Vera - 01.07.1987, Side 9
=SSBF=
Kate, Chris og Jo vid bláa hlidid. Ljósm.: b.b.
KONUNUM
farartækjum vitlaust", sögðu þær og bentu
á hrörlegan barnavagn sem þær geymdu
dótið sitt í. ,,Við höfum það fyrir sið að
borga ekki sektir og þvi eru margar
Greenham konur í fangelsum. Stundum láta
konur sig hverfa ef búið er að gefa út hand-
tökuheimild á þær. Þá vilja þær ekki að
opinberir aðilar viti hvar þær eru."
Afhverju borgið þið ekki sektir, eigið þið
ekki til peninga spurði Vera? „Við fáum
þeninga gefna til styrktar starfseminni.
Einnig sendir fólk okkur föt, mat, teppi og
fleira sem kemur sér vel. Við reynum að nota
peningana eins vel og hægt er og því sitja
margar konur þetta frekar af sér en borga.
Þær sem ekki treysta sér til að sitja í fangelsi
geta fengið peninga af bankareikningi sem
við höfum. Allir peningar sem við fáum
gefna eru settir á þennan bankareikning."
Veru langaði að vita hvernig starfsemin
fer fram, hvernig konurnar vinna saman og
spurði því þær Kate, Chris og Jo hvort
Greenham konur væru með skipulagða
starfsemi þarna. „Það er engin sérstök
skipulögð starfsemi héma", sögðu þær.
„Stundum ákveða konurnar við eitt hliðið
að halda fund og þá ganga þær á milli hlið-
anna og smala saman konum á fundinn. Á
fundum þessum eru síðan ákveðnar sérstak-
ar aðgerðir og þær samhæfðar en þeir gera
konum líka kleift að hittast og kynnast.
Stundum kemur fyrir að konur hittast hérna,
dvelja hér saman í ákveðinn tíma en fara síð-
an og sjást þá jafnvel aldrei aftur. Stundum
hafa þær samband áfram eftir að þær eru
farnar héðan, ferðast saman eða vinna sam-
an að ýmsum málefnum. Það búa margar
Greenham konur í Bristol og líka í nokkrum
hverfum í London, eins og Brixton og Stock-
well. Greenham konur eru allstaðar en þó
eru nokkrar konur sem sem búa hérna alltaf.
Þetta er heimilið þeirra. Aðrar konur búa
9