Ljósmæðrablaðið - 01.12.1985, Side 11
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
47
leiðir síðan til þess að þeir verða óöruggir í framkomu á meðan á
þessu stendur. Einnig er það erfitt fyrir þá að horfa á konuna
þjást og finnst þeir lítinn stuðning geta veitt þeim.
í gegnum árin hefur það ekki þótt tilhlýðilegt að karlmaður
gráti eða sýni tilfinningar sínar á annan hátt. Þetta getur háð hon-
um í sorginni. Hve sjaldan karlmaður sýnir tilfinningar sínar get-
ur verið vegna þess að honum finnst að hann eigi að vera sterki
aðilinn. Þarna getur komið upp misskilningur, því með því að
reyna að vera sterkur og veita stuðning getur konan haldið að
honum sé sama. Ef ekki er talað um þetta og karlmaður sýnir
engin sorgarviðbrögð er ekki undarlegt að hún haldi þetta. Eftir
að konan hefur sætt sig við orðinn hlut, fer karlmaðurinn að
syrgja. Þeir verða e. t. v. þunglyndir því þeir hafa haldið aftur af
sinni sorg. Með þessu er e. t. v. hætta á að þeir staðni á einhverju
stigi í sorgarferlinu.
Verði konan aftur ófrísk lætur hún oft í ljós hræðslu sína við að
missa fóstrið en karlmaðurinn ekki, en það skiptir konuna minna
máli þar sem hún er svo upptekin af sjálfri sér.
Sektarkenndin kemur líka upp hjá karlmanninum. Hann sér
kannski konu sina þjást og finnst hann vera ábyrgur fyrir því.
Honum hefur e. t. v. mikið langað til að eignast barn. Þeir hugsa
oft að þeir ætli ekki að leggja þetta aftur á konuna. Hugsanagang-
ur hjá körlunum er sambærilegur og hjá konunni, því það er eins
og með kvenímyndina hjá konunni, þá finnst karlmanninum hans
ímynd skerðast. Það hefur alltaf verið talið bera vott um karl-
mennsku að eiga mörg börn.
Hafi manninn langað mikið til að eignast barnið er hann e. t. v.
farinn að líta á sig í nýju hlutverki. Síðan bregst þetta og hann
verður að halda áfram að horfa á sig í sama hlutverki. Þetta er
samsvarandi og hjá konunni, þar sem þetta nýja hlutverk bregst
hjá henni.
Að finna orsökina er mjög ríkur þáttur hjá konu sem missir
fóstur. Hugmyndir þeirra eru mjög misjafnar um hvað hafi farið
úrskeiðis. Eftirfarandi tafla sýnir svörin:
Vanskapað barn 19%
Veikindi/slys/lyf snemma á meðgöngu 11 %
Vinnuálag 11%
Hormónatruflanir 10%