Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 40

Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 40
og 266 svaeöi eru auk þeirra á náttúruminjaskránni. Á Reykjavíkursvæöinu og næsta nágrenni þess eru friö- lýst 7 náttúruvætti, 3 friðlönd og 3 fólkvangar og 22 svæði eru auk þeirra á náttúruminjaskrá. í Aðalskipulagi Reykjavíkur 1984—2004, handriti í febrúar 1987 segir á bls. 124. ,,Það er stefna borgaryfir- valda aö Elliðaárdalurinn og fleiri slík svæði verði sett undir svokallaða borgarvernd. En borgarvernduð svæði eru þau kölluð sem borgarstjórn hefur samþykkt að friða vegna sérstæörar náttúru, landslags, sögu- minja, umhverfis eða útivistargildis. Þessum svæðum mun borgarstjórn leitast við að halda ósnortnum frá náttúrunnar hendi. í einstaka tilfellum getur borgar- stjórn þó leyft vissa starfsemi eða framkvæmdir sem hún telur tengjast eðli og hlutverki svæðanna og eru í þágu almennings.“ Tjörnin — Vatnsmýrin og Elliðaárdalur eru dæmi um svæði sem verða borgarvernduð. Þau eru bæði á nátt- úruminjaskrá, en hafa ekki verið friðlýst. Tjörnin og mest allt hennar mikilvæga fuglalíf á tilvist sina Vatnsmýrinni að þakka. Frá mýrinni streymir vatn til Tjarnarinnar og í gróðri hennar fela fuglarnir hreiður sín. Hugsið ykkur Reykjavik án Tjarnarinnar og fugl- anna þar og munið að fyrir örfáum árum lét flugmála- stjóri grafa skuröi í mýrina til að þurrka hana og garð- yrkjustjóri sagði að það gerði ekkert til, tilgangurinn væri bara sá að „slétta og fegra“ borgina okkar. Elliðaárdalnum hefur þegar verið breytt mjög mikið og allt í þágu almennings eða hvað? Árið 1920 var reist stifla við Árbæ sem setti hluta dalsins í kaf. Á 3. áratugn- um var stíflað við Elliðavatn og við það fór hluti Þing- ness, þar sem eru merkar fornminjar, í kaf. Á þeim 5. var reist vararafstöð við Elliðaár, heljarinnar bygging og Ijót, sem bíður eftir því allt árið að vera notuð einstaka sinnum í desember, annars aldrei. í kring um árið 1980 olli Höfðabakkabrúin nokkrum deilum, en hún reis, og ofar í dalnum hefur verið ákveðið að Ofanbyggðavegur fari þvert yfir dalinn og skeri Elliðavatn og Vatnsenda- hæð frá öðrum hluta svæðisins. Frá alda öðli hefur laxveiði verið mikil i Elliðaám og til eru sögur um að á síðustu öld hafi stundum veiðst mörg þúsund laxar á dag í ánum. Laxveiðimenn hafa fengið því framgengt undanfarin ár, að steypt er upp í aðra kvísl árinnar rétt fyrir neðan Höfðabakkabrúna til að veita öllu vatninu yfir í eystri kvísl árinnar. Við það hverf- ur undurfagur lítill foss, Kermóafoss, úr vestari kvísl- inni. Síðan um 1950 hefur skógrækt verið stunduð í Elliðaárdal. Tré eru nú að verða búin að þekjaallan dal- inn, hraun, jökulsorfnar klappir, votlendi, allt er þetta að breytast í skóg. Um leið hverfur í raun fjölbreytileiki svæðisins. Þannig mætti lengi telja. Væri ekki líka hægt að byggja þarna sjoppu í þágu almennings eða keiluhöll með þeim skilyrðum að þeir aðilar sem það gerðu greiddu rífleg aðstöðugjöld í borgarsjóð. Nei, án gam- ans. Væri ekki eðlilegt að áður en farið er út í einhvers konar framkvæmdir á þeim svæðum sem talin eru hafa náttúruverndargildi þá væri leitað álits hlutlauss aðila, s.s. Náttúruverndarráðs. Það finnst mér, en þér? Þá er líka óþarfi fyrir borgina að segja sig úr náttúruverndar- lögum við aðra hluta landsins. Eða eigum við kannski bara að stofna borgríki í landinu, grunnskólalögin, nátt- úruverndarlögin. . . hvað næst? Sigrún Helgadóttir 4 t Att þu von á gestum? Við bjóðum þrjár gerðir afiídýíu. Vogaídýfu m / kryddblöndu Vogaídýfu m / lauk Létta Vogaídýfu m/beikon sem eru jafnframt góðar sem sósur með öllumjnat VCKjA JDÝT'A VoqaB^** 40

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.