Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Qupperneq 32
— Fullvissa konuna um að allt sé í lagi
með fóstrið og að mjög vel sé fylgst
með því.
— Etv. þarf að hafa rökkvað herbergið
og halda heimsóknum í lágmarki,
þá er nauðsynlegt að útskýra tilgang
fyrir aðstandendum.
— Gefa næringarríka drykki milli mála.
— Halda nákvæman vökvaskema.
— Hvetja konuna til að drekka vel.
— Gefa vítamín.
— Miklu máli skiptir að konan fái góð-
an stuðning og hvatningu frá starfs-
fólki meðan þessi erfiði tími stendur
yfir.
Þegar konan getur farið heim þarf
að gefa henni góða fræðslu um
hvernig sé best að haga sér í
sambandi við mataræði o.fl.
Kenna konunni að þekkja áhættu-
þætti og bregðast við þeim.
Fara rólega í að borða. Reyna að
velja mat eftir næringargildi. Ráð-
leggja litlar tíðar máltíðir, drekka
vel, taka vítamín o.s.frv.
Leggja áherslu á að þeim mun fyrr
sem brugðist er við þeim mun minni
hætta á að ástandið verði slæmt.
Einnig að heilsu hennar og fósturs-
ins sé fyrir bestu að meðhöndlun
hefjist sem allra fyrst.
Útskýra fyrir henni að fylgjast verði
sérstaklega með henni og fóstrinu í
mæðraeftirlitinu.
Lyf:
Mjög oft þarf konan á lyfjum að halda
(róandi) á meðan ástandið gengur yfir.
Þau lyf sem mest eru notuð eru anti-
histamín og antiemetica s.s. Stemetil,
Phenergan, Torecan, Postafen, Anaut-
in o.fl.
30 ----------------------------------
í mjög slæmum tilfellum er stundum
notað lyf af neurolepticum flokki s.s.
Nozinan og Eusokos. Þessi lyf eru vitan-
lega öll gefin eftir fyrirmælum læknis.
Þau eru gefin fast á ákveðnum tímum
eða eftir þörfum í ákveðinn tíma.
Þegar lyf eru gefin þarf að muna að
útskýra vel fyrir konunni verkun þeirra
og að þau hafi ekki skaðvænleg áhrif á
fóstrið í þessum skömmtum sem gefnir
eru.
Það hvort lyfin hafi áhrif á fóstrið er
brennandi spurning hjá flestum konum
en margar þora jafnframt ekki að spyrja
um þetta og jafnvel hugsa ekki út í þetta
fyrr en eftir að þeim fer að líða skár.
Antihistamín verka beint á stöð A og
minnka þar með ógleði. Þau hafa einn-
ig róandi verkun. Neurolepticum virkar
oftast á heilabörk. Öll þessi lyf af hvor-
um flokknum sem er virka vel á ógleði.
Jafnframt á spennu, hræðslu, kvíða,
óróa og svefnleysi.
Helstu aukaverkanir þessara lyfja
eru munnþurrkur, syfja, hægðatregða,
orthostatisk hypotensio, sljóleiki og
etv. húðútbrot. Aukaverkanir eru þó
litlar við skammtímanotkun. Lyfin hafa
þó mismiklar aukaverkanir. Sjálfsagt er
þó að hafa þessar aukaverkanir í huga
ef konur kvarta undan þessu.
Heimildir:
Fundamentals of obstetrics and gynaecology.
Volume 1. Obstetrios Derek Llewellen-Jones.
Faelleskatalog. 1981.
Fass. 1982 og 1986.
Williams Obstetrics. Pritchard, McDonald,
Gant. bls. 260-261 og 613.
Maternity and gynaecologic care. Jensen og
Bobak. 3ja útg. 1985, bls. 280 og 995-996.
Comprehensive Maternity Nursing. Nelson
og May, 1986, bls. 495-496.
Upplýsingar frá starfsfólki á 23B.
I—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ