Vera - 01.12.1994, Blaðsíða 45
ekki foreldra," segir blómastelpan og hin
bætir við, „sumir eiga heldur enga pabba og
aðrir eiga marga pabba“.
Svo töluðum við um mömmur. Hvað gera
mömmur?
„Laga til," segir ballerTnustelpan.
Blómastelpa: „Nei það gera sko ekki all-
ar mömmur, mamma mín gleymir alltaf að
búa um rúmið svo að ég verð að gera það.
Allar mömmur eiga það sameiginlegt að
vera manneskjur sem hugsa." (Mamma
hennar erí sálfræði.)
Ballerína: „Sumar mömmur eiga heima
saman og sumir pabbar líka."
Blómastelpa: „Já, eins og nunnurnar
þær búa saman en þær eiga heldur engin
börn. Það eiga ekkert allar konur börn."
„Mamma, var hann einu sinni pabbi
minn?" spurði fjögurra ára dóttir mín
eftir að við höfðum hitt vin minn í miö-
bænum. Ég undraðist hversu frjálslega
dóttir mín spurði og þá í Ijósi þess að
hún hefur aðeins átt tvo feður. Ég átti
bara einn pabba og sú hugsun aö eiga
annan var mér víðs fjarri. Núna heyri
ég sögur um börn sem gráta yfir því að
eiga bara einn föður. Þar af leiöandi
verða pakkarnir undir jólatrénu færri
en hjá barninu í næsta stigagangi sem
á tvo pabba eða fleiri.
Hver er hugarheimur barna í dag? Hvernig
hugsa börn um fjölskylduna, mömmur og
pabba? Mig fýsti að vita það. Ég fór á einn
leikskólann í Reykjavík þar sem ég hitti tvær
glaðlegar fimm ára stelpur sem voru aö
skoöa gamalkunnugar bækur um prinsa og
prinsessur.
Önnur er meö dökkt hár og dreyminn
svip. Hún er í blómafötum því henni finnst
blóm svo falleg. Hún er blómastelpa. Hún
ætlar að verða píanóleikari þegar hún verð-
ur stór. Henni finnst skemmtilegt að hlusta
á píanóleik.
Hin er meö Ijóst hár og gleraugu. Undir
gleraugunum eru falleg glaðleg augu. Hún
kann að lesa. Hún er ballerína og ætlar að
veröa ballerína þegar hún verður stór. Henni
finnst ballerínur svo fallegar.
Ég settist hjá þeim og spjallaöi við þær.
Við töluðum um fjölskylduna.
Hvað er fjölskylda?
„Fjölskylda er hringur. í fjölskyldu eru tvö
börn og mamma og pabbi", segir ballerinan.
„En sumir eiga fjögur börn," segir
blómastelpan. „Já, eða ellefu," segir sú
fyrri. „Það er ekki hægt aö eiga ellefu börn,"
segir blómastelpan. Ballerinan: „Jú, amma
mín átti ellefu börn." „Já, kannski en þaö er
alls ekki hægt að eiga fleiri en ellefu. Ekki
myndi ég vilja eiga ellefu börn því þá þarf
maöur alltaf aö vera að skipta um bleiur,"
segir blómastelpan.
Eru allar fjölskyldur eins?
„Nei, sumir eru svo fátækir að þeir eiga
blómastelpa g ballerína