Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Blaðsíða 25
handbók sem þær gætu alltaf borið á
sér og jafnframt nýtt sem dagbók, t.d.
til að skrá í vaktaskema og fleira.
Hver var fyrirmyndin að bókinni?
Fyrirmyndin er handbók ljósmæðra
sem gefin er út í Bretlandi. Þessi bók er
þó töluvert mikið frábrugðin, einkum
að því leyti að meira er lagt upp úr fag-
legum upplýsingum, en minna plássi
eytt í dagatal og almennar upplýsingar.
Þessi bók er líka vandaðri að mörgu
leyti t.d. hvað varðar útlit og gerð
pappírs.
Hvaðan er nafnið á bókina komið?
Nafn bókarinnar ,,Fylgja“ er frá okk-
ur Margréti Guðmundsdóttur komið
og fannst okkur það mjög við hæfi sem
nafn á handbók fyrir ljósmæður, þar
sem fylgjan er eitt mikilvægasta líffæri
meðgöngunnar. Eins má segja að fylgja
sé eitthvað sem fylgir manni hvert sem
er, og á það sannarlega vel við um
bókina.
Hver var kostnaðurinn við gerð bók-
arinnar?
Bókin var að mestu unnin í sjálfboða-
vinnu, fyrir utan prentun og bókband.
Annars hefði hún orðið svo dýr að nær
ótækt hefði verið að gefa hana út.
Þess má geta að móðir mín, Edda
Svavarsdóttir, lagði fram mikla vinnu
við ritvinnslu og setningu bókarinnar
endurgjaldslaust. Einnig vann afi
minn, Svavar Jóhannsson, að setn-
ingu og prentun fyrir aðeins hluta af
raunhæfu verði. Maðurinn minn,
Sverrir Kristfinnsson, sá svo um mynda-
tökur í bókina ásamt afa.
Þessi fjölskyldutengsl gáfu mér færi
á að fylgjast vel með og taka þátt í
tæknilegri vinnu við gerð bókarinnar.
Þessi nána samvinna átti tvímælalaust
sinn þátt í því hve vel tókst til við útgáfu
bókarinnar.
Markmiðið var frá upphafi að halda
kostnaði í algjöru lágmarki, sem alltaf
er erfitt þegar upplag bókar er lítið, og
hún sniðin fyrir fámennan hóp. Eg tel
þó að það hafi tekist og í framtíðinni
mun bókin væntanlega verða enn ódýr-
FYLGJA
HANDBOK
LJÓSMÆÐRA iyyU
ari, þar sem ekki þarf eins mikla for-
vinnu.
Bókin er seld á kostnaðarverði og
reynt var að halda sig við það verð sem
áætlað var í byrjun. Til að finna út hver
stærð upplags ætti að vera, var send út
tilkynning til ljósmæðra um allt land og
ljósmæðrablaðið
23