Vera - 01.03.1988, Blaðsíða 37
færri en í fyrra. Þessa fækkun má skýra annars
vegar meö þeirri staöreynd hve hægt gengur hjá
Reykjavíkurborg aö ganga frá lóöum og
skipulagi og hins vegar vegna tregöu á aö kaupa
eldra húsnæöi.
Á hverju ári er umsækjendum boöiö upp á
viötöl viö stjórnarmenn til að skýra sín mál. Af
fjölda umsækjenda og þeim viðtölum sem ég átti
dreg ég þá ályktun aö hér í borg ríkir hrikaleg
neyö í húsnæðismálum og hún hefur versnað frá
því í fyrra. Þær umbætur sem geröar hafa verið
á húsnæöiskerfinu hafa ekki skilað sér til hinna
lægst launuöu, en í þeim hópi eru konur fjöl-
mennastar eins og viö vitum. Skýringarnar á
þessu ástandi eru aö mínum dómi eftirfarandi:
Mikil tregöa hjá Reykjavíkurborg til aö byggja og
kaupa húsnæöi til leigu, skortur á námsmanna-
húsnæöi, okurleiga (þar sem fólk er aö láta leigj-
endur greiöa fyrir sig skuldir), lág laun, lítiö fram-
boö á leiguhúsnæði á frjálsum markaði og of
mikill hægagangur hjá Verkamannabústöð-
unum (aö hluta til Reykjavíkurborg aö kenna
eins og áöur er nefnt).
í fljótu bragöi sýnist mér umsækjendur um
íbúðir skiptast í fimm hópa. í fyrsta lagi eru
einstæðar mæöur meö barn/börn á framfæri og
þær eru mjög margar. í ööru lagi ungt fólk sem
er aö hefja búskap og getur ekki búið hjá for-
eldrum, ræöur ekki við leigumarkaöinn og á
enga möguleika á aö kaupa á frjálsum markaöi.
í þriöja lagi er fólk sem hefur tapaö öllum eigum
sínum í vaxta- og skuldafárinu sem ríkt hefur frá
1983. í fjóröa lagi eru svo einhleypingar komnir
yfir miðjan aldur (ekkjur/ekklar þar meö talin)
sem búa í leiguhúsnæöi eöa jafnvel hjá ættingj-
um. í fimmta lagi eru svo öryrkjar. Allt á þetta
fólk þaö sameiginlegt aö hafa lág laun og aö búa
viö sára húsnæðisneyö.
Fjöldamargir búa inni á foreldrum sínum meö
börn í 3ja herbergja íbúöum, aörir eru í heilsu-
spillandi húsnæöi, enn aðrir búa viö okurleigu
(verstu dæmin sem ég fékk voru leiga upp á
37.700 kr. og 38.000 fyrir 4ra herb. íbúðir, og
þaö á fólk aö borga sem hefur innan viö 40.000
kr. í laun), enn aörir fara á milli ættingja eöa
komast tímabundiö inn í húsnæöi einstæðra
foreldra.
En hvaö er til úrlausnar? Ég hef þegar lagt
fram tillögu í stjórninni um aö keypt veröi eldra
húsnæöi til aö fjölga íbúðunum nú, en þaö
viröist eina skyndilausnin. Máliö er í athugun og
þess verður aö gæta aö kaup á fjölda íbúöa
verði ekki til aö sprengja upp verðið á almennum
markaöi. Önnur lausn er sú aö verkalýðshreyf-
ingin taki málið upp á sína arma og sinni
félagslega kerfinu af alvöru. Ég efast um aö
forystumenn á þeim slóöum geri sér grein fyrir
því hve ástandið er alvarlegt þó aö verkalýðs-
hreyfingin eigi reyndar fulltrúa í stjórninni. Þaö
er bara ekki nóg., Máliö þarf aö komast inn á
borö borgarstjórnar, inn á alþingi og inn í
kjarasamninga. Einnig veröur aö auka fram-
boöiö á íbúðum meö því aö auka byggingar-
hraöann.
Ástandiö er sem sagt mjög alvarlegt og löngu
orðið tímabært aö taka á. Þaö þýöir ekki lengur
aö hampa draumum um eigiö húsnæöi í há-
stemdum ræöum meöan neyðin er rétt utan viö
dyrnar. Þaö veröur aö útvega námsmannahús-
næöi, húsnæöi fyrir aldraöa og öryrkja, byggja
leiguíbúöir og bjóöa öllum upp á mannsæmandi
kjör jafnt í launaumslaginu sem á húsnæöis-
markaðnum. i . . ....
Kristin Astgeirsdottir
Auglýsing um
fasteignagjöld
Lokiö er álagningu fasteignagjalda í Reykja-
vík 1988 og hafa álagningarseðlar veriö
sendir út ásamt gíróseölum vegna fyrstu
greiðslu gjaldanna.
Gjalddagarfasteignagjaldaeru 15. janúar, 1.
mars og 15. apríl.
Gjöldin eru innheimt af Gjaldheimtunni í
Reykjavík, en einnig er hægt aö greiða gíró-
seölana í næsta banka, sparisjóöi eöa póst-
húsi.
Fasteignagjaldadeild Reykjavíkurborgar,
Skúlatúni 2, veitir upplýsingar um álagningu
gjaldanna, símar 18000 og 10190.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar munu
fá lækkun áfasteignaskatti samkvæmt regl-
um, sem borgarstjórn setur og framtals-
nefnd úrskuröar eftir, sbr. 3. mgr. 5. gr. laga
nr. 73/1980 um tekjustofna sveitarfélaga.
Verður viökomandi tilkynnt um lækkunina
þegar framtöl hafa veriö yfirfarin, sem vænta
má aö veröi í mars- eöa aprílmánuði.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
11. janúar 1988.