Vera - 01.03.1988, Blaðsíða 17

Vera - 01.03.1988, Blaðsíða 17
/ /Z' Þriðja víddin Árið 1981 fæddistáAkureyri nýkvennasamstaða, Kvennafram- boöið, hópur ólíkra kvenna, sem áttu þó sameiginleg grundvallar- viðhorf. Ýmsum þótti nauðsynlegt að koma okkur fyrir á skalanum ,,hægri — miðja — vinstri", en okkur þótti óhugsandi að við gæt- um átt heima á þeirri reglustiku. Við kölluðum lifsviðhorf okkar „Þriðju víddina“. Sama ár skrifaði Marilyn nokkur Ferguson, rithöfundur og rit- stýra vestur í Bandaríkjunum, bók sem hún kallar „The Aquarian Conspiracy" eða ,,samsæri/öndun vatnsberanna“. Bókin fjallar um hina nýju lifssýn, birtunasem mann/kvenkynið er nú óðum að uppgötva, og sem skiptir sköpum ef skepnur jarðar vilja eiga sér einhverja framtíð. Hún kallar það ,,conspiracy“, samsæri eðasamöndun (upphafleg merking orðsins), af þvi að orðið conspire á ensku þýðir í raun aö anda saman, og það segir hún börn jarðarinnar gera í auknum mæli, í nýja átt. Og hún kallar þau ,,vatnsbera“ eða ,,Aquarians“ vegna þess að spádómurinn segir að eftir myrka öld ófriðar, öld fiskanna, komi öld vatnsberans, björt og kærleiksrík, þar sem hinn brennandi eldur og ógurlegi þorsti verður slökktur. í bókinni vitnar hún i fjölda vísindakvenna/karla, skilgreinda og óskilgreinda hópa „vatnsbera", bækur og greinar, sem fjalla m.a. um „þriðju leiðina" eða „þriðju víddina'1, sem hvorki er ti hægri eða vinstri, hvorki aðferð né stefna, heldur samhengi (context). Ég held að við Akureyrarkonurnar höfum ekki skiliö til fulls árið 1981 hvað þriðja viddin er, en við vorum meðal þeirra sem höfðu eygt skimuna. Viö sátum i dimmri gjótu og sáum Ijósið sem féll inn, leiðina út..., og nú 7 árum síðar hafa svo ótal fleiri séð Ijósið, einkum konur, en líka karlar. Við gerðum okkur heldur ekki grein fyrir því þá, að við vorum og erum þátttakendur í hinu mikla al- heimssamsæri, en það erum við einmitt. Ný andstaða Þetta er hið stórkostlega sem ég finn gerast, en svo er það hin hliðin. Ný andstaða hefur skotið upp kollinum. Annars vegar er það sú hindrun sem býr í þeim hópi fólks sem virðist ekkert hugsa, sem svamlar um niðri í gjótunni, með lokuð augun. Þau tala og tala án þess að segja nokkurn skapaðan hlut, og þau huga hvorki að fortíð sinni né framtíð. Hins vegar er Kerfið; i hópi stjórnmálamanna, embættismanna, vinnuveitenda og verkalýðsforustu er fólk sem mér finnst stund- um að hafi skilið eitthvað. Fólk sem ég ræði við um mikilvægi jafn- réttisstarfsins, og sem tekur jákvætt i allt sem ég segi. Þau eru fá sem tala opinskátt gegn jafnrétti, þau hafa lært að það „gerir maður bara ekki“. En málið er látið biða, það er grafiö, ekkert gert... eða því er um- snúið og það sem upphaflega var ætlað sem aðgerð i þágu kvenna, er orðið sparnaðaraðgerð eða virkjunarátak, tilgangs- 17

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.