Vera - 01.03.1988, Page 35

Vera - 01.03.1988, Page 35
Það getur orðið dýrt spaug að láta slíkar viðgerðir sitja á hakanum. Minnihlutinn lagði til að áætlun skýrslunnar yrði fylgt. Eins og áður er nefnt eiga unglingar fá athvörf fyrir sig og sitt. T.d. er ekkert slíkt í Seljahverfi og unglingar í Grafarvogi eru allslausir. Því var það tillaga minnihlut- ans að fé yrði veitt til unglingahúss í miðborginni sem yrði skipulagt í samstarfi við unglingana. Peningar eru til fyrir húsi í Seljahverfi, því þar var búið að kaupa hús, sem síðan varð að selja vegna mótmæla íbúanna sem ekki gátu hugsað sér nábýli við unglingana. I Grafarvogi þarf að koma upp aðstöðu og var gerð tillaga um það. Tillögur stjórnarandstööunnar í borgarstjórn Fyrir börnin, unglingana og gamla fólkið Gamla fólkið Reykjavík hýsir hlutfallslega mun fleiri aldraða en önnur bæjarfélög á landinu. Það gefur því auga leið að mikil þörf er fyrir þjónustu við gamla fólkið. Einkum skortir langlegupláss og hjúkrunarheimili. Samkvæmt áætlunum mun gömlu fólki í borginni (þ.e. 67 ára og eldri) fjölga um 30% fram að aldamótum. Það er því afar brýnt að vinna skipulega að lausn þess vanda sem þeg- ar er til staðar og framundan er. Leiðirnar eru margar svo sem að efla heimaþjónustu, bjóða upp á þjónustu um helgar og gera allt sem hægt er til að fólk geti búið sem lengst heima hjá sér ef það kærir sig um það. En einnig þarf að byggja hjúkrunarheimili, langlegudeildir og þjónustuíbúðir til að fullnægja þörfinni. Enn verður þó að minna á, að það er til lítils að byggja og byggja, ef því fólki sem á að vinna með gamla fólkinu verða ekki boðin mannsæmandi kjör. Dæmið um Skjól, sem erfið- lega hefur gengið að taka í gagnið vegna skorts á starfs- fólki (t.d. hjúkrunarfræðingum), sýnir svo ekki verður um villst að konur láta ekki lengur bjóða sér upp á erfið- ar vinnuaðstæður og lág laun. Þessi staðreynd virðist því miður ekki vera ráðamönnum Ijós. Það væri víða hægt að grípa niður í málefnum borgar- innar og segja frá tillögum en að lokum skal minnst á húsnæðismálin. Hér í borg ríkir mikil neyð í húsnæðis- málum þótt hún komi illa upp á yfirborðið. Reykjavíkur- borg er afar treg til að taka á málinu og það fer hrollur um meirihlutann ef minnst er á leiguhúsnæði. Þar er skemmst frá að segja að borgin bregst algjörlega skyldu sinni í þeim efnum. Leiguhúsnæði á vegum borgarinnar er ekki byggt og allt of fáar íbúðir keyptar. Svo virðist sem borgin ætli að láta áform um kaupleiguíbúðir sem vind um eyrun þjóta. Borgin reynir aðeins að sinna allra verstu tilfellum, aðrir mega sigla sinn sjó og vísar þar hver á annan. Stjórnarandstaðan lagði til að upphæðin til kaupa á leiguíbúðum yrði hækkuð verulega þannig að hún dyggði til kaupa á 30 íbúðum i stað 20. Auk þessa kæmi ákveðið framlag til kaupleiguíbúða. Allt var þetta fellt Gerð verði heildarúttekt á rekstri Reykjavíkurborgar og tillögur um endurbætur lagðar fram, m.a. til að draga úr mikilli yfirvinnu borgarstarfsmanna. Varið verði 65.5 millj. kr. til B-álmu Borgarspítalans, þannig að unnt verði að Ijúka verkinu árið 1990. Nýtt hjúkrunarheimili verði byggt fyrir aldraða og verði varið til þess 90 millj. kr. á þessu ári og verkinu lokið 1990. Framlög til dagvistarmála verði aukin verulega á næstu árum. Á þessu ári skal veita 160 millj. kr. til bygginga og viðhalds dagheimila. Framlög til kaupa á leiguíbúðum verði aukin úr 20 millj. í 50 millj. Keyptar verði 30 íbúðir, þar af fari 12 til aldraðra. Unglingahúsi verði komið á fót í miðborg Reykjavík- ur og verði það aö miklu leyti skipulagt og starfrækt af unglingum. Hús verði keypt í Grafarvogi fyrir starfsemi unglinga. Unnið verði samkvæmt áætlun að viðhaldi skóla í Reykjavík, i stað þess að láta þá áfram drabbast nið- ur. Nýrskóli verði reistur í Hamrahverfi í Grafarvogi. Þar verði gerð tilraun með að reka dagheimili, skóladag- heimili og grunnskóla undir einu og sama þaki. Keypt verði hús fyrir sambýli aldraðra. Verulegar umbætur verði gerðar á ferðum og rekstri strætisvagnanna. Ferðum verði fjölgað á ýmsum leiðum, lokið við endurskoðun leiðakerfisins og ný biðskýli reist víða um borgina. Lokið verði við heilsugæslustöðina við Hraunberg og veitt til þess verks 46 millj. kr. Svona rétt til aö binda endahnútinn skal hér vitnað til Unnið verði markvisst aö fækkun slysa og umferðar- greinargerðar þeirra Sólrúnar, Bjarna R, Sigrúnar, Sig- óhappa í borginni í samræmi við þá vitneskju sem til urjóns, Kristínar og Guðrúnar. Þar segir: ,,Það er skoð- staðar er um ,,hættustaði“. un stjórnarandstöðunnar í borgarstjórn, að þeim miklu fjármunum sem borgin hefur úr aö spila eigi að verja til Unnið verði að fegrun umhverfis og útivistarsvæðum aðstöðujöfnunar í stað ótímabærra lúxusbygginga". Á ( samvinnu við íbúasamtök að undanteknum fram- öörum stað segir: ,,Það er okkar skoðun, að mikil þörf kvæmdum við Tjörnina, í Laugardal og Hljómskála- sé á því að taka allan rekstur borgarinnar til gagngerðr- garði. ar endurskoðunar. Oeðlilega mikil yfirvinna, sem lítið breytist frá ári til árs bendir til skorts á aðhaldi og virkri Komiö verði upp aöstöðu fyrir skautafólk i borginni. stjórn“. Já, það er margt að skoða og mörgu að breyta í borg- Hafin verði bygging almenningssundlaugar I Árbæj- inni okkar, og hver veit nema Eyjólfur hressist. Það kem- ar- og Seláshverfi. ur dagur eftir þennan dag og kosningar eftir tvö ár! Kristín Astgeirsdóttir Borgin útvegi vinnuhúsnæði fyrir myndlistarmenn. 35

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.