Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 31

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 31
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 31 Rök voru færð fyrir því að aldrei hafi verið tekið tillit til þeirra breytinga sem orðið hafa á námi ljósmæðra á undanförnum árum. T.d. var bóklegt nám við skólann áður 606—608 stundir en er nú 968 stundir, þ.e. aukning um tæplega 60%. Einnig var Iátið koma fram á þessum fundi að ljósmæður hefðu ekki en gripið til uppsagna og á það var jafnframt bent að það hlyti að koma að því, ef ekki yrði tekið tillit til jafnréttiskrafna félagsins. Félagsfundur var síðan haldinn 15. mars ’82 og gerði þar for- maður kjaranefndar Gróa Margrét Jónsdóttir grein fyrir gangi mála. Miklar umræður urðu og tóku þar margar ljósmæður til máls . Þar kom fram að mikil óánægja ríkir meðal ljósmæðra vegna seinagangs í sér-kjarasamningum félagsins. Ljósmæður hafa frá aldaöðli verið mikil láglaunastétt, og er þolinmæði þeirra nú á þrotum og þær orðnar langþreyttar á skiln- ingsleysi stjórnvalda á því vanmati sem er á störfum þeirra, sem eru óumdeilanlega jafnmikilvæg og annarra heilbrigðisstétta, þó vægt sé til orða tekið. Á fundinum kom fram svohljóðandi tillaga sem var samþykkt samhljóða. „Fundur í Ljósmœðrafélagi Islands haldinn 15. mars ‘82 hvetur allar starfandi Ljósmæður innan Ljós- mœðrafélags Islands að segja upp störfum til að knýja á um bœtt kjör. Úrskurður úr kjaranefnd kom síðan þann 1. apríl ’82: ÚRSKURÐUR KJARANEFNDAR skv. lögum nr. 29/1976 um sérkjarasamning Ljósmæðrafélags íslands og fjármálaráðherra f. h. ríkissjóðs frá 1. janúar 1982. 1. Röðun í launaflokka. Ll. Störfum ljósmæðra, sem vinna hjá ríkinu eða stofnunum þess, og þeirra, sem skipaðar eru í umdæmi skv. ljósmæðralögum nr.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.