Ljósmæðrablaðið - 01.04.1983, Page 36
36
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
SÉRKJARASAMNINGUR
Ljósmæðrafélags íslands
og
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs
frá 1. ágúst 1982
1. Röðun í launaflokka.
1.1. Störfum ljósmæðra, sem vinna hjá ríkinu og stofnunum þess, og
þeirra, sem skipaðar eru í umdæmi skv. ljósmæðralögum nr.
17/1933 með áorðnum breytingum, skal raðað í launaflokka sem
her segir:
Launaflokkur Starfsheiti
13 Ljósmóðir á fæðingardeild
Ljósmóðir, sem skipuð er í umdæmi samkvæmt
ljósmæðralögum
14 Heilsugæsluljósmóðir
16 Deildarljósmóðir á fæðingargangi
17 Ljósmæðrakennari
18 Ljósmæðrakennari með sérleyfi í kennslugrein
19 Aðstoðaryfirljósmóðir
20 Yfirljósmóðir á fæðingardeild
1.2 Ljósmóðir í 13., 14, og 16. launaflokki hækki um einn launaflokk
eftir 3 ár í starfi hjá ríkinu og stofnunum þess við ljósmóðurstörf
eða í launuðu ljósmóðurnámi og um annan launaflokk eftir 6 ár í
starfi.
1.3 Aðstoðaryfirljósmóðir í 19. launaflokki og yfirljósmóðrir í 20.
launaflokki hækki um einn launaflokk eftir 4 ár í því starfi.
1.4 Við 9 ára starfsaldur hækki framangreind starfsheiti (í 1.1) um einn
launaflokk.
2. Vinnufatnaður
2.1 Ljósmæður, sem starfa á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum,
eiga rétt á nauðsynlegum vinnufötum og vinnufataþvotti sér að
kostnaðarlausu eins og verið hefur.