Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 11

Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 11
I l * 1 » Ljósmynd: b.b. hér er öðruvísi en venjulegt líf. Við erum að gera allt annað en ætlast er til af okkur af þjóðfélaginu. Samkvæmt öllu ættum við að vera í fastri vinnu og hafa ákveðið takmark í lífinu, markmið sem við myndum ákveða fyrirfram. Við myndum vita nokkurnvegin hvað næsti dagur ber í skauti sínu. Þetta er kallað öryggi því þú ferð eftir ákveðnu mynstri, ákveðnum staðreyndum. En í rauninni fylgir þessu mikið óöryggi. Líf sem byggir á eignum og peningum er óöruggt líf. Peningar, hús og slíkt eru mjög óstöðug fyrirbæri, þú getur misst alla stjórn á þeim. Við búum ekki svona." Vera spurði þær Kate, Chris og Jo hvort þær sofi þarna fyrir utan bláa hliðið og hvort þeim væri ekki oft hræðilega kalt. ,,Við breiðum yfir okkur plast, í staðinn fyrir tjald. Það fer eiginlega eftir því hvernig dagurinn á undan hefur verið hvort okkur verður kalt eða ekki. Lögreglan tekur af okkur dótið okkar þegar hún kærir okkur fyrir að vera með drasl á almenningi. Því getur það farið eftir því hvort okkur hafa verið gefin teppi hvort okkur verður kalt eða ekki. Ég hef aldrei verið hérna í snjó en ég held að rign- ingin sé verst. Þegar maður blotnar er erfitt að þurka ser. Maður getur alltaf klætt sig betur, farið í fleiri peysur og vafið um sig teppum ef bað er mjög kalt." Vera ætlaði að fara að kveðja og þakka fyrir sig þegar Kate spurði hvort einhver hafi sagt henni frá ,,Zapping'7 Það hafði engin gert svo þær bættu úr því. ,,Fyrir tveimur árum síðan fóru konurnar hérna að finna fyrir ýmsum sjúkdóms- einkennum. Sumar konurnar lömuðust tímabundið, blæðingar rugluðust og einu sinni á sama hálftímanum misstu tvær konur fóstur við eitt hliðið. Það kom hingað vís- indakona sem sagði að þetta væru einkenni sem fylgdu geislavirkni. Hún var síðan mæld hérna og kom í Ijós að geislavirkni er hærri hérna við hliðin og mest virtist hún vera í höfuðs og kviðarhæð en það voru ein- mitt þeir staðir sem konurnar fundu mest til í. Síðan fóru konurnar að tengja við þessa vanlíðan hátíðnihljóð sem heyrast hérna stundum. Því svo virðist sem vanlíðan fylgi í kjölfar þessara hétiðnihljóða. Við heyrðum einhver hljóð í gærkvöldi og hendurnar á mér urðu eitthvað skrítnar. Þó veit ég ekki hvort það hafa verið sömu hljóðin. Maður hefur heyrt margar sögur um hvað þetta getur verið en meðal okkar gengur þetta undir nafninu ,,Zapping''. „Konur sem hafa farið inn í herstöðina hafa fundið skjöl um efnahernað (biological warfare) svo það getur vel verið að þeir séu að gera einhverjar tilraunir á okkur. Zapping virðist hafa mismunandi áhrif á konur. Sumar finna mikið fyrir því, aðrar þola það betur." ,,Þetta hefur orðið til þess að friðarbúð- irnar hafa breyst. Hérna áður voru margar konur við Græna hliðið með börn með sér. Þær eru farnar og við ráðleggjum ófrískum konum að koma ekki. Konur með börn koma heldur ekki lengur hingað." Hvaðan kemur þetta orð „Zapping”? „Þetta erslanguryrði líklega úramerískri vís- indaskáldsögu. Við vitum ekki hvaða fyrir- bæri þetta er svo það gengur undir þessu nafni. Zapping getur verið hvað sem er. Margir hallastá að það sé örbylgjur því vatn hefur allt í einu farið að sjóða. Maður hefur heyrt margar sögur. Önnur nöfn sem við hefðum yfir fyrirbærið væru opinber heiti." Þegar Vera fór sátu Kate, Chris og Jo enn- þá undir plastinu og biðu þess sem verða vill. Skyldi lögreglan koma í dag og reyna að finna eitthvað til þess að kæra þær fyrir eða verður þetta einn af þeim dögum þegar þeir láta þær í friði. Ef svo er þá þlotna þær ekki í nótt því þá fá þær að halda plastinu sem þær hafa og geta sofið undir því. En ef þeir koma þá taka þeir líklega dótið þeirra og kæra þær fyrir að vera með drasl á almenn- ingi og þá verður nóttin blautari og kaldari. En hvort sem verður er eitt víst, þær verða þarna áfram. bb (1) Cook, A., and Kirk, G., 1983. Geeenham women everywhere. Pluto Press Limited. 11

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.