kl. 16:00 mánudaginn
28. júlí.
Hugsaðu vel um Veruna þína. Nú er hægt aö fá
möppu á 200 kr, merkta Veru í Kvennahúsinu,
Hótel Vík. Þá er líka hægt að fá Veru frá upphafi,
ef þig vantar í safnið. Hafðu samband, síminn er
22188.
Bestu kveðjur,
i
i
i
lURBhh
ggb nm aUir foreMrar
Landsbanki
fslands
Banki allra landsmanna
I Landsbanka Islands eiga bðm um
margar leiöiraö velja til avöxtunar
d sparifé slnu. Tinnabaukurinn er
tilvalinbyrjun. Peir þremenningamir.
Tirmi, Tobbi og Kolbeirm skipstjóri
gæta gullsins vel. Þegar I bankann kemur
hetstavöxtunin fyrir alvöm.
Tinnabaukurinn kostar aöeins 100 kr.
Spamaðinn er slöan tilvaliö
aö leggja I Kjörbök. sem ber háa vexti
og verðtryggingu.
37