Ljósmæðrablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 7
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
7
línis verði fyrir svelti. Ef taugakerfið verður fyrir þessu svelti er
hætta á varanlegum skemmdum.
Liður 3 fjallar um skilgreiningu á súrefnsskorti við fæðinguna.
Apgarstig eru gefin við 1 og 5 mín. til þess að meta ástand nýbur-
ans, og gera sér þannig grein fyrir því hvort hann hefur lent i
marktækum súrefnisskorti í fæðingunni. Eins og kunnugt er þá er
einkunnaskalinn i Apgar matinu frá 0—10. Oft er það svo að
börnin láta lítilsháttar á sjá alveg fyrst eftir fæðinguna, en þau eru
yfirleitt mjög fljót að ná sér. Þannig getur verið að nýburi sé blár
á litinn og slappur nákvæmlega 1 mín. eftir fæðinguna, en nái sér
svo fullkomlega á næstu 2—3 mínútunum, og 5 mín. gamall sé
hann orðinn fullkomlega eðlilegur. Er þá talið að ekki hafi orðið
marktækur súrefnisskortur. Ef nýburinn hins vegar nær sér ekki á
fyrstu 5 mínútunum er talið nokkuð öruggt að hann hafi orðið
fyrir marktækum súrefnisskorti, sem þá aftur geti valdið mið-
taugakerfisskemmdum, sem verða óbætanlegar. Ef maður leggur
saman 1 min. Apgar og 5 mín. Apgar hjá hverju barni og fær
samanlagt minna eða jafnt og 10, teljum við að nýburinn hafi lent
í svo miklum súrefnisskorti í fæðingunni að hætta sé á skemmd-
um.
Liður 4 á töflunni fjallar um vansköpuð börn. Vanskapnaðir á
börnum geta verið mjög margvíslegir, allt frá því að vera mjög
smávægilegir upp í það að vera svo slæmir að börnin geta ekki lif-
að. Það verður því alltaf mat þess, sem útskrifar barn frá
fæðingarstofnun, eða skoðar barn fyrst eftir fæðinguna, hvort
vanskapnaður þess er svo mikill að hann geti orðið þroskaferli
barnsins til trafala.
Liður 5 fjallar um nýbura sem eru veikir. Átt er við fullburða
börn, jafnt sem fyrirbura. Börn, sem fá lágan blóðsykur, krampa
eða heilahimnubólgu á fyrstu dögum lífsins, eru i töluverðri hættu
á því að ná sér aldrei fullkomlega eftir veikindin. Ef sýking eins og
t.d. rauðir hundar eða sárasótt kemur fyrir á fósturskeiði geta
orðið, eins og alþekkt er, varanlegir skaðar á fóstrinu. Börn, sem
þurfa öndunarhjálpar við vegna lungnasjúkdóma eða annarra
sjúkdóma á fyrstu dögum eða vikum lifsins, eru ætíð í hættu á því
að verða fyrir skemmdum. Enda þótt blóðskipti séu tiltölulega
auðveld aðgerð, þá skyldi aldrei vanmetin áhættan, sem í aðgerð-
inni er fólgin og einnig hættan, sem felst í þvi að hafa mikið af