Vera - 01.09.1990, Blaðsíða 12
sýnist mér hún mjög góð. Það
skemmtilega er að bæði karlar og
konur hafa tekið við sér jöfnum
höndum.
,,Náið þið þá inn fleiri við-
skiptavinum úr hópi kvenna en
önnur verðbréfafyrirtæki?“
„Fyrir tæpu ári gerðum við
grófa athugun á kynskiptingunni
í viðskiptavinahópnum, því okk-
ur grunaði að konum færi mjög
fjölgandi. í ljós kom að tæp 40%
af eigendum einingabréfa og
skammtímabréfa frá okkur eru
konur. Sú staðreynd talar sfnu
máli.“
Því hefur stundum veriö haldið
fram aö konur hegði sér öðruvísi
sem viðskiptavinir en karlar. Hver
skyldi reynsla Dagnýar vera af
því?
,,Þær spyrja meira og vilja fá
nákvæmari svör. Því eru þær
ágætlega kröfuharðir kúnnar.
Hvort það stafi af því að þær séu
einfaldlega óhræddari en karlar
við að opinbera vankunnáttu sína
með því að spyrja eða þurfi að
yfirvinna einhverja óöryggistil-
finningu í þessum viðskiptum
þori ég ekkert að fullyrða um, en
þó get ég sagt að mörgum finnst
þægilegra að tala við konur þegar
þær eru að byrja að feta sig áfram
í þessum viðskiptum.“
Kona á fertugsaldri sem vinnur
við ráðgjöf til fyrirtækja á sviði
almannatengsla segir f samtali við
Veru aö möguleikar kvenna til að
hafa áhrif á fyrirtæki með því að
stjórna betur við hverja þær
skipta séu nær ótæmandi. Vegna
viðskiptavina sinna kýs hún að
láta nafns síns ekki getið.
„Fyrirtækin eru almennt mjög
viökvæm fyrir því hvað er sagt og
skrifað um þau á opinberum vett-
vangi. Með því einu er hægt að
hafa áhrif á þau. Á sama tíma fer
viöleitnin innan fyrirtækjanna til
að styrkja ímynd þeirra bæði út á
við og inn á við mjög vaxandi,
enda er samkeppnin orðin mjög
hörð í mörgum greinum. Það
kemur fyrir í minni vinnu að ég
verð vör við að sumir þeirra yngri
karla sem nú eru að byggja upp
fyrirtækin og taka við stjórnar-
taumunum hafa allt annan þanka-
gang gagnvart konum en kyn-
slóðin á undan. Ég get ekki geng-
ið svo langt að segja að það sé
reglan en dæmunum fjölgar hægt
og þétt.
Oftast eru þetta velmenntaðir
menn sem hafa tileinkað sér ákaf-
lega faglegt viðhorf til fyrirtækja-
reksturs. En það sem kannski ræð-
ur úrslitum er að þeir gera sér
grein fyrir að kvenvinsamleg
ímynd eykur veltuna þegar upp er
staðið. Það er ekki lengra síðan en
í morgun að einn viðskiptavina
minna sagði mér stoltur frá því að
hann hefði nýlega ráðið þrjár
konur í störf sem áður voru ein-
göngu unnin af körlum. Hann
hafði trú á því að með því myndi
þjónusta fyrirtækisins viö við-
skiptavinina batna.
Hinu get ég ekki leynt að konur
eru enn mjög langt frá því að
komast inn í þennan innsta hring
viðskipta og fjármála sem stjórn-
ar svo miklu hér. Elskuvinafélög
karla sem er sambland af við-
skiptatengslum, gagnkvæmri
hagsmunagæslu og kammeraderíi
eru einfaldlega ekki umhverfi fyr-
ir konur. En út á þessi tengsl halda
margir sjálfum sér og öörum í
bissness og, síðast en ekki síst,
þeir veita hver öðrum upplýsing-
ar. Meðan konum er haldiö utan
við þetta upplýsinganet ná þær
ekki neinum teljandi völdum í
fjármálaheiminum.* ‘
„Eg verð að skoða allan vinnu-
markaðinn ef ég á að ná til mín
hæfileikaríkasta fólkinu,“ er haft
eftir George B. Harvey, forstjóra
bandaríska stórfyrirtækisins
Pitney Bowes í tímaritinu Inter-
national Business Week sem kom
út 6. ágúst síðast liðinn. Fyrirtæk-
ið hefur gert áætlanir um að fjölga
konum í stjórnunarstöðum og
samkvæmt þeim hljóta konur
35% af öllum nýjum ábyrgðar- og
stjórnunarstöðum. Þessi kvóti
gildir líka um stöðuhækkanir. Það
sem olli sinnaskiptum hjá for-
stjóranum var að þegar fyrirtækið
var ílægð á árunum ’81—’82 varð
hann áþreifanlega var við að kon-
ur meðal starfsliðsins lögðu mun
meira á sig en karlar til að snúa
þróuninni við.
Þetta er eitt fjölmargra dæma
sem tímaritið tilgreinir um ger-
breytta starfsmannastefnu ýmissa
bandarískra stórfyrirtækja. Fyrir-
tæki eins og CBS, Avon, Dayton-
Hudson, Gannett, Kelly Services
og U.S.West eru þar í fararbroddi
og er hlutur kvenna í efri stjórn-
unarlögum þeirra yfirleitt á bilinu
25—30%. Tímaritið tilgreinir 18
önnur stórfyrirtæki, þar á meðal
IBM, Xerox og American Express,
sem hafa gert ráöstafanir til að
fjölga konum. Mörg eru með sér-
stök starfsmannanámskeið fyrir
bæði karla og konur til að ryðja úr
vegi þröskuldum á braut kvenna
upp metorðastigann. Til dæmis er
stórfyrirtækiö Du Pont með nám-
skeið sem á að hjálpa körlum sem
starfa þar til aö vinna bug á með-
vituðum og ómeðvituðum til-
hneigingum sínum til að mis-
muna konum. Þess eru jafnvel
dæmi að bónusgreiðslur til
stjórnenda fari eftir því hversu vel
þeim hafi gengið að fjölga konum
í ábyrgðarstöðum.
„Þeir sem efuðust um markmið
okkar fengu að finna fyrir því í
launaumslaginu,“ er haft eftir
einum forstjóranna.
Peningarnir tala. Bæði amer-
ísku og íslensku. H.J.
„Þegar til stóö að
auglýsa nýja áskrift
að einingabréfum í
vor ákváðum við að
reyna að höfða
meira til kvenna en
venjan er...
... Það skemmtilega
er að bœði karlar
og konur hafa tekið
við sér jöfnum hönd-
um.“
ÞETTA SKALTU GERA
Ef þú verður fyrir því í verslun,
banka, þjónustufyrirtæki eða
annars staðar að vera með-
höndluö sem annars flokks
viöskiptavinur eða mismunað
á einhvern hátt vegna kynferð-
is þá skaltu ekki hika viö að
beina viðskiptum þínum ann-
að.
• Segðu stjórnendum fyrir-
tækisins frá því að þú hafir
ákveðið að leita annað.
• Skýrðu frá ástæðunni.
• Segöu jafnframt að þú mun-
ir skýra öðrum konum frá
reynslu þinni.
• Lýstu reynslu J?inni í bréfi
til Veru, lesendasíðna dagblað-
anna eða á öðrum opinberum
vettvangi. Nafngreindu fyrir-
tækið sem í hlut á.
• Biddu um viðtal við stjórn-
endur í því fyrirtæki sem þú
snýrð viðskiptunum til og
segðu hvers vegna þú fluttir
viðskiptin til þeirra. Gerðu
J^eim ljóst að þú haldir ekki
áfram viðskiptum við þá ef
sagan endurtekur sig.
• Notaðu þetta vald þitt öðr-
um konum í hag. Ef þú fréttir
af konu sem er mismunað í
vinnu vegna kynferðis, sagt
upp vegna barneignar eöa Jiess
háttar, hættu þá viðskiptum
viö fyrirtækið og fáðu aðrar
konur til að gera slíkt hið
sama.
• Ef J^ú veröur vör við mjög
grófa mismunun, jafnvel svo
um lögbrot sé aö ræða, hikaöu
þá ekki við að gera stórmál úr
því. Fáðu aörar konur í lið með
þér við að skipuleggja aðgerð-
ir og mótmæli.
• Beittu valdi þínu líka til að
verðlauna fyrirtæki sem standa
sig vel. Verðir þú vör viö að
konur séu metnar að verðleik-
um í tilteknu fyrirtæki eöa að
fyrirtækið geri ráðstafanir til
að mæta þörfum kvenna, bæði
sem starfsmanna og viðskipta-
vina, veldu þá það fyrirtæki
fremur en önnur Jiegar Jiú ert í
viðskiptahugleiðingum.
12