Ljósmæðrablaðið - 01.05.1990, Page 42
Mótefnamælingar og
bólusetningar gegn rauðum
hundum
Sjúkdómurinn rauðir hundar hefur
verið skráningarskyldur á Islandi sfðan
árið 1888. Vel afmarkaðir faraldrar
komu á 5—10 ára fresti og gengu yfir á
um það bil 12 mánuðum. Árið 1938
tókst að sýna fram á að veira var orsök-
in fyrir rauðum hundum. Árið 1941
gerði ástralskur augnlæknir, Gregg að
nafni, stórmerkilega uppgötvun. Hann
tók eftir óvenju algengri blindu meðal
nýfæddra barna. Honum tókst eftir
miklar rannsóknir að komast að því að
mæðurnar höfðu fengið rauða hunda
á meðgöngutímanum. Á þessum tíma
geysaði mikill rauðuhundafaraldur.
Einnig var mikið um aðra galla, svo
sem heyrnaleysi, hjartagalla og andleg-
an vanþroska. Rauðuhundaveiran var
ekki einangruð fyrr en 1962 og sama
ár var fyrst leyft að nota bóluefni.26
Árið 1954—55 gekk faraldur yfir og
voru þá leyfðar fóstureyðingar af lækn-
isfræðilegum ástæðum vegna rauðu-
hundasýkingar. I faraldrinum sem
gekk yfir 1963—64 voru gerðar 77
fóstureyðingar vegna rauðuhundasýk-
ingar, en af um 5000 fæddum börnum
á þessu tímabili voru 37 börn með mikla
fósturgalla. í faraldrinum sem gekk
1978—79 voru gerðar 104 fóstureyð-
ingar vegna rauðuhundasýkingar.26 Ár-
ið 1974 var byrjað að gera H.I. próf
hjá öllum barnshafandi konum á Is-
landi við fyrstu komu í mæðraeftirlit.
H.l. prófið (Hemaglutinationsinhibiti-
on test) er mæling á mótefnum líkam-
ans gegn rauðuhundasýkingu og hefur
verið notuð síðan 1967.22
40 ________________________________
Tilgangurinn með H.I. prófinu er að
finna þær konur sem ekki hafa nægi-
legt mótefni eða hafa nýlega orðið fyrir
rauðuhundasýkingu. Konur sem ekki
hafa nægilegt mótefnamagn eru bólu-
settar í sængurlegunni eftir fæðingu. Ef
nokkur grunur er um sýkingu hjá
barnshafandi konum, er fylgst vel með
mótefnaaukningu í blóði með endur-
teknum rannsóknum í meðgöngunni.
Árið 1976 byrjuðu mælingar á mót-
efnum hjá 12 ára stúlkum á Reykjavík-
ursvæðinu og á Akureyri 1979. Þrem-
ur árum síðar byrjuðu mælingar um
land allt og hefur það verið gert árlega
síðan. Þær sem mælast neikvæðar hafa
ekki fengið sjúkdóminn og eru bólu-
settar.22
Konur sem mælast með Hig 8.0 eða
meira eru jákvæðar sem þýðir að þær
hafa fengið rauða hunda eða hafa ver-
ið bólusettar, því er ólíklegt að þær fái
sjúkdóminn.22 Bóluefnið sem notað
er, samanstendur af lifandi veikluðum
veirum af stofninum RA 27/3 og er tal-
ið gefa góða vörn gegn endursýk-
ingu.26 Konum er ráðlagt að verða alls
ekki barnshafandi á fyrstu 3—4
mánuðunum eftir bólusetningu, þá er
hættan mest á fósturskemmdum. Eini
tilgangurinn með bólusetningu er að
koma I veg fyrir sýkingu fósturs á með-
göngutíma.
I—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ