Vera - 01.12.1994, Blaðsíða 27
þar sem höfundur skiptir á milli 1. og 3. per-
sónufrásagnar á listilegan hátt. í luktum
heimi er ekki síðri bók en sú sem aflaði
Fríðu Bókmenntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs og því er auðvelt að mæla með henni.
Sonja B. Jónsdóttir
Höfuðskepnur
Þórunn Valdimarsdóttir
Forlagiö 1994
Hvernig tekur ísland viö hinni nýju og ofsa-
fengnu kynlífsumræðu sem var gusað yfir
landiö meö alsherjar opnun, frelsis hjali
og pælingum um hvort viö séum afbrigði-
legri eða eðlilegri en normalítetið? í bók-
inni Höfuðskepnur þenur Þórunn Valdi-
marsdóttir áfram hugmyndir um þessa nýju
kynpólitík. Hvað fæst með
frelsinu? Vinnur umræöan á
fordómunum eöa nærir þá?
Hvað gerist þegar frelsið er
túlkað ranglega?
Að styðja fingri létt á ofur-
viökvæm málefni samtím-
ans er ekki það sem Þórunn
leggur upp með. Hún veltirvið
öllum grjóthnullungum sem
verða á vegi í kynlífsheiminum. Hin opna um-
ræða er skeggrædd og þekkt dæmi úr sjón-
varpi gærdagsins túlkuð af sögukonu sem
skrifar bréf til Kyrrahafsbúans/„elskar-
ans”/lesandans. Woody Allen „er bara orö-
inn gamall og þarf
mikla ögrun til aö
honum standi kraft-
ur til lífsins”(148).
Er verið að gera grín
að hinum opna aö-
gangi að samvisku
samfélagsins?
Hæðast aö áhugan-
um?
Svört hæðni er
alls staðar í Höfuð-
skepnum og ágætis
aöferö til þess að
grafa móralska þátt-
inn þó aö auövitaö
kraumi alvaran und-
ir í nauðgunar- og
klámsögu. Prakk-
araþátturinn
. frelsinu er nefni-
lega ískyggilegur,
nauðgun kannski
eitthvað sem má afgreiða með „boys will be
boys”? Spurningum eins og hver sé ábyrgð
kvenna í ríki „alfaapanna" (sbr. „beta-
apana"), höfuöskepnanna er velt upp. Verð-
ur ekki alltaf einhver að taka við prakkara-
skapnum?
í viktorískum tíma tóku vændiskonur á
sig umframkrafta sem vildu út og af hinu
góða því þá héldust aðrar og dyggðugri kon-
ur hreinar. Nú heyrast kenningar um að sér-
stök manngerð taki á sig heimilisbarsmíðar
og nauöganir - alltaf einhver önnur en Égið.
í Höfuðskepnum er kunnuglegum kynferðis
goösögum fleytt fram: „Af því ég var ein,
beiðandi út í loftið svo vitlaus, þá kannski
kom eitthvað í mig, sem antílópu á guðs-
engi, sem lét Ijónið stökkva á mig. Kannski
slappst þú systir, (...) og ég fæ tár í augun
af því hvað ég var göfug að taka út barsmíð
nauðgarans fyrir þig." (181) Kynfantasían er
aldrei einhliða hjá Þórunni heldur brýst út
með hugmyndagusum, samansulli sögu-
legra fordóma og nýfrelsis í að festa í orð
subbulegustu krásir hugans.
Hin dulræna sögukona er í uppreisn gegn
„tregðu og feimni í jöklinum" (191). Ástarbréfa
þjónustan gerir henni kleift að tjá þjáninguna og
velta upp undarlegustu hugmyndum hugans. í
allri opnuninni er Þórunni mikið í mun að ryðjast
ffam hjá öllum hindrunum, textinn er því fljótandi
og dálítiö sukkaður, öllu er gefið rúm, slettum og
útúrdúmm enda um að ræða bréf kynffelsisins!
Marín Guftrún Hrafnsdóttir
kvenna á tuttugustu öldinni, Guðrún Jóns-
dóttir um kynferðislegt ofbeldi gagnvart
börnum, Rannveig Traustadóttir um kyn-
bundna verkaskiptingu innan fjölskyldna
fatlaðra barna.
Silkinærföt frá Náttúrulækningabúðinni.
Einstaklega þægilegur klæðnaður.
Fyrir þær sem þora eru til dagbækur og
dagatöl I Bóksölu Stúdenta. Women who
dare með myndum og upplýsingum úr
kvennasögunni. Einmitt það sem svo marg-
ar konur vantar.
Sundkort er fín jólagjöf handa sundfólkinu
og ekki síðri handa þeim sem fara sjaldan
eða aldrei. Nú drífa þau sig!
Og hér kemur jólagjöfin handa hjólreiöa-
konunni - engin spurning: hnakkur á hjólið
sem tekur tillit til líkamsbyggingar kvenna.
Þessi hefur slegiö í gegn hjá sitjandi sárum
konum. Hnakkar handa konum eru með
styttra nefi, breiðari setu og úrfellingu fyrir
miðju. Sem sagt: Jólagjöf handa konum
sem vilja hjóla án óþæginda. Og ekki
skemmir aö hnakkarnir eru framleiddir af
fyrirtæki kvenna I Bandaríkjunum sem sér-
hæfir sig í hjólaútbúnaði fyrir konur. Terry
heitir það og fulltrúi þess á íslandi er reið-
hjólaverslunin Týndi hlekkurinn, Hafnar-
stræti 16, Reykjavík.
Þegar jólagjafirnar eru keyptar er tilvalið að
hugsa til kvenna. Klrsuberjatréó á Vestur-
götunni er t.d. verslun sem selur fallega
muni eftir konur og konur selja listmuni og
handverk í fjölmörgum galleríum og verslun-
um í borginni. Höfum þærí huga.
Á Eiöistorgi er opin vinnustofa og þar get-
ur maður búið til gjafirnar sjálfur. Listfengi
sér um þessa opnu vinnustofu og þar er
bæði hægt aö fá efni og aöstoð.
Mitt I náttúrunni er hægt aö fá vist- og
húövænar snyrtivörur á vingjarnlegu verði.
Amnesty Intemationai eiga klæðilega boli
með áletrunum sem eiga erindi. Þaö á Kvema-
listinn líka - meö feminískum áletrunum.
Það er líka hægt að gefa gjafir sem ekki eru
í efniskenndu formi. Þú getur t.d. gefið vin-
um þínum barnapössun nokkur kvöld, eöa
hjálpað til viö jólahreingerninguna ef þú átt
meiri tíma en peninga. Trúlega kemur það
sér líka vel fýrir vinina.
Þegar við kaupum jólakortin er gott að hafa
líknarfélögin í huga. Styðjum gott málefni
um leið og við gleðjum ættingja og vini.
lólin. iólin