Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 26

Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 26
veg hennar til föðurins, um tilraun hennar til að banka uppá hans lokuðu dyr. Sjálf hef ég reynt að auka skilning minn í gegnum syni mína tvo, sem ég kynntist áöur en þeir fæddust. Margt af því sem þeir sem strákar þurfa að horfast í augu við vekur þó hjá mér ugg". Umræðan fer nú að snúast um það þegar karlrithöfundar þurfa að setja sig í spor kvenna í bókum sínum. Það virðist ekki valda þeim þungum áhyggjum þar sem þeir ganga flestir útfrá því að þeirra skynjun og lífsviðhorf sé það eina rétta. Það er því meiri ástæða til að hafa áhyggjur af því hvaða áhrif bókmenntir þeirra geta haft en hvort þeir eigi í basli með kvenpersónur sínar. ,,Þaögildir sjálfsagt þaðsama um bókmenntir ogt.d. sálfræði. Þar hefur karlmaðurinn verið reglan, konan undantekningin og smátt og smátt verða konur fyrir áhrifum af þeirri mynd af sjálfri sér, sem þær eru mataðar með. Einn góðan veðurdag passar Öskubuska í skóinn sinn, búið er að fjarlægja bæði hæl og tá". Þóað Márta viðurkenni opinskátt að henni gangi illa aðskilja karl- menn eru þeir oft afar áberandi, fyrirferðarmiklir, í bókum hennar — en ávallt er þeim lýst frá sjónarhorni kvenna. í lokakvæði bókar- innar, „ástarsögu aldarinnar" (Árhundradets kárlekssaga 1978), sem Kristín Bjarnadóttir hefur þýtt á íslensku kemur fram hvað Márta vill með listsköpun sinni: „Þegar jörðin gengur í bylgjum tek ég örsmá skref sem varla greinast þá get ég ef til vill haldið jafnvæginu Þegar sekúndurnar hrannast upp og dynja svo á mér þá verð ég að vera afar ströng við þær Ein af annarri ein af annarri fá þær að líða hjá mér óendanlegan tíma til morguns Þegar blaðsíður kaflar og hugsanir virðast ógreinanlegar tek ég orðin eitt af öðru og held þeim lengi upp í Ijósið svo þau verði gagnsæ Síðan safna ég þeim örlitla kjarki sem eftir er og hvísla í kyrrþey en aðeins að þeim sem hafa eyrun mjög nærri jörðu og skreiðast áfram eins og ég Sársauki og ótti flæða yfir okkur, samhliða styrknum, sem býr í þeim konum sem Márta lýsir i bókum sínum. Verða þessar tilfinning- ar að fylgjast að? „Viðleitnin að standa fyrir því sem maður er, vera öðru vísi, velja aðrar leiðir, veldur oft ótta og kvíða. Þetta er erfið leið, en sú eina mögulega fyrir mig. Hún er mér einfaldlega nauðsynleg." Þau viðfangsefni, sem fyrir marga kvenrithöfunda eru nauðsyn- leg, eins og fyrir Mártu, eru alls ekki áhugaverð í augum „bók- menntastofnunarinnar". Þar hafa sjónarmið karla fengið að ráða í aldir og því erfiðleikum bundið að fá viðurkennt að bækur sem fjalla um hversdag kvenna séu bókmenntir, list. Márta bendir á að hún hafi oft orðið vör við jákvæð viðbrögð karla við bókum sínum, en þar sem flestir telji sig nú vita hvað hún skrifi um eru nú kvengang- rýnendur látnir fjalla um þær. Þar meðeru þær settar íflokk B. í bók- inni „Karlmönnum verður ekki nauðgað" (Mán kan inte váltas 1976) tók Márta upp efni sem braut múrana og vakti áhuga karla og var bókin m.a. kvikmynduð fljótlega. „Það var barnslegt að trúa því að ég gæti náð fram með þessu móti. Umræðan fór fljótt að snúast um það hvort hægt væri að nauðga körlum en ekki um það sem bókin fjallar í raun um." Henrik Tikkanen, listamaður og rithöfundur, eiginmaður Mártu fékk mikinn áhuga á bókinni strax á meðan Márta vann að gerð hennar og byrjaði í framhaldi af því að mála myndir af ungum fal- legum konum og allskonar táknum karlmennskunar. Ein af þessum myndum tók huga Mártu svo föstum tökum að hún ákvað að skrifa bók útfrá henni. Þessi mynd prýðir nú kápuna á Rauðhettu. Fyrir Martu er myndin svo mikilvægur hluti bókarheildarinnar að hún lét hana ganga á milli áheyrenda allan tímann sem hún sjálf las úr bók- inni. Myndin gefur vísbendingar um þær andsstæðu tilfinningar sem úlfarnir í lífi Rauðhettu vekja hjá henni. Þeir hræða og hafa aðdráttarafl í senn. „Ég reyni að fjalla um kynhvöt kvenna og spyr spurninga eins og; er gott að vera kona?" Vanmáttur og takmörkun karla á því að geta skilið og sett sig inní líf kvenna er eins og rauður þráður í öllum bókum Mártu. Hún held- ur þó ekki að hérsé á ferðinni úthugsuð aðferð karla. Hún velur held- ur að kalla það hugsanaleysi. „Til er það sem er verra en skilningslausu karlarnir, það finnst mér stundum að minsta kosti. Nefnilega, „ekki systurnar." Ég verð t.d. bál- reið þegar ég heyri konu eins og Fay Weldon og margar fleiri neita því að þær skrifi kvennabókmenntir. Afhverju hefur orðið feministi orðið að svo Ijótu orði." Á hádegisverðarfundinum eyddi Márta nokkrum tíma í að fjalla um það hvernig bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs væri dreift út og í spaugsömum tón sagði hún að stundum viritist kynferði skipta þarna meira máli en bókmenntahæfileikar. Því var mótmælt úr salnum að bókmenntum væri skipt upp í kvenna- og karlabók- menntir. —■ Márta er eiginlega á móti merkimiðum en telur þó að þeir séu nauðsynlegir stundum. „Við skulum muna að það voru fyrst og fremst karlar sem settu á okkur merkimiðann kvennabókmenntir. Svo skulum við líka muna að það er ekkert jafnrétti, — ekki í Finnlandi, ekki hér og þá getum við ímyndað okkur hvernig það lítur út annars staðar í heiminum. Auðvitað snýst skáldunin fyrst og fremst um baráttuna við sjálfan sig. Baráttuna að trúa á það sem maður gerir og finna jafnvægi á milli sjálfs sín og sjálfgagnrýninnar. Þar sem karlar hafa allt aðra og betri möguleika á þvi að iðka skáldskap sinn, hin daglega aðstaða er þeim t.d. mun auðveldari, en aðstaða kvenrithöfundarins, sem er allt önnur og verri. Svo lengi sem það er þannig verðum við að vinna sérstaklega að því að lyfta fram verkum kvenrithöfunda." Márta er eiginlega ekkert undrandi þegar hún fær mótmæli gegn því að deila eigi út sérstökum verðlaunum til kvenrithöfunda. Hún álítur að þau mótmæli eigi skilt við andstöðuna gegn orðinu feministi. „Sjálfsagt er þetta annars vegar tengt því að nú erum við komnar 26

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.