Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 2

Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 2
Á aldrinum 5—15 ára leika stelpur sér nær eingöngu viö aðrar stelpur og strákar viö aöra stráka. Flestir foreldrar hafa tekið eftir því aö leikir og venjur stelpna og stráka á þessum aldri eru ólíkir en þrátt fyrir þaö þykir þessi aðskilnaður milli kynjanna svo sjálfsagður aö yfirleitt heyrist lítiö á hann minnst. Reyndar endurspeglar hann og einnig hinir ólíku leikir krakkanna þaö kynskipta þjóöfélag sem viö búum í og börnin eru alin upp í. Aðskilnaðurinn er hluti af félagsmótun kynjanna sem mótar stelp- ur og stráka á ólíkan hátt til þess aö þau falli inn í þau hlutverk sem þeim eru ætluð í þjóöfélaginu. Þó svo allir viti af þessari ólíku leikmenningu stelpna og stráka á þessum aldri er miklu meira vitaö um hvernig strákar eru og hvernig þeir leika sér. Karlmenn eru valdameiri og meira áberandi í þjóöfélaginu en konur og svo viröist sem strákar séu að sama skapi meira áberandi en stelpur. Komið hefur fram aö strákarnir eru fyrirferða- meiri og taka meira af tíma kennaranna en stelpurnar og margar stelpur og foreldrar þeirra hafa kvartaö yfir áhugaleysi fjölmiöla á íþróttum stelpna. Sjaldan er sagt frá íþróttum og tómstundum þeirra jafnvel þótt þærséu aö keppa í hefðbundnum karlaíþróttum. Fjölmiölar veita stelp- unum helst athygli þegar þær eru orönar eldri, fyrir útlit og kynþokka og eyða löngum tíma í fegurðarsamkeppnir og slíkt þar sem þær koma fram sem kynverur. Bókmenntir og sjónvarpsefni endurspegla oft hvaö lítið er vitaö um stelpur og leiki þeirra. Þar eru þær oftar en ekki bara með strákunum og fá aö hjálpa til í ævintýrum þeirra. Þaö hefur lítiö veriö gert með þaö stelpulega og þótt niðrandi fyrir stráka aö vera stelpulegir. Samt læra stelpur aö þróa meö sér eiginleika sem allir geta veriö sam- mála um aö séu jákvæöir og samkvæmt öllu ættu aö nýtast þeim vel þeg- ar út í þjóðfélagið er komið. Komið hefur fram aö leikir stelpna og sam- skipti byggjast ekki á valdasamskiptum eins og hjá strákunum heldur á vináttutengslum þar sem hlutverk bestu vinkonunnar er mikilvægt. í leik efla þær meö sér samvinnu og leggja áherslu á jafnrétti. Þær læra aö leysa vandamál sín og árekstra meö orðum sem ekki er auðvelt markmiö og getur gengiö erfiðlega og kostar oft mikið þref og þras. Strákar, aftur á móti skera úr vandamálum sínum oftar en ekki meö áflogum og stríöni enda eru þeir aö búa sig undir aö starfa í samfélagi þar sem slíkt er viður- kennt sem lausn á vandamálum. Þannig þykja eiginleikar sem eru í raun jákvæðir og ætti samkvæmt öllu aö vera hampaö í þjóðfélagi eins og okk- ar, neikvæöir bara af því aö þeir hafa veriö tengdir viö kvenkynið og telj- ast kvenlegir. Þetta endurspeglar einnig stööu kvenna og það vanmat sem er á því sem kallað hefur veriö „kvenlegir eiginleikar". Sem svar viö þessu er þetta tölublað Veru helgað stelpum og stelpnamenningu og er skref í áttina aö því aö gera stelpurnar sýnilegri í þessu þjóöfélagi. bb VERA 3—4/1987 — 6. árg. Útgefendur: Kvennaframboðið í Reykjavík og Samtök um Kvennalista. Símar: 22188 og 13725 í VERU NÚNA: 3—5 Lesendabréf 6—7 Noi Donne Viötal viö blaðakonu af „ítalskri Veru“ 8—11 Greenham Common Vera heimsækir konurnar viö Bláa hliöiö 12—13 Stelpnamenning — falin menning 14—17 Stelpur fæöast ekki stelpur Um félagsmótun stelpna og stráka 18—20 Spjallaö viö stelpur Fjórar 12 ára segja frá 20—21 Vinkonan mikilvægust Rætt viö 15 ára stelpu 22—23 Móöir verðandi kvenna segir frá 24—27 Viö hreyfum okkur í hringi Rætt viö Mártu Tikkanen 28—30 Er samið um sjálfsvirðingu Barátta fóstra 30—32 Um bækur 34—36 Ábendi Öðru vísi ráöningaþjónusta 38—40 Borgarmál 41—44 Þingmál 45 Bækur/leikhús 46 Uppáhalds bækurnar mínar Mynd á forsíöu: Elín Rafnsdóttir Ritnefnd: Ingibjörg Sólrún Gisladóttir Kristin Blöndal Magdalena Schram Ragnhildur Eggertsdóttir Brynhildur Flóvenz Elin Garðarsdóttir Bergljót Baldursdóttir Snjólaug Stefánsdóttir Utlit: Kicki Starfsmaður Veru: Kicki Borhammar Auglýsingar: Þórunn Yngvadóttir Dreifing og fjármál: Ragnhildur Eggertsdóttir Ábyrgö: Ragnhildur Eggertsdóttir Setning og filmuvinna: Prentþjónustan hf. Prentun: Prentberg Bókband: Félagsbókbandiö Ath. Greinar í Veru eru birtar á ábyrgö höfunda sinna og eru ekki endilega stefna útgefenda. 2

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.