Vera - 01.07.1987, Side 44
íminist glee: Kristmundsdottir flanked by
riking
ake the helm
Fjölmiðlar fyrir
og eftir kosningar
Áhugi fjölmiðla á Kvennalistanum hefur líklega
aldrei veriö meiri en dagana eftir kosningar. ís-
lensku fjölmiölarnir hafa sérstaklega áhuga á aö vita
um næstu skref okkar og skilyrði fyrir ríkisstjórnar-
myndun eins og kom fram hér aö framan. Þaö er af
sem áður var aö viö þurftum yfirleitt að leggja okkur
sérstaklega fram um aö koma aö smávægilegum
upplýsingum um hvaö var að gerast hjá Kvennalist-
anum. Til dæmis má nefna aö þegar hin ítarlega
stefnuskrá okkar var kynnt á blaðamannafundi en í
henni eru raunveruleg svör viö öllum spurningum
fréttámanna, þá mættu aðeins þrír fréttamenn. Mik-
iö var gengið eftir einum fjölmiðlinum og Kvenna-
listakonur voru tilbúnar til aö mæta í viðtal hvenær
sem var, en ekkert varö af viötalinu. Nú eru þeir hins
vegar óhressir ef viö svörum ekki hverju sem þeir
spyrja um samstundis og eiga erfitt meö aö skilja aö
viö þurfum tíma til aö vinna aö okkar málum. Ekki er
hér verið að kvarta undan viöbrögöum fjölmiöla viö
niöurstööum kosninganna, hins vegar var þetta ný
reynsla fyrir margar Kvennalistakonur og setti þaö
sitt mark á umræður a.m.k. fyrstu dagana eftir kosn-
ingar. Erlendir fjölmiðlar hafa líka sýnt Kvennalistan-
um mikinn áhuga eftir kosningar, en þeir spyrja oft-
ast annars konar spurninga en þeir íslensku. Samt
hafa sumir veriö búnir aö kynna sér málin mjög vel.
Fróttir af góöum árangri Kvennalistans hafa borist
víöa t.d. má nefna Japan, Ástralíu, Bandaríkin,
Kanada, Ítalíu, Holland, Spán, Bretland, Norður-
löndin öll og svo mætti lengi telja.
Eitt er þaö sem viö höfum þurft aö gæta sérstak-
lega að í fjölmiðlafárinu svokallaöa og þaö er aö
enginn okkar fái þann vafasama stimpil að teljast
formaður Kvennalistans. Það hefur stundum tekið
svolítinn tíma fyrir erlendu fjölmiðlamennina aö átta
sig á þessu, en auk þess hafa íslensku fjölmiöla-
mennirnir allt fram á þennan dag gjarnan viljaö finna
út einhvern formann innan okkar raöa. Þaö hefur
þeim ekki tekist og þá meöal annars vegna þess
hversu vel þess hefur veriö gætt aö dreifa hlutverk-
um í eftirleik kosninganna.
Heillaóskaskeyti og kærar kveðjur víða aö úr
heiminum hafa borist til Kvennalistans og það er
greinilegt aö augu margra kvenna beinast aö okkur
og því hvernig okkur gengur í náinni framtíð.
Sigrún Jónsdóttir
abendi
R4ÐGJÖF OG FAÐNINGAR
STARFSYAL ER EIN STÆRSTA ÁKVÖRÐUNIN SEM ÞÚ TEKUR
í LÍFINU. - Vandaðu þvi valið.
Eru oröin(n) leið(ur) é starfinu eba néminu, hefur þú é ti Ifínningunni að þao
sé til eitthvað annað sem henti þér betur, ón þess ao vera viss urn hvað það
er?
Stendur þú ó tímamótum í lííinu, þarftu að taka ákvörðun um nóms- eðe
starfsval, val sem ó eftir að hafa veruleg áhrif ó allt þitt líf?
Hefur þú kannske ó tilfinningunni ab þú hafir enga hæfileika og hafir því
enga valrnöguleika?
Eða langar þig bara til að fá staðfestingu ó því að þú hafir valið rétt?
Ef svarið er jó, leitaðu þá aðstoðar Ábendis s.f.
Ábendi s.f.
Ágústa Gunnarsdóttir, sálfræðingur
Nanna Christiansen, ráðgjafi
Þórunn H. Felixdóttir, ráðgjafi
Ábendi s.f, Engjateigö 105 Reykjavik, sfrni 91-689099. Nnr. 571186-2099.
44