Vera - 01.03.1988, Blaðsíða 22

Vera - 01.03.1988, Blaðsíða 22
„Konur sætta sig ekki lengur viö það að horfa upp á eða láta bjóða sér þær kennsluaðferðir sem hafa viðgengist og EIGA að vera fyrir allar manneskjur, en virðast miðast við og taka tillit til reynslu karlmanna og stráka, Þetta verður sífellt aug- Ijósara. Því hefur víða, m.a. á Norðurlöndunum verið unnið að verkefnum og könnunum, þar sem gerðar eru tilraunir með nýjar og manneskjulegri kennsluaðferðir, þar sem gengið er út frá reynslu, óskum og kröfum kvenna." Þessi við- horf liggja að baki þema frétta- bréfs BRYT samnorræna jafn- réttisverkefnisins Brjótum múrana, í október. „Kvenna- kennsla" er yfirskrift þemans og birtir fréttabréfið fjölda mjög athyglisverðra greina um þetta efni. Meðal þeirra má nefna eina um gagnrýni á kennslustefnu vinnumarkaðar- ins, aðra um karlkyns kennara og kvennakennslu, enn eina um kynskipta kennslu og er þá ekki allt talið, Ýmist annað efni er í fréttabréfinu, einkum af störfum og verkefnum BRYT, ráðstefnur sem á döfinni eru o.fl. Fréttabréfið er í tfmarits- formi og hið myndarlegasta og kemur út 2svar til 3svar á ári. BRYT fór af stað árið 1985 og er fjögurra ára verkefni Nor- rænu ráðherranefndarinnar. Tilgangurinn er að þróa og prófa aöferðir til að brjóta nið- 22 ur kynskiptingu á vinnumark- aðnum. Annar tilgangur BRYT er að norrænu þjóðirnar skipt- ist á reynslu en það gerist ein- mitt gegn um fréttabréfið og með skýrslum og ráðstefnum. Vert er að benda áhugafólki um jafnrétti og kvenfrelsi á frétta- bréfið en það er hægt að fá ókeypis á skrifstofu BRYT hér- lendis, Kaupvangi v/Mýrarveg á Akureyri. STminn er (96) 26845. Það er Valgerður Bjarnadóttir sem er verkefnis- freyja hérá landi en auk hennar starfar Guðrún HallgrTmsdóttir sem ritari á skrifstofu BRYT á Akureyri og það eru jafnh-amt þær sem þýða og sjá um ís- lenska útgáfu fréttabréfsins. Hvaö er aö gerast hjabrjotummúrana? Finnland. Þar er BRYT verkefnið að koma af stað tveggja ára nám- skeiði um jákvæða mismunun fyrir konur, með þeim starfs- mönnum ráðuneytisins sem sjá um starfsmenntunarmál. Einn fulltrúi frá hverju vinnu- málasvæði tekur þátt T nám- skeiðinu. Það hófst með undir- búningi fyrir ráðstefnu BRYT verkefnisins T Hásselby T des- ember s.l., en þátttakendur fóru saman þangað. Nám- skeiðið verður sföan uppbyggt af þremur námsstefnum á ári og verkefnum á milli þeirra. Noregur. Stelpur T karlastörfum — er BRYT á réttri leið? 2500 stelpur og 2500 strák- ar sem fóru í iðnnám fyrir 5 og 10 árum verða spurð um náms- og starfsferil sinn til dagsins Tdag. Könnunin veröur gerð af SSB (norsku hagstof- unni) T maT 1988. Með könnun- inni verða einnig unglingar sem tóku þátt T aðgerðum vinnu- málayfirvalda sem miðuðu að þvT að fá stelpur til að velja óhefðbundin störf. Svfþjóð. Þar er veriö að skipuleggja starfsmæðrakerfi fyrir konur sem eru að fara útí4ra ára nám á tæknibraut. Konur í atvinnu- ITfinu sem hafa þá menntun sem konurnar eru að afla sér, veita 2—3 konum aðstoð sTna einu sinni á önn. Þann 27. október hittu konurnar starfs- mæðurnar. Auk þess hittast þær allar að kvöldlagi einu sinni á önn. í haust var það þann 18. nóvember. ísland. Á íslandi hefur meðal annars verið kennaranámskeið um stöðu kynjanna T skólum. Grunnskólunum á Akureyri var boðið að senda 3—5 kenn- ara á 216 dags námskeið T nóv- ember. Þaö var Menntamála- ráðuneytið, Endurmenntunar- deild K.H.Í. og Brjótum múrana sem stóðu að námskeiðinu. 14 kennarar tóku þátt. Danmörk. Meðal þess sem þar hefur verið bryddað upp á eru nám- skeið f fyrirtækjarekstri fyrir KONUR HÓPAST TIL OSLO Um mánaðarmótin júlT— ágúst munu þúsundir nor- rænna kvenna fylla götur, tjöld, sali og garða Oslóborg- ar. Þar verður haldin mikil kvennaráðstefna sem hlotið hefur heitið Nordisk forum. Á kvennaráðstefnu Samein- uðu þjóðanna sem haldin var T Narobi T Kenýa á lokaári kvennaáratugsins 1985, var ákveðið að skora á konur T ýmsum heimshlutum að halda verkinu áfram og hittast á minni ráðstefnum. Norður- landakonur eru ekki vanar að láta sitt eftir liggja og nú T sumar verður látið til skarar skríða. Á Nordisk forum verður allt mögulegt á dagskrá sem snertir ITf og starf kvenna. Þar verður rætt um konur og verkalýðsmál. launamálin, konur. Þetta eru þrenns konar námskeið, öll helgarnámskeið: — Stutt 20 tTma „á ég/á ég ekki" námskeið. — Kynningarnámskeið 80 tfmar. — Framhaldsnámskeið 120 tfmar. 23 konur luku kynningar- námskeiði fyrri hluta árs 1987. Af þeim stofnuðu 6 fyrirtæki, 10 eru að vinna að stofnun, 4 eru óákveðnar, en 3 eru hættar við. Kynningarnámskeiðin eru á vegum Teknologisk Institut (Iðntæknistofnun), sem mun gefa út skýrslu um fyrsta nám- skeiðið T byrjun árs 1988. Fyrirtækjanámskeiðin halda áfram 1988 og 1989. BRYT fylgist með þátttakendunum allan tfmann. Þessar fréttir eru meðal þess sem fram kemur T nýjasta fréttabréfi norræna BRYT verkefnisins. vinnuaðbúnað, þar verður starfandi friðartjald þar sem allar hliðar friðarmálanna verða ræddar og settar fram tillögur sem varða framtTðina. Hvers kyns listir verða T há- vegum hafðar, fyrirlestrar verða fluttir og erlendar merkiskonur munu koma T heimsókn. Þar má t.d. nefna lækninn Helen Caldicott sem er heimsfræg vegna starfa sinna að friöarmálum. Von mun vera á Isabelle Allende og þannig mætti lengi telja. FortTð — nútTð og framtTð verða skoðaðar frá ýmsum hliðum og eins og nærri má geta verður glatt á hjalla. Ekki mun vanta söng og dans. Frá þvl T haust hafa hópar Tslenskra kvenna unnið að undirbúningi að hálfu íslands. Búist er við þátttöku hundruða íslenskra kvenna en það fer væntanlega nokkuö eftir kostnaði hver þátttakan verður. Ef ÞÚ hefur áhuga geturðu haft samband við verkalýðsfélagið þitt (þau eru mörg hver með í ráðum) eða fengið upplýsingar hjá Guðrúnu Ágústsdóttur starfs- manni Nordisk fórum hér en hún hefur aðsetur á skrifstofu Jafnféttisráðs. Sjáumst í Osló T sumar. K. Ástg.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.