Ljósmæðrablaðið - 01.12.1985, Qupperneq 21
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
57
mæðra. í hópnum voru: Eva S. Einarsdóttir tilnefnd af LMFÍ,
Helga Sóley Torfadóttir tilnefnd af Ljósmæðradeild HFÍ og Dóra
Halldórsdóttir BHM.
Tillögur starfshópsins voru síðan settar fram og til umræðu á
fræðslufundi 24. nóv. ’84. í framhaldi af því voru síðan unnin
drög að nýjum félagslögum.
Til stóð að halda trúnaðarmannanámskeið sl. haust, en af því
varð ekki vegna verkfalls. Því var ætlunin að halda námskeiðið í
mars um leið og endurmenntunarnámskeiðið, en af því gat ekki
orðið vegna óviðráðanlegra orsaka. Ákveðið er að reyna áfram og
þá núna í apríl.
í vetur hefur stjórnin verið að kynna sér greiðslur lífeyrissjóðs
ljósmæðra, sem er vægast sagt mjög bágborinn. í framhaldi af
því verður athugað hvort ekki sé möguleiki á annarri og betri
lausn þessara mála.
Sex ljósmæður útskrifuðust frá Ljósmæðraskóla íslands 17.
júní 1984. Ljósmæðrafélagið býður þær hjartanlega velkomnar í
okkar hóp.
Ljósmæður sem setið hafa fundi og ráðstefnur f. h. félagsins á
sl. ári.
Stjórnarfundur N.J.F. í Hamar í Noregi í lok maí 1984.
Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir, Hulda Jensdóttir.
Fulltrúar LMFÍ á fundi ICM í Sydney í sept. sl. Kristín I.
Tómasdóttir, Matthea G. Ólafsdóttir.
Bandalagsráðstefna 29. og 30. jan. 1985. Guðrún Björg Sigur-
björnsdóttir.
D. Reikningar félagsins, einnig ársreikningar Ljósmæðratalsins,
lagðir fram.
Fundarstjóri gefur orðið laust.
Engar athugasemdir eru gerðar, þeir skoðast því samþykktir.
2. Minningarsjóður ljósmæðra. Kristin I. Tómasdóttir yfirljós-
móðir gerir grein fyrir sjóðnum og reikningum hans i forföllum
Dýrfinnu Sigurjónsdóttur. Innistæða er nú kr. 34.407,16.
Minningarsjóður Þuríðar Bárðardóttur. Kristín I. Tómasdóttir
yfirljósmóðir gerir grein fyrir sjóðnum í forföllum Jóhönnu
Þorsteinsdóttur, sem bað fyrir bestu kveðjur til fundarmanna.
3. Skýrslur landshlutadeilda LMFÍ. Margrét Þórhallsdóttir les
starfsskýrslu Norðurlandsdeildar.