Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1990, Blaðsíða 28

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1990, Blaðsíða 28
fram, heldur þurfa þau málefni sem rædd eru að vera faglegs eðlis og snerta starfið beint eða óbeint. Og fullkomin þagnarskylda þarf að ríkja, ekkert sem rætt er í hópnum skal leka út fyrir hann. Fræðsla í samskiptafærni er af hinu góða. Má þá nefna námskeið í sjálfs- styrkingu og almennum samskiptum. Dæmi um það sem má læra í sjálfsstyrk- ingu eru eftirfarandi atriði: Akveða hvað þú vilt eða hvað þér finnst, og koma því skilmerkilega frá þér. Halda fast við skoðun þína og end- urtaka hana aftur og aftur ef þörf krefur. Svara fyrir þig á ákveðinn hátt þó lít- ið sé gert úr skoðunum þínum. Það getur svo sannarlega verið erfitt að framkvæma ofangreint þegar við- mælandi er t.d. reiður, niðurlægjandi og ósanngjarn. Það er svo auðvelt að verða reiður sjálfur eða bara gefast upp og sitja inni með óþægindi. Dæmi um fleira sem má fræðast um í samskiptum fólks er það, hvernig spurt er. Til eru svokallaðar lokaðar spurningar þannig að þær í rauninni kalla bara á svörin já og nei. Svona spurningum er hægt að beita á neikvæðan hátt, því að þær hvetja ekki fólk til að láta óskir sínar og til- finningar í ljós. Andstæðan eru opnar spurningar, sem beinlínis bjóða upp á frelsi í svörum og hvetja til frekari sam- ræðna. Margt er hægt að tína til en ég álít að öll slík fræðsla sé af hinu góða, hvort sem hún er fyrir ljósmæður, lækna, afgreiðslufólk eða kennara. 26 ___________________________________ Einhverjum kann að finnast út í hött að sálfræðingur úti í bæ sé að skrifa um innanbúðarmál hjá ljósmæðrum! En svo þarf ekki endilega að vera. Þegar um samskipti fólks er að ræða, eru lögmálin svipuð, hvar sem er. Það sem ef til vill er eitthvað öðruvísi, er að kröf- urnar til jákvæðra samskipta gagnvart skjólstæðingum heilbrigðisstéttarinnar eru miklar. Þeir sem koma inn á sjúkra- stofnun eiga rétt á að fá skýr svör, bestu fáanlegu aðhlynningu, bæði fag- lega og persónulega. Þetta eru miklar kröfur. Heimildir 1. Guðný Anna Arnþórsdóttir, Geð- vernd, 20. árg., 1. tbl., 1/1989. 2. Sveriges Psykologförbund. Psy- kolog Tidningen 23. 1988, 26. febr. —11. mars, bls. 4—6. 3. Margaret Stearn. Nursing, Third Series, January 1986, Volume 3, No. 1. 4. Ann Tomlinson. Nursing, Third Series, March/April 1988, Volume 3, No. 27. 5. Sveriges Psykologförbund. Psy- kolog Tidningen 4. 1989, 26. febr, —11. mars, bls. 10—11. 6. Nursing, Third Series, June/July 1988, Volume 3, No. 28. I—IÓSMÆÐR ABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.