Ljósmæðrablaðið - 01.04.1983, Qupperneq 33
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
33
Félagsfundur síðan haldinn 6. apríl ’82, um úrskurð Kjara-
nefndar. Á fundinum kom fram mikil óánægja með úrskurð
Kjaranefndar og telja ljósmæður að ekki hafi verið komið
nægjanlega á móts við þær um launaflokkshækkanir og einnig
um örari launaflokkatilfærslur vegna starfsaldurs.
Til áréttingar máli sínu ákváðu ljósmæður á þessum fundi að
undirbúa fjöldauppsagnir, og var það samþykkt nær einróma að
sýna fram á, að ljósmæður láta ekki ganga á rétt sinn lengur.
20. apríl ’82 sögðu nær allar ljósmæður við Kvennadeild
Landsspítalans upp störfum vegna öánægju um launakjör sín.
2. júlí ’82 var samninganefnd Ljósmæðrafélags ísl. boðuð á
fund með samninganefnd ríkisins. Á þessum fundi náðist sam-
komulag um nýjan sérkjarasamning með fyrirvara um endanlegan
frágang og staðfesting biði, þar til næsti aðalkjarasamningur milli
fjármálaráðherra og BSRB hefði verið gerður.
SÉRKJARASAMNINGUR
Ljósmæðrafélags íslands
og
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs
frá 1. ágúst 1982
1. Röðun í launaflokka.
1.1. Störfum ljósmæðra, sem vinna hjá ríkinu og stofnunum þess, og
þeirra, sem skipaðar eru í umdæmi skv. ljósmæðralögum nr.
17/1933 með áorðnum breytingum, skal raðað í launaflokka sem
her segir:
Launaflokkur Starfsheiti
13 Ljósmóðir á fæðingardeild
Ljósmóðir, sem skipuð er í umdæmi samkvæmt
ljósmæðralögum
14 Heilsugæsluljósmóðir
16 Deildarljósmóðir á fæðingargangi
17 Ljósmæðrakennari
18 Ljósmæðrakennari með sérleyfi í kennslugrein
19 Aðstoðaryfirljósmóðir
20 Yfirljósmóðir á fæðingardeild