Vera - 01.03.1988, Blaðsíða 2

Vera - 01.03.1988, Blaðsíða 2
í þessu tölublaði er Vera aðfjalla um hlutverk karla í kvenfrelsisbar- áttunni. Þessi umfjöllun er í framhaldi af umfjöllun Veru í síðasta tölu- blaði, um niðurstöður könnunar Share Hite í Bandaríkjunum, um af- stöðu kvenna til karla og um stöðu kvenfrelsisbaráttunnar í dag. Ef marka má niðurstöður Share Hite og þær konur sem Vera ræddi við eru þær orðnar þreyttar á körlunum sínum, segja þá skorta tilfinning- ar og vera haldna valdafíkn. Allt bendir til þess að nú þegar konur eru að víkka út sjóndeildarhring sinn og starfsvettvang að þær sitji uppi með gamaldags karla sem ekki hafa áhuga á að gera slíkt hið sama. Þeir virðast ekki hafa áhuga á að kynnast störfum kvenna á sama hátt og þær hafa á störfum þeirra. Ef viðhorf ráðamanna í íslensku þjóðfélagi í dag endurspegla við- horf allra karla til kvenna og baráttu þeirra, má vel skilja óánægju kvenna. Ráðamönnum í dag finnst vænlegra að eyöa peningum okkar í að byggja ráðhús, veitingastað sem snýst upp á hitaveitutönkum og leka flugstöðvarbyggingu en að nota þá til uppbyggingar dagvistar- heimila eða í að hækka lágu launin sem hvortveggja myndu styrkja stöðu kvenna í þessu þjóðfélagi. Ef tekið er mið af þróun síðustu ára hefur viðnám karlanna við kvenfrelsisbaráttu aukist og staða kvenna hefur versnað. Samt er markmið kvenfrelsisbaráttunnar betra þjóðfé- lag, þar sem konur og karlar standa jafnfætis og vinna að umönnun fjölskyldunnar og mótun þjóðmála samhliða og jafnábyrg. Kvenfrels- isbaráttan er því ekki einkamál kvenna heldur líka barátta sem varðar karla og ætti að skipta þá máli. Þannig snýst kvenfrelsisbaráttan ekki um konur einvörðungu. Hún fjallar um samskipti, samskipti kvenna og karla. Hún hefst í persónulegu sambandi karls og konu og ef kona og karl geta ekki veriö jafningjar í einkalífinu er vafamál hvort þau geti það úti í þjóðfélaginu. Vegna þessa telur Vera tímabært að spyrja karla um viðhorf þeirra til kvenfrelsisbaráttunnar og til þessara óánægju- radda sem heyrast meðal kvenna. Vera kom að máli við nokkra karla á mismunandi aldri og fékk þá til að ræða um kvenfrelsisbaráttuna og efni síðustu Veru. Hvað finnst þeim um óánægjuraddir kvenna? Eru konur að gefast upp á þeim? Sitja konur uppi með gamaldags karla sem ekki vilja koma á móts við þær í kvenfrelsisbaráttunni? Eru þeir lokaðir tilfinningalega? Vilja þeir ekkert gefa eftir af stöðu sinni? Hafa þeir ekki áhuga á að sinna börnum sínum? Þetta eru m.a. þær spurningar sem Vera spyr í þessu töiublaði. bb VERA 1/1988 - 7. árg. Útgefendur: Kvennaframboðið í Reykjavík og samtök um Kvennalista. Sími: 22188 í VERU NÚNA: 3— 4 Lesendabréf 5 Hvað get ég gert? 6— 8 Verið fullkomnir Helga Sigurjónsdóttir skrifar 8 Konan og kvenímyndin Ljóö eftir Ragnhildi Ófeigsdóttur 9—15 Hlutverk karla í kvenfrelsis- baráttu Rætt viö fjóra karlmenn 16—20 Kvennasam/and/staðan Valgeröur Bjarnadóttir skrifar 22—23 Héðan og þaðan 24—26 Hafði ekki meiri áhuga á rokki en hver annar Rætt viö Andreu Gylfadóttur 27 Konur og eyöni 28—30 Ég var komin til aö skemmta mér Smásaga eftir Stellu Hauksdóttur 29—30 Héðan og þaðan 31—32 Heimsókn hjá Ms. 33 Ljóð 34—37 Borgarmál 38—41 Þingmál 42—46 Um bækur 47 Myndasaga Mynd á forsíöu: Anna Gunnlaugs., Úr myndaröðinni „7 dagar". Akryl á masonit. Anna Gunnlaugsdóttir stundaöi nám í Myndlista og handíðaskóla íslands 1974—1978. Nám I myndlistaskóla í Paris 1978—1979, og M.H.i. 1981 — 1983. Einkasýning I Galleri Borg I september 1987. Sýning á myndröö- inni ,,7 dagar", stóð yfir í 7 daga í Gall- erí Borg, janúar 1988. Ritnefnd: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Kristín Blöndal Guðrún Ögmundsdóttir Ragnhildur Eggertsdóttir Brynhildur Flóvenz Elin Garðarsdóttir Bergljót Baldursdóttir Sigrún Hjartardóttir Starfsmaður Veru: G. Halla Jónsdóttir Útlit: Kicki Ábyrgð: Elin Garöarsdóttir Fjármál: Ragnhildur Eggertsdóttir Dreifing og auglýsingar: Stella Hauksdóttir Setning og filmuvinna: Prentþjónustan hf. Prentun: Prentberg Bókband: Félagsbókbandið Ath. Greinar I Veru eru birtar á ábyrgð höfunda sinna og eru ekki endilega stefna útgefenda. 2

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.