Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 35

Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 35
ABEND rekendur höföu i gegnum árin leitað til hennar meö ábend- ingu um skrifstofufólk, en Þór- unn er búin að kenna við Verzl- unarskólann í mörg ár. Það kom í Ijós að að þetta hafði ver- ið gamall draumur hjá henni svo við ákváðum að slá til. Við vildum fá einhvern sérfræðing með okkur sem hefði lært að nota Strong Campell, því þó svo að við hefðum fengið þjálf- un í þvi að nota þetta hjálpar- tæki sem Strong Campell er, þá erum við ekki sérfræðingar við erum bara ,,sveinar“. Sölvína benti okkur á Ágústu, sem var þá að Ijúka sálfræðinámi í Minnesóta þar sem hún hafði meðal annars lært að fara með Strong Campell. Eftir mörg bréf og símhringingar ákvað Ágústa að vera með okkur í þessu fyrirtæki, þar sem blandað yrði saman annars vegar sérfræðiþjónustu við starfs- og námsval og hins vegar ráðningaþjónustu. Nú síðan tók sinn tíma að gera það sem gera þarf til að koma á fót fyrirtæki, meðal annars að finna hentugt húsnæði og í þyrjun mars á þessu ári hóf Ábendi sf., síðan starfsemi sína. Á hvern hátt er þjónustan hjá ykkur ödruvísi en gerist hjá öðr- um ráðningaþjónustum? Ágústa: Það sem við höfum fram yfir aðrar ráðningaþjón- ustur er það að við reynu m ekki aðeins að finna heppilegan einstakling í starf fyrir atvinnu- rekandann heldur um leið að finna heppilegt starf fyrir ein- staklinginn. Þetta er sem sagt tvihliða, að fyrirtækið fái góðan starfskraft og að starfskraftur- inn verði ánægður hjá fyrirtæk- inu. Það er dýrt fyrir fyrirtæki að þjálfa upp nýjan starfskraft og þess vegna mikilvægt fyrir það að starfskrafturinn verði ánægður í starfi og dvelji þar af leiðandi lengur hjá fyrirtækinu. Ánægður starfskraftur vinnur verk sin vel og hefur fáa veik- indadaga auk þess sem starfið verður honum markmið i sjálfu sér en ekki bara eitthvað sem hann verður að gera til að vinna fyrir launum. Hverjir eru það helst sem leita til ráðningaþjónustu ef þeir eru i atvinnuleit? Nanna: Það er mikil breidd í þeim hópi, en þó er líklega stræstri hópurinn konur á milli tvítugs og þrítugs, alla vega af þeim sem leitað hafa til okkar. Enn sem komið er höfum við mest séð um að ráða í verslun- ar- og skrifstofustörf, Þórunn er sérfræðingur í að meta hæfni til slíkra starfa. Þó að þessi aldurshópur sé í meiri hluta þá er samt talsvert um að eldra fólk sé að leita sér að vinnu, annað hvort af þvi að það vill skipta um starf eða er að koma út á vinnumarkaðinn á ný. í þvi síðar nefnda er um að ræða konur sem eru að koma út á vinnumarkaðinn 35

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.