Ljósmæðrablaðið - 01.12.1985, Side 27
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
63
Næsta mál á dagskrá eru ný lög og reglur Ljósmæðrafélags
íslands. Fundarstjóri, Jónína Ingólfsdóttir, les upp og kynnir,
biður síðan fundarmenn að athuga þau vel, en umræður og kostn-
ingar fari fram eftir kaffihlé.
Tillögur að nýjum lögum og reglum Ljósmæðrafélags íslands
voru sendar félagsmönnum ásamt fundarboði aðalfundar í lok
febrúarmánaðar.
Skýrsla kjaranefndar
Gróa M. Jónsdóttir kynnir sérkjarasamning LMFÍ og kröfu-
gerð, segir einnig frá viðræðum við Samninganefnd ríkisins.
Nokkrar umræður verða um þessi mál. Þær sem tóku til máls eru
Elín Stefánsdóttir, Matthea Ólafsdóttir, Elín Sigurðardóttir,
Sólveig Þórðardóttir, Steinunn Finnbogadóttir.
Áberandi er í umræðum, hve ljósmæður utan af landi eiga í
miklum erfiðleikum með launa- og kjaramál sín.
Elín Sigurðardóttir, Stykkishólmi, spyr hvort LMFÍ geti gert
ramma um kjarasamning fyrir ljósmæður við litlu sjúkrahúsin,
svo sem um bakvaktir. Gróa lýsir því, að eins og málum sé háttað
í dag, verði ljósmæður að semja um sín laun við viðkomandi
bæjarfélög, en Ljósmæðrafélag íslands sé reiðubúið að veita þeim
upplýsingar ef óskað sé.
Sólveig Þórðardóttir, Keflavík, tekur til máls og þakkar Gróu
M. Jónsdóttur fyrir hennar mikla starf í sambandi við kjaramál
ljósmæðrafélags íslands. Sólveig varpar fram þeirri spurningu,
hvort ekki sé tímabært að Ljósmæðrafélag íslands semji fyrir
allar ljósmæður á landinu. Umræður um þessi mál hefðu komið
fram á aðalfundi Suðurnesjadeildarinnar. Sólveig þakkar síðan
stjórn og nefndum Ljósmæðrafélags íslands vel unnin störf.
Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir svarar því til að unnið verði að
athugun á þessum málum.
Kaffihlé.
Kl. 16.00. Fundi framhaldið.
5. Næsta mál á dagskrá er kosning og umræður um ný lög og
reglur Ljósmæðrafélags Islands. Þær sem taka til máls: Vilborg
Einarsdóttir, Margrét Þórhallsdóttir, Gróa M. Jónsdóttir,
Matthea Ólafsdóttir, Elín Stefánsdóttir.