Vera - 01.03.1988, Blaðsíða 5

Vera - 01.03.1988, Blaðsíða 5
Við Verukonur höfum fengiö spurningar víös vegar að, um hin margvíslegustu málefni, t.d. lög- fræðileg og félagsfræðileg vanda- mál og ákváðum því að tími væri til kominn, að taka aftur upp þá þjón- ustu að leita svara fyrir lesendur við spurningum sem upp kunna að koma. Hægt er að hringja í okkur með spurningar í síma: 22188 eða senda bréf til Veru, Vesturgötu 3 (Hlaðvarpa) 101, eða box 1685 Reykjavík. Fyrri spurningunni svaraði Vil- borg Hauksdóttlr hjá Trygginga- stofnun ríkisins en hinni svöruðu Stella Jóhannsdóttir hjá Félagi ein- stæðra foreldra og Áslaug Þórar- insdóttir hjá Kvennaráðgjöfinni. Kæra Vera! Um leið og ég þakka frábært blað langar mig að spyrja ykkur hvernig þetta er hugsað með nýju fæðingarlöggjöfina, lenda þessar greiðslur á atvinnurekendum? Ég spyr vegna þess að ég er ófrisk og var rekin á þeim forsendum að yfirmaður minn taldi sig ekki getastaðið undir þessum greiðslum. Með von um góð svör. Bestu kveðjur. S.G. Svarið frá Vilborgu er svo hljóðandi: Ekki er heimilt að segja barnshafandi konu upp störfum, ein- göngu á þeim forsendum að hún sé ófrísk. Samkvæmt al- mannatryggingalöggjöfinni sem var i gildi til 31. des. 1987 var ákvæöi um að óheimilt væri að segja konum upp á þessum for- sendum nema ,,gildar og knýjandi ástæður“ væru fyrir hendi og sama klásúla er í nýjum lögum um fæðingarorlof, nema hvað þar heitir þaö ,,nema gildar ástæður“ séu fyrir hendi. Hægt er að höfða mál á hendur atvinnurekendum, ef öruggt er að ástæða uppsagnar sé sú að kona er barnshafandi eða vegna fæðingarorlofs foreldra og skal við ákvörðun bóta af þeim sökum taka mið af ráðningartíma starfsmanns. Rikis- starfsmenn og bankamenn fá laun á meðan á fæðingarorlofi stendur, en aðrirfá greitt úrlífeyristryggingum sem Ríkissjóður og atvinnurekendur bera sameiginlegan kostnað af, sam- kvæmt 20 gr. laga um almannatryggingar. Vera vonar að þetta svar hjálpi þér eitthvað, en ef ekki þá er þér guðvelkomið að hafa samband aftur. Með bestu kveðjum. Ritnefnd Veru. Elsku besta Vera! Ég er einstæð móðir með 3 börn á framfæri og langar að leita upplýsinga um hvort fyrrverandi eiginmaður minn hafi engar framfærsluskyldur viö börnin fyrir utan meðlag? Ég er með barn í menntaskóla (16 ára) annað í grunnskóla (11 ára) og eitt á dagheimili (5 ára). Öll þurfa þau sitt, en endar hjá mér ná ekki saman, þrátt fyrir tvöfalda vinnu og þarf ég því oft að neita börnunum mínum um eitt og annað sem sjálfsagt Þykir að veita börnum sínum. Sem dæmi má nefna: tónlistarnám, skíði, skautar, danskennsla, tískufatnaður og fleira. Á honum að líðast að spóka sig ábyrgðarlaus á meðan? Þakka gott blað. Einstæð og þreytt. Svarið frá Stellu var svo hljóðandi: Það er heimild i barnalögum sem þér gæti nýst i þessu sambandi, sem hljóð- ar svona: 19. gr. Barnalaga. Heimilt er að úrskurða framfærsluskyldan (með- lagsskyldan) aðilja til að inna af hendi sérstök framlög vegna útgjalda við skírn barns, fermingu, vegna sjúkdóms eða greftrunar eða aföðru sérstöku til- efni. Framlög samkvæmt 1. málsgrein verða því aðeins úrskurðuð, að krafa um það sé uppi höfð við valdsmann innan þriggja mánaða frá þvi, að svara varð til útgjalda, nema eðlileg ástæða hafi verið til að biða með slíka kröfu. Síðan sagði Stella,: En við verðum að horfast i augu við það að löggjafarvald- iö ræður ekki siðferði fólks og i flestum tilfellum verða foreldrar sem forræöi hafa að reyna að höfða til hins betri manns þess sem við er að eiga og gengur það auðvitað misjafnlega. Ég veit þó aö þessi lagagrein er mikið not- uð I sambandi við fermingar, dýrar tannviögeröir og þess háttar. Leita skal til Dómsmálaráðuneytis með slikar kröfur. Og Áslaug bætti við: Þú getur jafnframt farið fram á að meðlagsúrskurði verði breytt, eða stað- festum samningi um framfærslueyri ef rökstudd beiðni kemur fram þar um. Þetta kemur fram i 20. og 22. gr. barna- laga og hljóðar svo: 20. gr. Valdsmaður getur breytt meðlagsúrskurði, ef rök- studd beiðni kemur fram um það, enda sé sýnt fram á, að hagir foreldra eða barns hafi breyst sbr. og 24. gr. Ákvörðun um framfærslueyri, sem eindagaður er, áður en beiðni er uppi höfð verður þó ekki breytt, nema alveg sérstakar ástæður leiði til þess, og al- mennt ekki lengra aftur i timann en eitt ár, frá því að beiðni var sett fram. 22. gr. Staðfestur samningur um framfærslueyri, sbr. 21. gr. er því ekki til fyrirstöðu, að valdsmaður skipi máli annan veg en samningur kveður á um, enda telji hann að aðstæður hafi breyst verulega eða samningur gangi i ber- högg við þarfir barns. Þessar kröfur má leggja fram í Dóms- málaráðuneyti og vona ég að þú hafir erindi sem erfiði. Það vonum við lika og sendum þér okkar bestu kveðjur með von um að úr rætist. Ritnefnd Veru. 5

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.