Vera - 01.03.1988, Qupperneq 26
kannski rétt aö taka fram aö maðurinn minn er áskrifandi aö
Veru og er búinn aö vera frá upphafi! En svona í alvöru talað,
þá var margt annað en karlamórallinn sem kom mér á óvart í
sambandi viö þennan hljómsveitabransa. Til dæmis hélt ég aö
þaö væri meira upp úr þessu aö hafa, en komst aö því aö þetta
er hugsjónastarfsemi . . . það er alltaf verið aö spila upp í hinn
eöa þennan kostnað i sambandi viö hljómsveitina. Svo þaö aö
margir hugsa meira um hárgreiösluna á manni eöa í hvernig
buxum maöur er heldur en hvers konar músik verið er aö flytja
. . . ég hef til dæmis heyrt um konu sem hætti viö aö kaupa
plötuna okkar handa barnabarni sínu þegar hún sá myndina á
albúminu, þrátt fyrir meðmæli afgreiöslumannsins: ,,En þau
eru svo ljót“, sagöi aumingja konan.“
Svo finnst mér ekki spennandi aö allir þekki mann. Mér finnst
aö vísu gaman aö koma fram með skemmtilega músik, en
maöur getur fengiö það sama útúr því aö spila fyrir . . . ja, til
dæmis mömmu sína — hún hafði alltaf tíma til aö hlusta . . . já,
svo er eitt sem ég hef aldrei getaö vanist í þessum rokkbransa,
og það er aö tímasetningar standast aldrei . . . þaö er alltaf
verið aö bíða eftir einhverjum . . . þetta er meyjan í mér, og svo
er ég náttúrulega að kikna af ábyrgöartilfinningu af að vera
elsta systkinið í öllum þessum krakkaskara. .
. . . Þegar hér er komiö sögu er rétt aö taka fram aö viðtalið
hefur ekki runnið eins upp úr okkur Andreunum og sýnist;
Gylfadóttir er mjög hæversk manneskja og lætur lítið yfir sér
. . . frekar aö hún laumi út úr sér upplýsingum um þaö sem hún
er spurö — á frekar sposkan hátt á stundum — og lætur frekar
lítiö yfir sér — þaö virðist fremur sem allt gerist eins og af sjálfu
sér í kringum hana, án þess aö hún eigi þar nokkurt frumkvæöi.
Dóttir Jóns spyr hana hvort þetta sé reyndin:
,,Ja, þetta hefur bara þróast svona allt saman — kannski er
ég bara tækifærissinni. En i sambandi viö framtiöina hef ég
ekki tekið neinar fastar ákvarðanir, þaö er erfitt að gera
áætlanir um aö fara út í söngnám af alvöru . . . þaö tekur mörg
ár og ég er ekki viss um að ég sé tilbúin til þess. Þaö er töff
mórall á þessum vígstöðvum og þarf mikla hörku til aö berjast
áfram sem klassísk söngkona — ég er t.d. sópran og 75% af
26
söngvurum eru meö þá rödd, þannig aö þú sérö að maður má
vera helvíti góöur til aö komast áfram. Og þá er þaö ekki bara
tæknin sem gildir.“
— Hefur þér aldrei dottiö í hug aö hafa sjálf frumkvæðið aö
því aö stofna hljómsveit i kringum sjálfa þig?
,,Nei, þaö hefur nú ekki veriö á dagskrá — en hver veit hvað
verður? En ég sé varla að það veröi tími til þess fyrr en svona
á fimmtugsaldrinum. Annars er á vissan hátt erfiöara fyrir
söngvara en hljóðfæraleikara hér aö vinna fyrir sér í sínu fagi
—þaö er ekki nema einstaka söngvari sem hefur haft nóg aö
gera. Hljóðfæraleikarar geta auðveldlega spilaö út um hvippinn
og hvappinn meö hinum og þessum bæði á hljómleikum og viö
plötuupptöku, en söngrödd er miklu persónulegri og á ekki viö
hvar sem er. En eins og ég sagöi áðan þá hef ég mjög gaman
af aö reyna mig viö blús og djass og langar aö víkka þaö svið.
Ég er núna að syngja meö Friðrik Karls gítarleikara í
Mezzoforte, Steingrími Guömunds trommuleikara og Richard
Korn bassaleikara. Ýmist hafa þeir komiö meö lög eöa þá aö ég
vel eitthvað sem mig langar aö syngja — einnig stendur til aö
vera með frumsamið efni — núna er ég t.d. aö spreyta mig á
lögum sem Nina Simone og Joni Mitchell hafa sungið. Ég vildi
gjarnan hafa lengri tíma til aö æfa þetta áður en ég syng þaö
opinberlega . . . þeir virðast ekki alveg skilja að þaö tekur sinn
tíma aö læra erfiða texta, eins og til dæmis þá sem Joni Mitchell
semur — ekki bara aö læra þá utanað, heldur að koma öllum
orðaflaumnum út úr sér í takt viö músikina.11
. . . og þar meö sláum viö botn í viðtalið viö perfeksjónistann
Andreu, og hinni er örlítið skemmt aö Joni Mitchell skuli bland-
ast málum meö þessum hætti — undirrituð heyröi nefnilega þá
sögu um þá snjöllu konu aö á hljómleikum á Isle og Wight árið
1970 hafi hún staðið upp, grátandi, og gengiö út af sviðinu, eftir
aö ein fölsk nóta haföi heyrst í undirleiknum . . . eöa réttar sagt:
hún haföi heyrt hana sjálf. Þetta kallar maður aö gera kröfur til
sjálfrar sín og mætti margur af læra, þótt óþarfi sé kannski aö
ganga svo langt aö út sé. . .
Andrea Jónsdóttir