Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 6

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 6
6 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ TAFLA I. 1. Fyrirburar, sem ekki útskrifast með mæðrum. 2. Léttburar (fullburða minni en 2.600 gr). 3. Ef Apgar 1 mín. 2, eða Apgar 1 mín. + Apgar 5 min. 10. 4. Vansköpuð börn. 5. Nýburar sem fá hypoglycemiu, krampa, meningitis, chroniska sýkingu á fósturskeiði þurfa öndunarhjálp, blóðskipti. 6. Börn mæðra með félagsleg vandamál eða fötlun, svo sem: flogaveiki, geðræn vandamál, ofneyslu áfengis eða fýkni- efna, o.fl. í töflu I eru taldir upp þeir hópar barna, sem við teljum vera í hættu um það að fá miðtaugakerfisskemmdir. Varðandi fyrir- bura, þ.e.a.s. lið 1, er rétt að taka fram að nú á tímum er skil- greiningin á því hvenær barn fæðist fyrir timann ekki eingöngu miðað við þyngdina, heldur meðgöngulengdina. Sé meðgöngulengdin skemmri en fullar 37 vikur, reiknast nýburinn vera fyrirburi. Það getur hins vegar vel komið fyrir að fyrirburar, sem eru fæddir eftir 35—37 vikna meðgöngu séu mjög vel á sig komnir og vegið allt að 3 kg. Það er því ekki endilega víst að barn lendi i þessum áhættuhópi, þótt það fæðist nokkrum vikum fyrir tímann. Það þykir hins vegar nokkuð ljóst að fyrir- buri, sem er veikur og ekki getur horfið til heimahúsa með móður sinni, þegar hún útskrifast af spítalanum eftir fæðinguna, sé í mun meiri hættu um taugakerfisskemmdir heldur en fullburða barn. Helstu hættur, sem steðja að fyrirburum, er öndunarörðugleik- ar, sýkingar, metaboliskar truflanir og síðast en ekki síst vanda- mál við að nærast. Liður 2 fjallar um léttbura, þ.e.a.s. börn, sem eru minni en eðli- legt er miðað við lengd meðgöngunnar. Sé talað um fullburða barn, telst barnið vera léttburi eða lítið miðað við meðgöngu- lengd, ef það er léttara en eða jafnt og 2.600 gr. Fyrirburar geta að sjálfsögðu einnig verið litlir miðað við lengd meðgöngu. Börn fæðast léttburar vegna þess að til þeirra oerst ekki eðlilega mikil næring um fylgju móðurinnar. Þessi næringarskortur getur orðið svo slæmur að vefir líkamans nái ekki að þroskast og bein-

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.