Vera - 01.03.1988, Qupperneq 38
Þindarlaust
þinghald
Þaö hefur sennilega ekki farið fram-
hjá neinum að miklar annir voru á Al-
þingi síðari hluta desembermánaðar
og í kringum hátíðarnar. Ástæða þess
var að stjórnarfrumvörp komu seint
fram þannig að ekki gafst tími til um-
ræðna um þau á eðlilegum fundartím-
um þingsins. Stjórnarliðar sögðu að
stjórnarandstaðan væri með málþóf og
tefði þannig framgang málanna. Þing-
menn stjórnarandstöðunnar bentu
hins vegar á að verið væri að fjalla um
mörg mikilvæg mál sem nauðsynlegt
væri að fjalla rækilega um. Þar má t.d.
nefna, kvótamálið svokallaða, frum-
varp um verkaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga, breytingar á tollalögum, frum-
Matarskattinum illræmda var mótmælt harðlega,
en ekki dugði það til, hann var settur á þannig að nú er
enn dýrara að kaupa í matinn og með öllu óskiljanlegt
hvernig lágtekjufjölskyldum er ætlað að búa við þessa
skattheimtu.
í umræðum um söluskattinn sagði Guðrún Agnars-
dóttir m.a. ,,Eins og ég hef áður minnst á þá erum við
kvennalistakonur afskaplega mótfallnar matarskattin-
um og höfum veriö síðan þeim hugmyndum var hreyft
að leggja hann á. Það er ekki síst vegna þess að hann
kemur sér mjög illa fyrir þá sem minnstar tekjurnar hafa
og fyrir barnmargar fjölskyldur. Og mér er mjög til efs að
þær bætur sem mæta eiga þessari skerðingu sem veg-
ur svona þungt hjá einungis hluta launþega i þjóðfélag-
inu, miklu þyngra en hjá öllum öðrum vegna þess að
matvæli eru hjá láglaunafólki allt að 'h af neyslu þess.
í raun hafa hefðbundnar neysluvenjur breyst talsvert
þannig að það er miklu minna vægi í þeirri matvöru sem
ákveðið hefur verið að niðurgreiða, eins og kindakjöti.
Og það kom líka fram hér um daginn að einmitt þetta
fólk hefur tæpast talið sig hafa efni á að neyta þessarar
vöru vegna þess hversu dýr hún er orðin. Það er talið að
matvöruliðurinn muni hækka um 7%, en í raun verður
þessi hækkun mun meiri hjá lágtekjufólkinu. Hún verð-
ur verulega meiri og má ætla að hún veröi allt að 15%
í raun miðað við þeirra neyslu og hlutfallið af matvælum
í henni.“
Breytingartillögur við tollalög
Kvennalistakonur lögðu fram breytingartillögur við
frumvarp um breytingar á tollalögum þar sem m.a. var
tekið tillit til manneldissjónarmiða. Lagt var til að felldur
yrði niður tollur á grænmeti og matjurtum ýmiskonar en
sykur og sætindi af ýmsu tagi yrði með 30% toll.
varp um vörugjald og breytingar á sölu-
skatti, lánsfjárlög og síðast en ekki síst
fjárlögin. Það þarf því engan að undra
að stjórnarandstaðan spyrni við fótum
þegar ríkisstjórnin ætlar að ,,keyra“
svo mörg og stór mál í gegnum þingið
á örfáum dögum. Kvennalistakonur
lögðu nótt við dag og tóku þátt í um-
ræðum og nefndarstörfum um öll þessi
mál. Kvennalistakonur láta ekki bjóða
sér neina skyndiafgreiðslu mála til að
hjálpa ríkisstjórninni. Það eru málefnin
sem skipta meginmáli og flest þeirra
frumvarpa sem ríkisstjórnin vildi
,,keyra“ í gegn þurftu mikillar umfjöll-
unar við.
Kristín Halldórsdóttir vísaöi m.a. í skýrslu heilbrigðis
og tryggingamálaráðherra um íslenska heilbrigðisáætl-
un sem lögð var fram á síðasta þingi umræðum um tolla-
lögin í neðri deild og sagði m.a. ,,Þar ertalað um að leið-
beina þurfi fólki um fæðuval, leggja áherslu á fram-
leiðslu og framboð hollrar fæðu, — ýta með ýmsu móti
undir neyslu á kornmeti, fiski, mögru kjöti, kartöflum og
grænmeti. Þar ertalað um að minnka þurfi neyslu sæt-
inda og matar með miklum sykri með upplýsingastarf-
semi og verðstýringu. Manneldisráð hefur sett fram
matvælaframleiðslu- og manneldismarkmið og er að
vinna að nýjum markmiöum þar sem boðuð eru fyrir-
mæli um verðlagningu, framleiðslu og þá upplýsingu
sem er nauðsynlecj til þess að bióðin snúi sér að heil-
brigðara mataræði en nú tíðkast. Þessu erum við
kvennalistakonur ákaflega sammála því hér er ekki ein-
asta um að ræða að efla heilbrigði og styrkja og styöja
einstaklinga í því að eiga heilsusamlega og farsæla ævi
heldur er hér um ómældan sparnað að ræða fyrir þjóð-
félagið."
Tvö skattþrep —
meölag greitt mæðrum
í annríkinu fyrir jól kom fram stjórnarfrumvarp um
tekjuskatt og eignarskatt í tengslum við lög um stað-
greiðslu opinberra gjalda. Þetta frumvarp fjallaði um
barnabætur, vaxtaafslátt o.fl. Kvennalistinn lagði fram
breytingartillögur við frumvarp ríkisstjórnarinnar jafn-
framt því sem lagt var fram sérstakt frumvarp um tekju-
stofna sveitarfélaga. I nefndaráliti með breytingartillög-
unum segir m.a. „Staðgreiðsla opinberra gjalda launa-
fólks var lögfest á síöasta þingi, en heildarendurskoðun
skattalaganna var slegið á frest. Kvennalistakonur
38
j