Ljósmæðrablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 24
24
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
HALLA HALLDÓRSDÓTTIR,
Ijósmóöir/hjúkrunarfr.:
Foreldrafræðsla
Eftirfarandi erindi hélt Halla
á ráðstefnunni, sem haldin
var í maí á síöasta ári, og
sýndi með því litskyggnur,
sem við vonum að komist vel
til skila hér, þó munnlegar
skýringar vanti.
Hvað er foreldrafræðsla?
Foreldrafræðsla er sú fræðsla sem veitt er verðandi foreldrum
og takið eftir, báðum foreldrum, ekki viljum við kalla þetta
mæðrafræðslu.
Hvar á foreldrafræðsla að fara fram?
í fyrsta lagi í mæðraskoðun, þar fær verðandi móðir fræðslu
frá ljósmóður, lækni, heilsugæsluhjúkrunarfræðingi og jafnvel
félagsráðgjafa, sjúkraþjálfara og sálfræðingi. Þá ættu verðandi
feður að fá tækifæri og möguleika á að koma einnig, og þyrfti að
auka skilning vinnuveitenda á því að faðirinn á ekki einungis að
vera viðstaddur getnaðinn og fæðinguna, heldur þarf hann líka að
fá ýmsa fræðslu til að vera betur búinn undir fæðingu barnsins
eftir fæðinguna en ekki eingöngu vera áhorfandi.
í öðru lagi á foreldrafræðsla að fara fram á fæðingarstofnun-
um, það er sú fræðsla sem veitt er báðum foreldrum i sængurleg-
unni, og hugsa um andlegan stuðning við móður og föður og
e.t.v. önnur börn þeirra. Er þessi fræðsla að mestu í höndum ljós-
móður, fæðingarlæknis og barnalæknis, koma þó oft margir
aðrir sérfræðingahópar inn í myndina.
í þriðja lagi á foreldrafræðsla að fara fram í ungbarnaeftirliti,
bæði þegar heilsugæsluhjúkrunarfræðingur kemur heim og einnig
er farið er með barnið í eftirlit, þá þarf fræðslan einnig að beinast
til og um foreldrana sjálfa, eins og um barnið.
Síðast en ekki síst, fer foreldrafræðsla fram í námskeiðum fyrir
verðandi foreldra, mun ég fara nánar út í það siðar.