Ljósmæðrablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 8
8
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
galllitarefnum í blóðvökva sínum. Það er því fyllsta ástæða til
þess að gefa þessum börnum gætur á fyrstu árum lífsins.
í 6. lið er fjallað um börn, sem vegna ytri aðstæðna og lélegra
heimilishaga, fá ekki þá umhyggju eða hvatningu, sem nauðsyn-
leg er hverju barni til þess að ná þroska, sem það hefur meðfædda
eiginleika til. Það'er ætíð nokkuð erfitt að skilgreina nákvæmlega
eða finna nákvæmlega út þær fjölskyldur eða þær mæður, sem
reynast óhæfar til að annast börnin, en að sjálfsögðu væri hægt
að gera mikið gagn með því að finna þessar fjölskyldur, fylgjast
með þeim og gefa þeim hjálp, bæði félagslega, læknisfræðilega og
andlega, eftir þvi sem þörf er á. Tvímælalaust mætti með þeim
hætti koma í veg fyrir margan vanda síðar meir á Iífsleiðinni.
Rétt er að benda sérstaklega á neyslu áfengis á meðgöngutíma.
Á síðasta áratug eða svo hefir athygli manna beinst að þessu og er
nú ljóst orðið að áfengisneysla á meðgöngutíma getur valdið
fósturskemmdum.
Framkvæmd eftirlitsins
TAFLA II
3 mán. Skoðun í göngudeild
6 — Skoðun í göngudeild
10 — Skoðun i göngudeild
16 — Skoðun í göngudeild
24 — Útskrift — Ákvörðun um framhald
Á töflu II gefur að líta áætlun okkar um framkvæmd eftir-
litsins. Við teljum okkur ekki hafa aðstæður né tíma til þess
að fylgja hverju barni eftir lengur en tvö fyrstu ár ævinnar. Við
teljum hins vegar að á þeim tima verði komin i ljós einkenni um
að barn hafi orðið fyrir meiri háttar varanlegum skaða og þess
vegna verði hægt að finna á þessum tveim fyrstu árum, öll börn,
sem eigi við skerta þroskamöguleika að glíma vegna meðfæddra
galla eða skemmda við burðarmál. Þess ber þó að geta að skert tal
getur komið fram síðar, svo og námsörðugleikar. Með skoðun á
barninu og viðtali við foreldra gerum við okkur grein fyrir þroska
barnsins. Við notum svokallaðan Denver þroskascala til viðmið-