Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 34

Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 34
Ábendi sf. er nýlegt fyrirtæki á sviði ráðgjafa og ráðninga, eigendur og starfskraftar Ábendis eru þær Ágústa Gunnarsdóttir, sálfræðingur, Nanna Christiansen, ráðgjafi og Þórunn Felixdóttir, ráðgjafi. Það vekur ávallt áhuga og forvitni hjá aðstandendum Veru þegar fréttist af einhverju sem konur eru að framkvæma, undirrituð lagði því leið sína inn á Engjateig 7, þar sem Ábendi er til húsa og hafði tal af þeim Nönnu Christiansen og Ágústu Gunnarsdóttur. Rætt við Ágústu og Nönnu um öðruvísi ráðgjöf Það er nú þegar þó nokkur fyrirtæki sem sjá um atvinnu- ráðningar og sum þeirra búin að starfa í áraraðir, hvers vegna og hvenær stofnuðið þið Ábendi? Nanna: Ábendi er stofnað í lok síðasta árs, hún brosir og bætir við, eftir um það bil níu mánaða meðgöngu. Við Þór- unn Felixdóttir vorum í fyrra við nám í Háskólanum hjá Sölvínu Konráðs, þar sem hún kenndi starfs-og námsráðgjöf. Þarvar eðlilega mikið rætt um atvinnu- líf, starfsmöguleika og þess háttar. Um þetta leyti var ég sjálf mikið að velta því fyrir mér að skipta um starf, ég hafði verið kennari í mörg ár og þrátt fyrir það að mér fannst kennsl- an ágætis starf þá langaði mig að breyta til. Ég fór á ráðninga- stofur en mér fannst ég fá þar mjög ófullnægjandi þjónustu og þegar ég fór að ræða við félaga mína, sem voru í sömu hugleiðingum og ég og líka höfðu snúið sér til ráðninga- stofa, kom í Ijós að fólk var al- mennt óánægt, ósátt við þjón- ustuna. Störfin sem fólki buðust voru ekki í neinum beinum tengslum við það sem hentaði hverjum og einum, það var frekar að fólk gæti átt von á starfi ef einhver þekkti til annað hvort fjölskyldu eða tengdafjölskyldu viðkomandi aðila. Við þetta vaknaði áhugi minn á starfsemi ráðninga- þjónusta, ég ræddi við nokkuð marga atvinnurekendur bæöi íslenska og erlenda og það kom í Ijós að íslenskir atvinnu- rekendur voru ekkert sérstak- legaánægðir heldur. Ég kynnt- ist einnig lítillega ráðninga- þjónustu erlendis og sá þar að mínu mati miklu faglegri vinnu- brögð. í námi mínu hjá Sölvinu tók ég áhugasviðs ábendið, Strong Campell, þar kom í Ijós aö ég hafði töluvert miklar líkur á að verða ánægð í starfi sem starfsmannastjóri eða við starfsmannahald. Eftir að hafa rætt þetta við Sölvínu vaknaði hugmyndin, hvers vegna ekki bara að stofna eina góða ráðn- ingaþjónustu? Ég ræddi um þetta við Þórunni, vegna þess að ég vissi að margir atvinnu- 34

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.