Vera - 01.07.1987, Side 42

Vera - 01.07.1987, Side 42
heföu haft áhuga á aö kynna sér málin þá heföu þeir einfaldlega getað lesiö stefnuskrána og séö þar hver áhersluatriðin eru. Dræmar undirtektir En víkjum þá að starfinu fyrstu vikurnar eftir kosning- ar, sem sumar Kvennalistakonur höföu ímyndaö sér aö yröi timi slökunar og samveru með fjölskyldunni. Þaö var nú ööru nær, Jón Baldvin bað um fund strax á sunnudeginum 26. apríl og ákveöiö var aö hitta hann á mánudagsmorgni til spjalls og einskis annars. Þessi ákvöröun var tekin á fyrsta stóra fundinum eftir kosn- ingar sem haldinn var á Hótel Vík aö kvöldi 26. apríl. Á fundinum meö Jóni Baldvini var skipst á stefnuskrám og nokkur málefni rædd. Jón haföi að vísu ákveðnar hugmyndir um hvaö gera skyldi næstu daga, en tillögur hans hluti dræmar undirtektir enda höföu þær sem hittu hann ekki umboð til að ákveöa eitt eða neitt á þessum spjallfundi. Á fyrsta Fimmfundinum á Víkinni, mánudaginn 27. apríl, sem ber þetta nafn vegna tímasetningar fundar- ins, var staðan rædd og þá leit út fyrir að forsetinn mundi fela einhverjum umboö til stjórnarmyndunar í þeirri viku. Inn á hina daglegu Fimmfundi bárust ýmis skilaboð frá fulltrúum annarra flokka og voru þau rædd og afstaða mótuð. Fundir þessir vöktu töluverða athygli og vildu fjölmiölamenn ólmir taka myndir og fylgjast meö. Ákveðið var aö þaö sem fram færi á þessum fu nd- um væri trúnaðarmál enda var þar verið aö móta vinnu- brögö og ræöa hvaöa leiðir væru heillavænlegastar til árangurs og til aö nýta þann meðbyr sem Kvennalistinn og málefni hans heföu fengiö í kosningunum. Fljótlega var farið að vinna aö útfærslu á málefna- grundvelli fyrir væntanlegar stjórnarmyndunarviöræö- ur og tóku margar konur þátt í því starfi. Unniö var dag- lega frá því snemma á morgnana og fram á kvöld að málefnagrundvellinum og skipti þá ekki máli hvort var virkur dagur eða helgi. Eins og fram hefur komiö veltu margir fyrir sér skilyröum Kvennalistans i stjórnarmynd- unarviöræöunum. Þaö er engin launung og hefur kom- iö fram þegar þetta er skrifað að bætt kjör láglaunafólks og elli- og örorkulífeyrisþega, eru meðal megináherlsu- atriða Kvennalistans. Einnig má nefna dagvistunarmál, lánamál námsmanna, úrbætur í skólamálum, um- hverfismál, húsnæöismál og friðar- og utanrikismál. Hér er aðeins stiklað á stóru en það eru mörg mál sem mikilvægt er aö gera stórátak í. Þaö var því lítiö um frí eftir kosningar eins og margar höföu leyft sér aö dreyma um. En Kvennalistakonur vildu vanda vinnuna og undirbúning stjórnarmyndunarviöræöna þannig að það hefur veriö nóg aö gera. Þessi vinna á eflaust eftir aö nýtast okkur vel þegar þinghald hefst í haust hvort sem af ríkisstjórnarsamstarfi veröur eða ekki. En þegar þetta er skrifað þá er óljóst hvaöa ríkisstjórn kemur til meö aö veröa mynduð. Tíu dögum eftir kosningar boðaöi forseti fulltrúa stjórnmálaflokkanna á sinn fund og þangað fóru frá Kvennalista þær Kristín Karlsdóttir (Austurlandi) og Guðrún Agnarsdóttir (R.vík). Þetta var í fyrsta sinn sem forsetinn heimilar tveim fulltrúum einhverra stjórnmála- samtaka að koma á sinn fund í þessum erindagjöröum. Það þótti nauðsynlegt aö fela einhverjum ákveönum hópi umboð til aö taka þátt í stjórnarmyndunarviðræö- um og varð þingflokkurinn fyrir valinu. Þaö er ekki þar meö sagt aö þingflokkurinn sé einráöur um hvaö gert er í viöræöunum, heldur á hann aö bera upp og kynna mál á Fimmfundunum. Auk þess er gert ráð fyrir að kallaöar séu til konur eftir því sem nauðsynlegt þykir, þegar og ef verður farið i raunverulegar stjórnarmynd- unarviöræður. Ekki má gleyma því aö fundir þingflokks- ins hafa verið og eru opnir Kvennalistakonum þannig aö ef þær hafa tök á þá er sjálfsagt aö mæta.

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.