Vera - 01.03.1988, Blaðsíða 36
S'M/ 681240
^utunibo^
‘ ReyKJAVÍK
VILTU BÚA í VERKÓ?
Húsnæðismál hér á landi verða að
teljast til eilífðarmálanna. Ár eftir ár
og áratug eftir áratug er verið að
glíma við það hvernig eigi að koma
þaki yfir höfuð landsmanna. Eigna-
stefnan hefur verið alls ráðandi og sú
hugsjón að allir hljóti að þrá að EIGA
steinsteypu sem hlífir þeim fyrir veðri
og vindum. Eins og flestum sé ekki
sama bara ef þeir búa við öryggi.
í tæplega 60 ár hefur veriö til félagslegt kerfi
viö hlið sjálfseignastefnunnar, hinir svokölluöu
verkamannabústaðir. Þeir voru baráttumál
verkalýöshreyfingarinnar og áttu aö stuðla aö
því aö koma fátæku fólki upp úr kjöllurum og
ofan úr risum í sómasamlegt húsnæöi.
Félagslega kerfiö byggir á þeirri staöreynd aö
þaö er langt í frá aö allir ráöi viö kaup á frjálsum
markaöi. Því þurfi aö bjóöa upp á betri kjör.
Einnig liggur aö baki sú hugsjón aö ööru vísi eigi
aö standa aö málum, en þannig aö fá hverjum
og einum hamar í hönd og segja: byggöu.
í allri þeirri umræöu sem fariö hefur fram um
húsnæöismálin hefur varla veriö minnst á
verkamannabústaöina. Þaö fólk sem þar slæst
um hverja einustu íbúö á sér fáa málsvara og
mætti verkalýðshreyfingin huga betur aö
þessum hópi í framtíöinni í staö þess aö semja
t.d. um lækkun á bílverði.
Ég ætla hér á eftir aö draga upp mynd af
ástandi mála í Reykjavík eins og þaö kemur mér
fyrir sjónir eftir eins og hálfs árs setu í stjórn
Verkamannabústaðanna í Reykjavík.
Til aö fá íbúö í verkamannabústaö þarf aö
uppfylla ákveðin skilyröi. Fólk þarf aö hafa
lögheimili í Reykjavík, umsækjendur mega ekki
eiga íbúö fyrir og til aö koma til greina mega þeir
ekki fara yfir ákveöiö tekjumark. Þessar reglur
takmarka mjög hópinn sem kemur til greina, og
skapar vissa erfiðleika, því frá tekjumarkinu og
aö því aö geta keypt á frjálsum markaöi er bil
sem hvergi er brúaö. Sá hópur sem þaö fyllir á
engra kosta völ.
Á síöasta ári voru umsækjendur 760 talsins en
260 íbúöir til úthlutunar (þess ber aö geta aö inn
í þessum tölum er fólk sem sækir um flutning
innan kerfisins þ.e. til aö komast í annaö hverfi
eöa til aö stækka/minnka viö sig alls 100 nú í ár).
Nú rétt í þann mund sem úthlutunarvinna er aö
hefjast liggja fyrir 845 umsóknir en íbúöir til
úthlutunar eru um þaö bil 160 sem sagt 100
36