Ljósmæðrablaðið - 01.04.1983, Síða 14
14
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
fæðingarhjálp er tekinn sér og reynt að meta gildi hans, getur það
reynst erfitt. Þannig er um FHR-monitor. Það eru ekki mörg ár
síðan amerískur höfundur hélt því fram, að gildi monitorsins væri
ekki mikið umfram góða yfirsetu með gamla laginu. Sú skoðun er
þó ekki almenn meðal þeirra sem um þetta fjalla. En þegar á
heildina er litið, sérhæfða mæðraskoðun, meðferð sjúkra á
meðgöngudeildum, gjörgæslufæðingar og vökudeildir nýbura,
held ég að engum blandist hugur um árangurinn.
Við höfum horfið frá náttúrlegri fæðingu til nútímafæðingar
eða gjörgæslufæðingar. Náttúrleg fæðing er hættuleg fæðing.
Náttúran vill fyrst og fremst tryggja viðhald tegundarinnar og
gerir það með nægri viðkomu, nægri frjósemi. Hins vegar horfir
hún ekki í að fórna einstaklingum við æxlunina, bæði börnum og
mæðrum. Grindarþrengsl tilheyra náttúrlegri fæðingu, þá getur
barnið ekki fæðst. Fyrirsæt fylgja er annað dæmi um hrákasmíð
náttúrunnar — þá fæðist fylgjan á undan barninu með gífurlegri
blæðingu.
Afskipti okkar af náttúrlegum fæðingum eru eingöngu til þess
ætluð að forðast slys á einstaklingum. Auðvitað leiða þessi
afskipti oft til ónauðsynlegra óþæginda og aðgerða, í þeim
fæðingum, sem eftir á sýna sig að vera eðlilegar. En við höfum
engin önnur ráð betri en að vaka náið yfir öllum fæðingum og að
sínu leyti öllum meðgöngum líka.
Verði slakað á í þessum efnum, má búast við að slysatilfellum
fjölgi á ný.