Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Blaðsíða 28

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Blaðsíða 28
 ÓLAFUR ÓLAFSSON, landlæknir: Líknardauði — itknardráp Nokkrar umræður um líknar- dauða/líknardráp hafa farið fram að undanförnu trúlega vegna þess að líf- færaflutningar gerast nú tíðari. Líkt og oft áður erum við seinni til en ná- grannaþjóðir, en þar hófst umræða um þetta mál fyrir 10—15 árum, trú- lega vegna betri tæknilegra möguleika til líffæraflutninga. I aldir hafa þessi mál verið rædd meðal lækna. T.d. má minna á að í her- læknisfræðinni var og er læknum og hjúkrunarfólki kennt að í fyrstu yfirferð á vígvellinum eftir orustu sé rétt að sinna frekar særðum hermönnum sem eiga sér lífsvon en þeim sem eru hel- særðir. Þetta er einnig ríkjandi stefna í nútíma stórslysalæknisfræði. Það hef- ur tíðkast á sjúkrahúsum að hætta með- ferð eða jafnvel að hefja ekki meðferð þegar engin von er um líf. Dæmi: Alhliða næringarmeðferð er hætt, sjúklingar teknir úr öndunarvél- um eða sjúklingur ekki settur í nýrnasíu. Þetta eru erfiðustu ákvarðanir sem læknir tekur á lífsleiðinni enda undan- tekningalaust teknar eftir ítarlega at- hugun og meðal annars hin síðustu ár eftir nána athugun á heilastarfsemi við- komandi sjúklings. Nú er með fullri vissu unnt að ganga úr skugga um hvort um heiladauða er að ræða eða ekki. Þar af leiðandi er ekki réttmætt að kalla þann verknað líknardráp, þó að öndunarvél sé stöðvuð í þessu tilfelli. 26 ____________________________________ Heiladauður maður er horfinn héð- an. A íslenskum sjúkrahúsum er ætíð leitast við að eiga náið samráð við nán- ustu ættingja um framangreindar að- gerðir eða aðgerðaleysi, en stundum er það ekki unnt t.d. ef sjúklingur er einstæðingur. Jafnframt hafa læknar samráð sín á milli svo og við hjúkrunar- fólk. Ef Ijóst er að engin lífsvon er og meðferð er hætt eða ekki hafin deyr sjúklingur líknardauða. Það er vel í ætt við upprunalega þýðingu orðsins Eutha- nasia eu = góður, hægur, thanatos = dauði þ.e. ,,hinn góði dauði“. Aðr- ar þjóðir nefna þessa aðgerð gjarnan dauðahjálp (t.d. dödshjalp í sænsku). Samkvæmt merkingu orðsins er lækn- um skylt að sýna sjúklingi umhyggju, hlýju og leitast við að lina þjáningar hans eftir fremsta megni og gera hon- um síðustu dauðastundirnar sem létt- bærastar. Þessi athöfn á því lítið skylt við dráp í mínum huga, þó að sumir lög- fræðingar séu ekki sammála mér. Ég trúi því að sú aðgerð, ef rétt er að verki staðið, sé gerð með samþykki almenn- ings og að kristnir siðfræðingar viður- kenni réttmæti þessa. A síðustu tímum hafa sumir viljað leggja aðra merkingu í þetta orð, þ.e. lækni sé skylt og rétt að stytta líf deyj- andi manns sem þjáist af kvalafullum sjúkdómi. Ef læknar valda dauða sjúk- lings með lyfjum eða aðgerð, þ.e. deyða sjúkling í líknarskyni eða að- 1—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.