Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 28

Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 28
Þaö hefur komið æ betur í Ijós á undanförnum árum aö ýmsir starfshópar kvenna eru ódeigastir í baráttunni fyrir hækkun á kjörum launafólks. Er skemmst að minnast BSRB-verkfalls- ins 1984, en mikil virkni kvenna var einkennandi fyrir þaö verkfall. Nú í vetur hafa ýmsir kvennahópar s.s. sjúkraliöar og fóstrur látið að sér kveða og tekist að rjúfa svolítið skarð í lág- launastefnu undanfarinna ára. Þetta hefur þó ekki gengið þrautalaust fyrir sig og fengu fóstrur t.d. skömm í hattinn frá forustu sínsfélags og máttu sitja undir stöðugum hótunum og svigurmælum frá æðsta valdi borgarinnar — borgarstjóra. Ein þeirra sem á sæti í kjaranefnd fóstra er Margrét Pála Ólafsdóttir. í greininni hér á eftir segir hún frá gangi mála í samningaviðræðunum við borgina, karlaveldinu beggja vegna borðsins og þeirri baráttu sem fóstrur háðu á eigin for- sendum. Samningar opinberra starfsmanna voru lausir um s.l. áramót, en ekkert fór þó að hreyfast í samningamálum fyrr en í byrjun febrúar, þegar launanefnd sveitarfélaganna og hin ýmsu starfs- mannafélög gerðu svo nefndan rammasamning, þar sem kveðið var á um lágmarksinnröðun starfshópa í launaflokka. Síðan átti hvert félag að semja um endanlega innröðun og er því lokið víðast hvar. Ríki og borg voru ekki með í rammasamningnum, en Starfs- mannafélag ríkisins (SFR) og Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar (St. Rv.) eru tvö stærstu félögin innan BSRB og með stærstu láglaunahópana innan sinna dyra, auk fjölmargra fag- hópa. Þar hreyfðist ekkert fyrr en um miðjan marsmánuð, en þá samdi Reykjavíkurborg við litla hrifningu félagsmanna, sem höfðu gert kröfu um að færast nær launum á almennum vinnu- markaði. Samningurinn einkenndist m.a. af: 1) Lítilli heildarhækkun, en þess í stað var launatöflunni breytt og starfsaldursþrepum fækkað úr 8 í 6 þrep, á þann veg hækkuðu byrjunarlaun um 17% en síöan stiglækkandi og laun eftir 18 ára starf hækkaði aðeins um 4.3% — tæpur þriðjungur borgarstarfsmanna var kominn í efsta þrepiö og átti skv. því að fá þessi 4.3% og helmingur þess var verð- bótaþátturinn 1. mars. 2) Fjórir starfshópar áttu að fá sérstaka hækkun um tvo launa- flokka. Annars vegar fjöldauppsagnahóparnir, fóstrur og sjúkraliðar, og hins vegar gæslukonur og vagnstjórar. Þó var Ijóst að fóstrur og sjúkraliðar myndu ekki sætta sig viö þessa hækkun — meira þurfti að koma til eins og síðar kom á dag- inn. 3) Samningnum fylgdi bókun, þar sem kveðið var á um endur- röðun borgarstarfsmanna í launaflokka og sagt var að það væri loforð um svigrúm til hækkana — en ekki var gefið upp hversu mikið né til hverra. Sjúkraliðar sprengdu fjötrana Samningurinn var felldur með yfir 200 atkvæða mun og þar með tryggt að ríkisstarfsmenn fengju tækifæri til að gera betur. Óábyrgir spaugarar segja reyndar að Starfsmannafélag Reykja- víkurborgar sé alltaf prófsteinn á lélaga samninga — ef þeir fari ekki þar í gegn dugi þeir hvergi. Sú varð raunin. í kjölfar þessa fór Starfsmannafélag ríkisstofnana í samningaviðræður og í krafti uppsagna sjúkraliða náðist í gegn launahækkun sem sprengdi af sér fjötrana frá jólaföstusamningum ASÍ. Þessi árangur kvenna- hópanna er aö mínu mati óumdeilanlegur. Borgin undirritaði síðan ríkissamninginn að mestu óbreyttan og trúlega hefur verið þungt í borgarkörlunum beggja vegna borðs- ins — bæði með að láta ríkið ráða ferðinni og að auki var þetta staðfesting á réttmæti þess að fella fyrri samninginn. Reyndar höfðu fóstrur verið gerðar aö blóraböggli þá — og það útskýrir Er samið e.t.v. hvers vegna fóstrur voru fyrstar úti í seinni samningnum, fengu ekki launaflokkshækkun og voru þar með orðnar lægst launuðu fóstrur landsins. Slík var staðan, þegar borgarsamningurinn fór undir atkvæði í annað sinn á skömmum tíma. Atkvæðagreiðslan átti að standa í tvo daga samkvæmt venju og úrslit voru tvísýn. Brunaverðir og vagnstjórar höfðu hvatt til þess að þessi samningur yrði felldur og fóstrur höfðu — eins og áður lýst því yfir að þær mundu hvorki styðja samninginn né draga uppsagnir sínar til baka. Þá féll sprengjan. Á seinni degi umræddrar atkvæðagreiðslu samþykkti borgarráð — einhliða — að þeir kvennahópar skyldu fá sérstaka hækkun, fóstrum og þroskaþjálfurum var úthlutað tveimur launa- flokkum en gæslukonum aðeins einum. Starfsmannafélagið brást við af fullri hörku, yfirlýsti samþykkt- ina sem ósmekklega íhlutun í atkvæðagreiðsluna sem að lokum var ógilt af félagsfundi og öll kjörgögn brennd á báli. Fóstrur lýstu því hins vegar yfir að samþykktin hafi verið rétt skref — á röngum tíma og að auki of skammt gengið. Þennan áherslumun fóstra og félagsins má e.t.v. skýra með því að fóstrur hafa gegnum tíðina séð samskonar vinnubrögð. Þeim hafa ávalltv verið skömmtuð laun og sviðið sárt að borgaryfirvöld og starfsmannafélagið hafa verið samstíga í að halda forræði hópsins í sínum höndum. í hug- um fóstra skipti því ekki öllu máli hvort borgin stóð ein að sam- þykktinni eða hvort fulltrúi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar væri í myndinni — í hvorugu tilvikinu hefðu fóstrur verið spurðar ráða. Atkvæði voru loks greidd að nýju í þriðja sinn 27. og 28. aþríl og var samningurinn samþykktur með miklum meirihluta. Upp- sagnir fóstra stóðu þá enn og aðeins fáir dagar til 1. maí. Fóstrum ávallt skömmtuð iaun 28

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.