Vera - 01.03.1988, Qupperneq 19

Vera - 01.03.1988, Qupperneq 19
þeir sjá í kvennakerfinu möguleika, sem vel væri hægt aö nýta ef þaö verðuraðlagað þeirra hugmyndum. Þeir segja: ,,Kæru systur, við skulum breyta þjóðfélaginu, saman. En vissum reglum verð- um við að hlýta“. Mitt svar er: ,,Það eru einmitt þessar reglur, — sem við þekkjum öll, en karlar best —, reglur sem byggja á þeirri skoðun að veruleikinn sé einn og óbreytanlegur, sem standa í vegi fyrir því að þær kerfisbreytingar sem við konur viljum, nái fram að ganga“. Valið/afneitunin Konur eru auðvitað líka hræddar við að fe.'la núverandi kerfi. Einhvers staðar í undirmeðvitund okkar allra, býr hræðslan við að heyra hvergi til. Við konur lifum í jaðri kerfis sem karlar eru hús- bændur í og hafa lagað sig að, og karlar hafa það gott. Eða hvað? Ein leið til að hafa það gott er einfaldlega að laga sig að þeirra kerfi, og um leið að afneita sínu eigin. Þessa leið hefur fjöldi kvenna valið á síðustu áratugum og gera enn. Aðrar konur sjá að þær hvorki geta né vilja aðlaga sig að kerfi karlanna, kannski vegna þess að þær eiga börn og börn eru óvel- komin í karlakerfinu, kannski eru þær ekki nógu ,,sterkar“ eða rökfastar, kannski er það eitthvað annað. Þess vegna velja þær að vera um kyrrt í sínu kerfi, og afneita karlakerfinu fyrir sína hönd og jafnvel annarra kvenna einnig. En svo eru konur, sívaxandi og sífellt öflugri hópur, sem hefur að vissu marki aðlagast karlakerfinu, og vill gjarna eiga tilkall til þess, en þær vilja ekki þurfa að afsala sér gæðum kvennakerfis- ins og kvennasamstöðunnar. Að prjóna kerfi En þessi krafa er ekki einföld, eöa án átaka. Okkur finnst margt gott í karlakerfinu, karlar vinna að og hafa vit á merkilegum og e.t.v. nauðsynlegum þáttum í tilveru okkar. En margt sem þeir gera og stefna að er ónauðsynlegt, ómerkilegt og því miður stórhættu- legt á stundum. Við finnum að ýmislegt sem við lítum á sem hið raunverulega, erfyrir þeim óraunhæft. Það sem okkur finnst rétt, finnst þeim rangt. Það sem okkur finnst mikilvægt, segja þeir smámál og það sem fyrir okkur er sterkt er fyrir þeim veikt. Sú vissa verður æ áleitnari að sannleikurinn er ekki einn, okkar veru- leiki er jafn góður og þeirra. Með þessa vissu i hjarta byrjum við að prjóna flík í tveimur — eða jafnvel 1000 — litum, þar sem hvorugur — enginn — litanna er ráðandi. En þá eykst andstaðan til muna. í karlakerfinu er nefnilega ekki prjónað, þar er byggt. Kvenna- baráttan nýja felst í þvi að við tökum það besta úr báðum kerfum — eða kerfunum 1000 — og prjónum úr þeim nýtt kerfi. Tilfinningalega andstaðan Eins og ég nefndi áður er sú tilhugsun freistandi fyrir ýmsa karla, sem taka þátt í starfinu, eða vilja gera það. Þá finnst þeim gjarna konurnar halda þeim utan við, þeir fá ekki að taka þátt í kvenna/jafnréttisbaráttunni. Þeir verða sárir og óánægðir og ásaka okkur um að vera að berjast fyrir forréttindum kvenna, fram yfir karla. Konur hafa ekkert lært betur en það að skilja aðra, og að taka tillit til annarra. Þess vegna blossar upp i okkur samviskubitið, þegar mennirnir okkar ásaka okkur um að einangra okkur og gleyma þeim! Þetta er án efa hættulegasta andstaðan, vegna þess að hún er tilfinningalegs eðlis. Saman við hana fléttast ástin milli konu og karls, og samband okkar við syni okkar, bræður og feður. En konurnar verða að fá að hafa frið til að finna og fóta sig á ný í eigin kerfi. Læraað þekkja það, finna aftur týnda sögu, týnd verð- mæti, týndan styrk. Þær verða að safna saman brotunum til að geta séð og fengið tilfinningu fyrir heildinni. Ef ekki, þá er til- gangslaust að tala um sameiningu tveggja jafnrétthárra kerfa. En aðgreiningin, sprungan sem myndast milli okkar og mann- anna okkar, hún er erfið að sætta sig við. Fyrir bæði. En karlarnir verða líka að skoða sitt kerfi upp á nýtt, frá nýjum sjónarhóli. Ákveða hvað er þess virði að halda í og hverju þeir vilja henda. Þeir verða líka að fá frið til þess. Að missa tökin/öryggið Við erum komin að þeim hluta þróunarinnar þar sem við ráðum ekki fyllilega yfir atburðarásinni. Þetta á við á margan hátt. Karlar eru að missa tök sín á konum, og auk þess/þess vegna er kerfið að missa tökin á kvenna/jafnréttisbaráttunni, sem það hefur þó reynt að stýra með ,,ágætis“ árangri. Konurnar hafa lika að vissu marki misst tökin á eigin baráttu, því að nú fylgir þróunin lika reglum sem tilheyra gleymdu kerfi, í nýuppgötvaðri vídd, sem við sjálfar þekkjum ekki enn til fulls. Um leið og við missum tökin missum við líka öryggið, um stund. Að hafa yfirráð gefur öryggi, og að lúta yfirráðum gefur líka ör- yggi. Þá er vitað hvaða reglum skal fylgt, hvað er rétt og hvað rangt, og hvert hlutverk þitt er, þvi að það hafa aðrir ákveðið. Ef þú fylgir reglunum, ertu nokkuð örugg. Konur og karlar hafa búið við þetta öryggi. Einhver voru undir og önnur yfir, og þau ákváðu reglurnar. Þau sem undir voru, gátu átt sínar reglur, að svo miklu leyti sem það truflaði ekki eða braut í bága við hinar ráðandi/drottnandi reglur, og það kerfi sem þær byggðust á og voru undirstaða fyrir. Menn byggðu ný kerfi og hrintu gömlum, en einnig í nýju kerfunum var Ijóst hver drottnaði. Hvort sem það var kóngurinn, lénsherrann, kirkjan, ríkið eöa ör- eigarnir, þá var það a.m.k. Ijóst og í baráttunni/stríðinu vissu drottnararnir hver andstæðingurinn var. Konur höfðu að vissu marki litið á það sem staðreynd að þær yrðu alltaf undir yfirráðum, en þær vildu gjarnan vera með í að ákveða hvar í röðinni þær væru. Hvort þær hefðu einungis menn sína yfir sér eða bæði þá og aðra karla og konur. Þess vegna tóku þær þátt í stéttabaráttu karlanna, jafnvel þótt þær sættu sig við að vera undir yfirráðum þessara baráttubræðra sinna. Sumar háðu þó jafnhliðastéttabaráttunni baráttu fyrir jafnrétti á við karla, hvort sem þær voru verkakonur eða aðalbornar frúr. Samfélag ó fósturstigi Hin nýja kvennabarátta (sem vissulega er framhald baráttu kvenna í hundruðir ára) virðist ef til vill ekki svo byltingarkennd fljótt á litið. Oft heyrum við karla halda þvi fram, að það sem konur kalla kvenfrelsisstefnu (feminisma) sé ekki annað en það sem þeir hafi skilgreint fyrir löngu og kallað positivisma, sósíalisma eða eitthvað annað, og innramma okkar hugsanir og hugmyndir í ramma karlveldisins og framkalla þannig fósturlát hjá okkur. því framtíðarsamfélag okkar erenn áfósturstigi, og ásama hátt og fóstur tilheyrir einungis móður sinni, og er fullkomlega háð henni þá er framtíðarkerfi okkar háð kvennasamstöðunni, sem nærir það, umfaðmar og verndar gegn óæskilegum áhrifum frá öðrum kerfum. Þungunin — hinn ógnandi kviður kvennasamstöðunnar Þungaðar konur passa ekki inn í karlakerfið, og heldur ekki kon- ur með börn. Þær eru ógnun viö annars styrkar stoöir kerfisins. Þungaðar konur eru lika ógnun við alla karla, vegna þess að þær eiga sér tilveru sem karlar geta aldrei átt, og þó eru karlarnir og karlveldið háð þeim til að viðhalda sér. Þungun er auk þess ógnandi fyrir konur, þær umbreytast að innan jafnt sem utan. Þær blása upp og verða ólíkar sjálfum sér, meira en þær sjálfar, en þó ekki gjaldgengar sem þær sjálfar. Hin þungaða kvennasamstaða er einnig ógnun. Ekki bara fyrir þau sem ekki vilja að barnið fæðist, heldur einnig fyrir þá sem vilja gegna hlutverki föðurins, hina jafnréttissinnuðu karla. Ég álít að það sé einmitt þessi ógnun sem þungunin hefur í för með sér, sem skapar andstöðu gegn kvenna/jafnréttisbaráttunni í samfélagi nútímans. Hún veldur andstöðu hjá okkur sjálfum því við erum að um- breytast. Við erum ekki óspjallaðar jómfrúr lengur. Sæðið sem karlmaðurinn hefur gróðursett í skauti okkar er að breyta okkur og 19

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.