Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 5

Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 5
„Forréttindakvennablað“? Hardeberga, Svíþjóö, 27. 4. 1987 Kæra Vera Ég vona aö þið fyrirgefið mér trassaskap- inn og þakka ykkur jafnframt fyrir að hafa haldið áfram að senda mér ykkar ágæta blað. Það er alltaf jafn gaman að fá Veru og að mínu mati er hún góð hún Vera a.m.k. í heild. Aðeins einn galla langar mig að nefna. Hann er sá, að ég held að margar konur eigi erfitt með að finna samnefnara sinn í blaðinu ef svo má að orði komast. Það eru að miklu leyti ,,forréttindakonur“ sem skrifa blaðið og eiga af augljósum ástæð- um (finnst mér) auðveldast með aö höfða til annarra kvenna af sama ,,tagi“. Ég setti gæsalappir utan um forréttindakonurnar því í raun og veru ætti t.d. menntun ekki að vera forréttindi, en á íslandi er hún það samt. Hópur verkakvenna á íslandi er stór en ég get ímyndað mér að það sé erfitt fyrir konur í þeim hópi að vinna að gerð Veru. Tími þeirra hlýtur að fara í brauðstrit og heimilishald. Lítill eða enginn tími tii annars. Ég man eftir bréfi sem birtist i Veru fyrir nokkrum árum frá konu í Breiðholti (ef ég man rétt). Hún gagnrýndi blaðið dálítið harkalega en margt af því sem hún sagði átti rétt á sér þá og sumt af því á það enn. Nú vona ég að þið takið það ekki of nærri ykkur að ég sé talsvert sammála þessari konu. Gagnrýni á alltaf rétt á sér, sérstaklega ef hún er sanngjörn. Eins og ég sagði áöan skil ég mætavel aö það hlýt- ur að vera erfitt að fá konur úr mismunandi stéttum til að vinna við blaðið. Á meðan svo er, er nauðsynlegt aö þær konur, sem vinna svona blað séu meðvitaðar um þetta vandamál. Við sem erum svo heppnar að hafa átt tök á að afla okkur framhals- menntunar erum misjafnlega undir það búnar að setja okkur inn í vandamál annarra stétta. Við ættum allar að reyna að forðast háa hestinn sem við gagnrýn- um marga karlmenn fyrir að vilja setjast á. Bestu kveöjur og ástarþakkir fyrir (í heild sinni) gott blað, ykkar Guörún Gísladóttir. Kæra Guðrún Þakka þér fyrir bréfið. Við tökum það ekki nærri okkur að fá gagnrýni, við viljum fá gagnrýni. Hins vegar er okkur ekki alltaf alveg Ijóst hvernig við getum brugðist við henni. Ýmislegt i bréfinu þínu hefur orðið okkur að umtalsefni, ekki aðeins okkur i ritnefnd- inni heldur líka öðrum, sem koma hingað i Kvennahúsið og hafa dottið inn í þær um- ræður. Spurningar á borð við: Í hverju felast forréttindin? Hvers vegna er kvennahreyf- ingin — ekki aðeins á islandi heldur alls staðar — látin sæta þeirri gagnrýni, einum stjórnmátasamtaka — að vera samansafn einhverra forréttindakvenna, mennta- kvenna, millistéttakvenna? Eru vandamál kvenna stéttbundin? Þú vekur i bréfi þinu máls á mörgu sem i reynd snertir kvennahreyfinguna, Kvenna- listann — enda er Vera afsprengi hreyfingar, í ritnefndinni eru konur, sem hafa verið virk- aríkvennabaráttu (m.a.o., við erum ekki all- ar svokallaðar menntakonur!) og í sjálfu sér ekki óeðlilegt að þótt Vera, (til hverra hún höfðar, hvernig hún haga máli sínu o.s.fr.) fái á sig sams konargagnrýni og hreyfingin, sem hún er sporttin af. Ljósmynd: Elin Magnúsdóttir. Við í ritnefndinni lýsum hér með eftir svör- um frá öðrum lesendum Veru og frekari athugasemdum við bréf Guðrúnar. Látið nú hendur standa fram úr ermum og sendið okkur ykkar skoðun, ykkar hugmyndir og ykkar lausnir. Og mikið væri nú gaman að heyra frá þeim konum, sem Guðrún gerir að umtalsefni, verkakonunum. Það vill nefni- lega þannig til að gagnrýni af þvi tagi sem fram kemur ibréfi Guðrúnar, ernær alltaf frá ,,forréttindakonunum“ — ekki hinum, sem ,,forréttindakornurnar“ hafa áhyggjur af! Ritnefnd P.s. bréfið, sem Guðrún vitnar til, birtist i 4. tölublaði Veru 1984. Þær ykkar, sem eigið það blað, gætu jafnvel látið fljóta með skoð- anir sínar á þeirri gagnrýni. Áskrifandi erlendis spyr hvort Vera hafi póstgírónúmer, þar eö slíkt myndi auðvelda henni að borga áskriftina sina. Póstgírónúmer VERU er: 21600-3. 5

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.