Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Blaðsíða 22

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Blaðsíða 22
frumur á hverri mínútu. Fullmótaður er heilinn líffæri, sem er samansettur af 100 miljörðum taugafruma og 1000 bil- jónum rétt samansettra tengileiða. Sennilega líða nokkur ár frá fæðingu þar til gerð heilabrauta og samtenginga er að fullu lokið. Bent hefur verið á að þessar mörgu tengingar heilafruma hjá barninu geri það að verkum að það á svo auðvelt með að tengja saman sem raun ber vitni og á jafnframt erfitt með að einbeita sér að einum hlut i einu. Hvað snýr upp? Um það bil tveimur mánuðum eftir frjóvgun hefur fóstrið tekið á sig mannsmynd og lifir sjálfstæðu lífi. Það svamlar um i þyngdarlausu ástandi í volgu legvatninu og veit ekki hvað snýr upp og hvað snýr niður. Það virðist geta orðið sjóveikt ef mamman hoppar, snýr sér í hringi eða rólar sér. Jafnvæg- isliffærið þroskast vissulega snemma frá líffræðilegu sjónarmiði séð, en virk- ar greinilega ekki fyrr en eftir fæð- inguna. Sennilega sefur fóstrið að mestu og þá aðallega draumsvefni. I þessum draumsvefni andar fóstrið, grettir sig og hreyfir. Þvi þroskaðra sem fóstrið verður, þeim mun meira sefur það værum svefni þar sem það hreyfir sig lít- ið og andar með löngu millibili. Þessi tímabil verða lengri og lengri fyrirbæri dagana fyrir fæðingu og margir vís- indamenn velta þessu fyrirbæri fyrir sér. Hvaða þættir eru það sem hafa áhrif á öndun fóstursins? Svarið við þeirri spurningu er áhugavert þar sem börn fædd fyrir tímann gleyma oft að anda. Jafnvel eldri börn, 2—4 mán- 20 _________________________________ aða, geta gleymt að anda og deyja s.k. vöggudauða. Flest allar þessar upplýs- ingar um svefnvenjur fósturs eru byggðar á rannsóknum á dýrum. Hávaði og sársauki Fóstrið lifir ekki i þögulum heimi, því í raun er oft mjög hávaðasamt þarna inni. Hljóð myndast við þarmahreyfing- ar móður svo og hjartslátt hennar. Hið nýfædda barn á því að geta sofið án sérstakrar einangrunar. Einnig berast hljóð utan frá og inn og margar mæður taka eftir því að fóstrið bregst við mikl- um utanaðkomandi hávaða. Við óm- skoðun sést að fóstrið blikkar augunum, þegar það verður fyrir miklum hávaða. Nýverið hefur verið sýnt fram á það að fóstur eru miklu viðkvæmari fyrir sársauka en áður var haldið og virðast vera viðkvæmari fyrir honum en full- orðnir. Það hefur sýnt sig að fyrstu fóst- urhreyfingarnar byrja u.þ.b. þegar heilinn er nógu þroskaður til þess að móttaka snertiskynjun. Er fætur og hendur fóstursins snerta veggi legsins leiðir það til taugaboða og fóstrið dreg- ur að sér fót eða hönd. Þessar hreyfing- ar eru nauðsynlegar til þess að taugakerfi fóstursins geti þroskast. Hreyfimynstur fósturs er næstum það sama og hjá nýburum. Fóstrið sparkar, baðar út höndunum, snýr höfðinu, kinkar kolli, geyspar, sýgur puttann og kyngir. Þekking á sársaukaskyni fóstursins er nauðsynleg, m.a. í sambandi við skurðaðgerðir á fóstrum í móðurkviði, sem við sjáum sennilega meira af í fram- tiðinni. ________________ 1_IÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.