Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.1937, Blaðsíða 11

Freyr - 01.07.1937, Blaðsíða 11
F R E Y R ÍOS Danmörku, með styrk landbúnaðarfé- lagsins danska og ríkisstjórnarinnar. Varð að þessu gott gagn og lærðu nokkr- ir menn af áveitufræðingum þessum hin helztu handtök að slíkum verkum, og gátu síðan haldið þeim áfram. En mestu munaði um það, að síðan 1873 hafði fé- lagið í þjónustu sinni einn eða fleiri bú- fræðinga, sem ferðuðust um sveitir og at- huguðu búnað manna, gáfu leiðbeining- ar um ýmiskonar búnaðarframkvæmd- ir og höfðu verkstjórn á hendi, eftir því sem á stóð og hentugleikar leyfðu. Þess- ari starfsemi hélt félagið áfram, allt til þess er það hætti störfum 1899. Hafði það sjö menn í þjónustu sinni undir þessa grein, þegar flest var. Af þeim mönnum, sem hjá félaginu unnu, má hér einkum nefna Svein Sveinsson, síðar skólastjóra á Hvanneyri, Björn Bjarnarson, síðar bónda í Grafarholti, Sæmund Eyjólfs- son guðfræðing, Sveinbjörn Ólafsson frá Hjálmholti, Ólaf Ólafsson síðar bónda í Lindarbæ, Einar Helgason garð- yrkjumann og Sigurð búfræðing Sigurðs- son frá Langholti í Flóa. Allir þessir menn gegndu miklum störfum fyrir fé- lagið við margskonar jarðabætur: Á- veituverk, garðyrkju, sandgræðslu, fyr- irhleðslur, framræslu og mælingar ýms- ar, sem hér er of langt að telja. En efa- laust er, að með þessu vann félagið drjúgum að því að efla jarðrækt í Sunn- lendingafjórðungi á síðustu tugum 19. aldar. Búnaðarfélag Suðuramtsins varð aldrei mjög f jölmennt. Einna flestir voru félags- menn um það leyti, er félagið hætti störf- um 1899, 320 alls. En þess er að gæta, að þá voru hreppabúnaðarfélög stofnuð víðs vegar og þátttaka bænda í búnaðarsam- tökum talsvert almenn orðin, þótt mikið skorti enn á, að hún væri svo almenn sem skyldi. Árið 1842 var fyrsta'sveitar- búnaðarfélag hér á landi stofnað, Bún- aðarfélag Bólstaðarhlíðar- og Svína- vatnshrepps, merkilegt félag fyrir flestra hluta sakir og lang elst allra búnaðarfé- laga sem nú starfa hér á landi. Á næstu árum risu lík félög í Árnessýslu, Búnað- arfélag Gnúpverjahrepps 1843 og Bún- aðarfélag Hrunamannahrepps og Hraun- gerðishrepps 1845, Öll þessi félög störf- uðu talsvert að jarðabótum við það sem þá var títt. Um og eftir 1850 varð tals- verð hreyfing í Múlasýslum, Þingeyjar- sýslu, Árnessýslu og Borgarfjarðarsýslu um héraðssamtök til framfara búnaði og varð nokkuð ágengt. Samtök þessi kuln- uðu út syðra vegna fjárkláðans síðara 1856. En nyrðra og eystra gerði harð- indi mikil um 1858—1870 og dróu all- an kraft úr samtökum þessum. Um 1874 fer aftur að rofa til og úr því dregur fram um 1880 tekur félögum að fjölga og einkum um og eftir 1888, en það ár hefjast beinar fjárveitingar úr lands- sjóði til félaganna. Mikill styrkur varð það búnaðarsamtökunum út um sveitir Iandsins, er búnaðarskólarnir tóku að starfa og áhrifa tekur að gæta frá þeim víða um landið. Ólafsdalsskólinn var stofnaður 1880, Hólaskóli 1882, Eiða- skóli 1883 og Hvanneyrarskóli 1889— ’90. Þótt skólar þessir væru yfirleitt fá- tækir, og ætti við þröng kjör að búa, er efalaust að þeir höfðu mikil áhrif um að efla verklega kunnáttu, og áhuga á bún- aðarframkvæmdum og samtökum og samvinnu um búnaðarefni. Svo þegar Búnaðarfélag Islands var stofnað, horfði mjög á annan veg um þáttöku bænda í slíku félagsstarfi en löngum fyrr, og má reyndar kalla, að þar með sé fullkomn- að verk, sem hafið var þá fyrir rúmum 60 árum, um að vekja bændur landsins til

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.