Freyr

Volume

Freyr - 01.07.1937, Page 29

Freyr - 01.07.1937, Page 29
F R E Y R 123 ir þaS kjötið stórlega í verði, vegna þess að kjötkaupmenn treysta sér ekki til þess að hafa slíkt kjöt til sýnis í búðum sínum. Ef brögð eru að alvarlegum skemmd- um, þá er bannað að nota kjötið til mann- eldis. En þó skemmdirnar séu smávægi- legar, þá lýta þær kjötið, gera erfitt með sölu þess og stórlækka verðið. Til þess að sýna, hvaða áhrif þungi kroppanna, hlutfallslega við gæði, hefir á verð kjötsins, vil ég birta eftirfarandi töf lu. Tölurnar sýna meðal heildsöluverð í London, fyrir mismunandi þunga og gæða- flokka, af frosnu dilkakjöti frá Argentínu á tímabilinu frá nóvember til marz 1935— 38. Kjötið er fyrst flokkað eftir þyngd og svo metið eftir holdafari og útliti í I., II. og III. flokk. SKROKKAÞUNGI (lbs. ensk pund) MEÐALVERÐ í d. per lb. 1 lb. ~0.454 kg., ld. = 9.23 aurar (ld. pr. lb. = 20 aurar pr. kg. GÆÐAFLOKKUR I. ii. III. 28 lbs. og léttari 7,5 6,9 6,4 29—36 lbs 7,1 6,5 6,0 37-42 - 6,6 6.21 5,5 43-50 - 6,3 6,0 J 50—60 — (af meira en • þs árs gomlu fé) 5,7 5,3 — Þetta sýnir, að mun lægra verð fæst fyr- ir pundið í þungum kroppum en léttum. Hærra verð fæst fyrir III. fl. kjöt 28 lbs. og léttari en fyrir I. fl. kjöt 43—50 lbs. 1) Tafla þossi er tekin úr fyrirlestri, sem Dr. J. Hammond, Scool of Agriculture Cam- bridge, flutti á Alþjóðamóti sauðfjárframleið- enda í Wolfer-Hampton 5. júlí s. 1., og birt hér með hans leyfi. Hún er samin af Dr. Juan B. Vergés,, frá Buenos Aires, Argentínu. Það þolir ekki samanburð Hvernig fullnægir yjg allnag dilkakjöt, Sem islenzka kjotiS j?juj-j- QY jnn £ enska mai’k- þessum krofum l aðmn, hvorki að gæðum yfirleitt eða flokk fyrir flokk. Ilelztu kostir íslenzka kjötsins eru þess- ir: — 1. Að allmikið af kroppunum eru litlir, vega undir 15 kg. 2. Kjötið er og tal- ið sérlega bragðgott. Það hefir líka ýmsa galla. Sumpart eru þeir fjárkyninu og meðferð fjárins að kenna, en sumpart miður góðri meðferð á kjötinu við slátrun, frystingu, geymslu og flutning. Gallarnir, sem eru fénu og meðferð þess að kenna, eru þessir: I. Kropparnir eru alltof beinaberir og útlimalangir. Þeir eru alltof vöðvarýrir, einkum á læri og baki. Síðast en ekki sízt er kjötið yfirleitt of magurt, einkum vant- ar að verðmætustu hlutar kroppsins, spjaldhryggur og læri séu vel þakin fitu. Bringa og síður eru oft feitari en þörf gerist og nýrmörinn of mikill. Þetta eru allt einkenni á „primitivu“ fé, sem ekki hefir verið ræktað með tilliti til holdafars. En það er nokkur ástæða til þess að svona sé ástatt, ef litið er til baka nokkra ára- tugi. Islenzka féð var öldum saman ræktað fyrst og fremst vegna mjólkurinnar. Holdafari var eðlilega lítill gaumur gef- inn, en bezta mjólkurféð hefir verið valið til undaneldis. En svo vill til, að mjólkur- lagni og ágætt holdafar fer sjaldan sam- an. Féð varð því mjólkurfé, en ekki holda- fé. Því var oft sýnt svo hart á vetrum, að úr hófi gekk. Þeir einstaklingar, sem harð- gerðastir og þurftarminnstir voru, lifðu bezt af ofraunir vetranna. En það fer yf~ irleitt ekki saman, að mjög þurftarlítið fé sé afurðamest. Oft er það á hinn bóg- inn, að afurðamestu einstaklingarnir

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.