Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 14

Vera - 01.07.1987, Blaðsíða 14
Stelpur fæðast ekki „stelpur" Við fæðingu er ekki mikiil munur á stelpum og strákum. Þegar þau eru orðin fullorðin eru þau aftur á móti ólík, bæði hvað varðar hegðun, útlit og starfsval. Kynin gegna ólíkum hlutverkum í þjóðfélaginu, stelpurn- ar eru í störfum sem beinast að umönnun og þjónustu bæði inni á heimilunum og úti í þjóðfélaginu en strákarnir eru virkir í stjórnunarstörfum og við mótun samfélags- ins. Þessi munur á milli kynjanna er orðin okkur svo eðlilegur og þykir svo sjálfsagður að við tökum varla eftir honum og margir telja hann meðfæddan. En er hann það? Ástæðan fyrir því að stelpur og strákar verða svona ólík er að við búum í kynskiptu þjóðfélagi. Flest allt í þjóðfélaginu gerir ráð fyrir að kynin hafi ólík hlutverk. Þannig skiptir máli hvort maður er karlkyns eða kvenkyns þegar maður sækir um vinnu alveg eins og það skiptir máli hvort þú ert kaþólskur eða mótmælenda- trúar ef þú sækir um vinnu á norður-írlandi eða svartur eða hvítur ef þú sækir um vinnu í t.d. Bandaríkjunum. Strax eftir aö barn er fætt er byrjað (oftast ómeövitaö) að aölaga það aö því þjóðfélagi sem þaö á eftir aö búa í. Þess vegna eru stelpur og strákar alin upp á ólíkan máta. Stelpur læra aö rækta meö sér eiginleika sem hafa verið skilgreindir sem kvenlegir og strákar rækta meö sér eiginleika sem skilgreindir eru karllegir. Strax eftir fæðingu eru stelpurnar vaföar inn í bleik teppi og strák- arnir í blá teppi og þar meö er félagsmótunin hafin. FÉLAGSMÓTUN STELPNA OG STRÁKA Félagsmótun er hugtak sem notaö er yfir þá mótun, þaö nám sem á sér staö þegar barninu er kennt aö tileinka sér reglur og athæfi sem gilda í samfélaginu. Strax frá fæðingu er stelpum kennt aö þær eru öðruvísi en strákar og strákum kennt aö þeir eru öðruvísi en stelpur. Frá fæðingu er komið fram viö stelpur á ann- an hátt en stráka. Þeim eru gefin ólík leikföng og þau eru klædd á ólíkan máta. Stelpur eiga aö vera sætar og fínar í fallegum litum en strákar í dekkri litum og mega óhreinka sig meira. Alls staðar í þjóðfélagi okkar er ætlast til aö stelpan hagi sér samkvæmt því sem hefur verið skilgreint stelpulegt og strákurinn hagi sér samkvæmt því sem hefur verið skilgreint strákalegt. Ef barnið gerir þaö ekki er þaö áminnt af þeim fullorðnu og jafnvel skilið útundan af félögum. Sama hegðun hjá strákum og stelpum kalla fram ólík viðbrögö hjáþeim fullorönu. Til dæmisef lítil stúlkadetturog meiðirsig, fer aö gráta og hleypur til pabba, kyssir hann á meiddiö og huggar hana. Ef lítill drengur kemur grátandi er líklega sagt við hann ,,vertu nú sterkur drengur, hertu þig upp, ertu aö skæla út af þessu“ o.s.frv. Á sama hátt ef lítil stúlka leikur sér meö látum og hávaöa, keyrir bíl af miklum krafti þá er iðulega sagt viö hana ,,svona leika stelpur sér ekki“, ,,þú getur oröiö skítug“ eöa ,,er þetta nú dömulegt?“. Aftur á móti er brosað við stráknum sem 14

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.